hnífar
Mér tókst loksins loksins að gefa Sigurði jólagjöf í gær. Leatherman Wave allrahanda-hníf. Hver segir svo að ég sé vandræðamanneskja þegar kemur að því að finna gjöf handa sjálfum sér?!? Ari Ólafs tjáði Sigurði svo í dag að það boðaði ógæfu að fá hníf að gjöf. Úbbosí. En þar sem Pétur vinur okkar fékk nú sams konar hníf í jólagjöf í fyrra (sömuleiðis í mars - skemmtileg tilviljun) og hefur ekki verið venju fremur ógæfusamur síðan þá, þá ætla ég að taka mátulega mikið mark á þessu. Annars kynntist Ari þessari hjátrú á skemmtilegan hátt: Hann fékk gjafabréf í afmælisgjöf sem hljóðaði upp á eitthvað margar krónur og var sagt að bæta við 10 kr úr eigin vasa, þá gæti hann - og ætti - að kaupa sér ákveðinn hníf í tiltekinni verslun. Þannig komst gefandinn hjá því að gefa honum hnífinn beint, það varð óbeint ;)
Annars er það í fréttum helst að í gær steikti ég dágott fjall af fiskibollum eftir óbrigðulli "slatti-slumma-slurkur"-uppskrift ömmu í Sigtúni (næst hringi ég í ömmu á Akureyri og sé hvort þetta sé ekki í grunninn sama uppskriftin - ekta ömmufiskibollur :) ), við Sigurður slógum met í upphæð einnar Bónus/Krónu-verslunarferðar, hentum okkur út í nokkurs konar vorhreingerningu (samt ekki alveg, skápahurðir og veggir voru t.d. ekki strokin) og okkur tókst að sofa í meira en 10 tíma síðustu nótt. Voða dugleg. Í dag litum við svo á óendanlega illa auglýst Raunvísindaþing (ef það er eitthvað sem raunvísindafólk kann hörmulega illa, þá er það að auglýsa/kynna sjálft sig og starfsemi sína!), ég kíkti á Kristínu Þóru á smakksýningu vöruhönnunarnema LHÍ og íslenskra bænda, við Sigurður þóttumst læra eitthvað ofurlítið og elduðum svo indverskan mat ofan í okkur og Hörpu systur Sigurðar sem er í höfuðstaðnum þessa dagana.
Prýðilegir dagar liðnir og prýðilegir dagar fram undan með risastóru lærdómsfjalli til að brytja niður og öðrum skemmtilegheitum.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli