smækkað pardusdýr
Í gær þegar ég rölti upp í VR-II rak ég augun í svartan kött sem kúrði sallarólegur á miðri Suðurgötunni. Þ.e. þangað til rauð Toyota á venjulegum Suðurgötu-hraða var komin um 30 metra að honum, þá stökk kötturinn eins og píla af stað yfir holtið í átt að VR-II. Minn sann, hvað þetta eru flott dýr!
1 ummæli:
Hehe, kettir hafa alltaf verið uppáhalds dýrið mitt, það er sagt að það eigi enginn ketti, þeir lifa bara hjá manni.
Hlakka til að sjá ykkur, kem heim 1. júní.
Láttu mig endilega vita hvernig skólamálin ganga hjá þér
Bestu kveðjur
Skrifa ummæli