Harpa afmælisbarn
Hún Harpa frá Stað er einn afkastamesti bloggari sem ég hef fundið. Ég hef varla undan að lesa alla pistlana og fréttirnar sem streyma inn á síðuna hjá henni. Ein af hefðunum sem Harpa heldur upp á er að skrifa ofurlítið um þá ættingja og vini sem eiga afmæli hinn og þennan daginn. En í dag er 26. afmælisdagurinn hennar Hörpu, svo þá er komið að okkur hinum að skrifa afmælisblogg fyrir hana. Einhvern veginn grunar mig að það verði fleiri en einn og fleiri en tveir til þess að blogga í tilefni dagsins :D
Við Harpa hittumst auðvitað fyrst þegar ég kom sem 13 ára kúarektor á Stað. Píslin ég, borgarbarnið og bókaormurinn, starði bara þegar hún reif upp fóðurbætispokana (40kg?) eins og ekkert væri. Og starði svo svolítið meira þegar hún sagðist vera búin að eiga 11 kærasta. Gaaap! ;) En það er ekki amalegt fyrir jafnmikinn dýravin (sér í lagi hestavin) og Hörpu að alast upp í sveit :D
Harpa segir systur sína Rebekku vera ofvirka. Hehe, þær eru það báðar tvær, ekki nokkur spurning. Ofurdugleg manneskja hún Harpa. Einhvern tíma áttum við að taka til í fjóshlöðunni gömlu. Ég er vægast sagt léleg þegar kemur að tiltekt (alltof mikill dundari) og hugsaði mest "Obbosí!" þegar ég horfði á allt dótið og draslið. Harpa hins vegar bara byrjaði - og þetta svoleiðis rokgekk. Ekkert verið að sópa undir teppið, nei takk! Ég held ég hafi lært heilmikið af Hörpu þegar kemur að því að drífa hlutina af - og ekki vanþörf á ;)
Núna er Harpa hins vegar úti í Derby. Elti þangað sinn ástkæra sem er að stúdera mótorsportverkfræði (hvaða tegund verkfræði er ekki til?). Raunar mun hún heiðra klakann með nærveru sinni bráðlega til þess að taka eitt stykki leiðsögumannapróf og demba sér svo vestur í sauðburðinn. Sumarvinnan mun svo fara að miklu leyti fram á hestbaki á gamla góða Íslandi, úje.
Að lokum koma hér tvær myndir frá gamalli og góðri tíð. Þið verðið bara að afsaka hve óskýrar þær eru; ég hef ekki aðgang að skanna nema í nokkurri fjarlægð og gaf mér ekki tíma í prófastússinu til að rjúka þangað svo ég tók mynd af myndunum... :P
Þessi er tekin fyrsta sumarið mitt á Stað. Fríða stendur við réttina, Harpa situr og ég er í mínum ofurendingargóðu appelsínugulu vindbuxum. Ærin til vinstri heitir Prinsessa og lambið hennar Embla. Hin ærin heitir Drottning (systir Prinsessu) og lömbin hennar Mundi og Munda (sem urðu að indælis "sparifé" eins og móðirin). Við hliðina á mér stendur svo hún Snotra.
