miðvikudagur, maí 30, 2007

komin til Potsdam

Þegar ég steig út úr flugvélinni um kl 21 að staðartíma langaði mig helst til að snúa við inn í hana aftur. Hvílík hitamolla! Flugstjórinn sagði hitastigið í Berlín vera um 21°C, sem hefði verið bara indælt, en þessi svakalegi raki mátti alveg missa sín... Eftir að hafa beðið svolitla stund eftir töskunni og bakpokanum arkaði ég í átt að lestarstöðinni. Líkt og í fyrra hafði ég gleymt að prenta út lestaráætlunina frá Schönefeld til Potsdam. En eftir að hafa sannfært mig um að síðasta lestin sem færi beint frá Schönefeld til Potsdam væri þegar farin, hoppaði bara upp í fyrstu lest inn til Berlínar og tók S-lest þaðan. Var komin til Potsdam rétt rúmlega ellefu. Allt koldimmt (eða þannig lagað, ljósastaurarnir eru ekki jafn þéttbýlir hér eins og á fróninu...) og rigning, þrumur og eldingar. Stökk inn í næsta lausa leigubíl sem rann með mig þennan spotta í Schlaatzstrasse. Þar bankaði ég á glugga hjá nágrannanum sem kom eftir þriðja bank, opnaði dyrnar og lét mig hafa lykla að íbúðinni hennar Gudrunar (var að hjóla á Mallorca, kom í gær).

Í gærmorgun svoleiðis rennvöknaði ég af svita bara við það að leiða hjólið upp hæðina með úttroðna tölvutösku á öxlinni. Bahaa, þessi hiti og raki! Það batnaði reyndar töluvert þegar leið á daginn því þá komu nokkrar hressilegar skúrir sem kældu allt hæfilega.

Nújæja, svo líður tíminn í vinnunni við að koma sér fyrir, skipuleggja mælingarnar, redda sér lykli og lykilkorti að mælingaskálanum, vinna við skýrsluna og hitt og þetta. Flestir frá í fyrra eru hér enn og nokkrir nýir hafa bæst við, allt sama vingjarnlega og skemmtilega fólkið :)

Svo ganga hlutirnir náttúrlega upp og niður á sinn grátbroslega hátt. Fór t.d. glorsoltin að kaupa inn í gær. Í hraðbankann að taka út evrur, nema hvað ég hafði víxlað tveim pin-númerum í kollinum svo ég fékk ekki aur út úr því. Jæja, ákvað bara að borga með kreditkortinu. Hlóð því helsta í körfuna. Mundi svo þar sem ég beið á kassanum að það er ekki tekið við kreditkortum í risarisastórmarkaðnum Kaufland. Obbo-obbo-sí. En kannski debetkortinu mínu? Konan prófaði. En nei, kassinn tók bara við þýskum EC kortum. Brill. Svo ég valdi úr vörunum þar til upphæðin nam 21 evru, afgangurinn af 35 evrunum sem pabbi léði mér fyrir lest og leigubíl. Guði sé lof að hann lætur mann alltaf fá miklu meira en maður alla jafna þarf! (TAKK pabbi!) Þá gat ég loks farið heim og rifið í mig brauðsneið meðan ég sauð hrísgrjón og kjaftaði við Gudrun, sem var nýlega komin heim úr ferðalaginu.

En svo eiginlega leiddist mér barasta í gærkvöldi! (Fyrir utan að sakna Íslands og sakna Sigurðar...) Ég kann greinilega ekki að vera í 8-17 vinnu en ekki 8-24 skóla... ;) a.m.k. ekki ef ég er netsambandslaus! :D En jæja, það reddaðist með dundi og prjónaskap og almennri þreytu. Núna í kvöld nota ég lyklana hans Davids sem ég er með á skrifstofu. Hann fer á einhverja ráðstefnu á morgun og kemur ekki aftur fyrr en á þriðjudag. Vona að ég verði komin með eigin lykla þá. Helst fyrir helgina, því þá get ég mætt til að mæla aðeins um helgina, en við ættum að geta sett mælingarnar í gang á morgun :)

Veðrið lagaði sig að mér í dag en ég ekki mig að því. Alveg dásemd. Það var óskaplega hamingjusöm Líney sem hjólaði í 10-12°C í vinnuna í morgun ;) Svo komst ég í smá skokk áðan án þess að kafna gersamlega úr hita. Það hefur aldrei gerst hérna... Þannig að fyrir utan vont kranavatn, nokkur mýbit og Sigurðar-leysi er þetta nú ekki svo slæmt ;)

stjörnurnar og peningarnir

Ég næ kannski að henda inn smá ferðasögu í kvöld, en þangað til getið þið haft gaman af þessari grein um áhrif stjarna himinhvolfsins á peningaheiminn ;)

e.s. Þið getið þakkað Þorsteini Vilhjálmssyni, prófessor í eðlisfræði og vísindasögu, fyrir krækjuna.

miðvikudagur, maí 23, 2007

komin heim í bili

Það er sem ég segi, algerlega lífsnauðsynlegt að fara í sauðburðinn. Besta frí sem hægt er að fá til að ná sér niður, "uppskrúfuð" eftir heilt skólaár og vorpróf. Skipta alveg um umhverfi og hafa nóg að gera. Ég náði aðaltoppinum í burðinum þannig að það var eiginlega aldrei dauður punktur. Fór alltaf á fætur rúmlega sjö, hálf átta (nema einu sinni þegar ég svaf yfir mig til átta, úbbs ;) ) og að sofa milli hálf ellefu og hálf tólf. Kom bara inn til að borða og sofa, nema hvað ég fór ekki út í fjárhús eftir kvöldmat (honum lauk yfirleitt um hálf tíu, tíu) og stundaði það þá að horfa út í loftið, taka aðeins saman eftir kvöldmatinn, gjóa öðru auganu á sjónvarpið eða slá á þráðinn til Sigurðar.

Úti í húsum var þessi venjulega dagskrá: gefa, sópa og vatna fyrir hádegi en rölta á milli garða og hólfa þess á milli til að sjá hvort einhvers staðar væri burður á næsta leiti, hjálpa þeim kindum sem hjálpa þurfti, flytja rollur sem búnar voru að bera eða að fara að bera í sér stíu (og bjarga lömbunum þá oft frá tveim til þrem áköfum "mæðrum"); eftir hádegismat var oftast vasast í ýmsu, t.d. hleypa út ám með stálpuð lömb og færa þá til aðrar svo nýbakaðar mæður kæmust að, ásamt hinni hefðbundnu burðarhjálp og -eftirliti; eftir kaffitíma hófst morgunrútínan fljótlega aftur og varði fram til kvöldverðar um níu, hálf tíu. Inn í þetta fléttuðust svo náttúrlega skemmtilegar stundir með heimafólkinu og sérstaklega hnátunum Védísi Fríðu og Anítu Hönnu (5 og 2 ára). Einstaklega skondið hvað það gat vaðið á Védísi: "Á ég að segja þér eitt...?" Ekki möguleiki að láta sér leiðast með hana í grennd ;) Og tíminn flaug, svússj!

Svo heppilega vildi til að Eiríkur átti ferð suður til að ná í fjóra hesta og Hörpu (yngri dóttur sína) svo ég fékk far heim. Við komum heim um hálf tíu í gærkvöldi. Buðum Eiríki upp á sjávarrétta(nagla)súpu en hann aftur á móti stútfyllti frystiskápinn fyrir pabba af lambakótelettum, lambalæri, rauðsprettuflökum, bjúgum og sviðahausum. Ekki amalegt kaup ;) Ef skápurinn fer eitthvað að kvarta yfir ofhleðslu, má svo alltaf skjóta einhverju yfir til afa og ömmu í Sigtúni. Alltaf gaman að geta "gleymt" góðu kjöti hjá þeim og gefa þar með smá til baka fyrir alla pössunina og fjöruferðirnar þegar ég var pínupons :D Verst að þrátt fyrir ágætlega háan aldur (80 og 86) held ég að þau muni alltof vel hvað er þeirra og hvað okkar í frystikistunni sinni...

Svo var fyrsti vinnudagurinn í dag með tilheyrandi bið, humm og ha og spjalli meðan yfirmenn og aðrir starfsmenn tíndust í (og úr) vinnu. Mér náði þó að verða merkilega mikið úr verki miðað við þennan dæmigerða "fyrsta vinnudag". Var plantað inn á skrifstofuna hans Knúts eins og fyrst þegar ég kom heim frá Potsdam í fyrrasumar, því rýmið fyrir sumarfuglana er enn fullt af möppum, gömlum gögnum og drasli síðan ein geymsla var tæmd í einhverjum framkvæmdum fyrr í vetur. Ég verð hvort eð er bara í vinnu í tvo daga enn áður en ég flýg á braut.

Mjamm, verð horfin seinni part annars í Hvítasunnu. Potsdam er þegar farin að hita upp fyrir komu mína, þar er spáð hátt í 31°C á morgun. Gaaa! Sem betur fer er samt spáð kólnandi fyrir mánudaginn, eða "aðeins" 21°C og svo 18°C á þriðjudaginn. Hjúkket.

mánudagur, maí 14, 2007

4 af 4

Búin! Hjólaði af stað og mætti í munnlegt próf í verklegri eðlisfræði kl 8 (!) í morgun. Örn Helga, Tumi (Jón Tómas) og Kristján Leós spurðu út úr og Guðni nokkur (sem ég hef ekki glóru hver er) var prófdómari. Tumi átti fyrstu spurningu. Var um segulspætu en ég var alveg klár á henni. Kláraði það af á innan við 5 mín. Reyndar átti þetta að vera langa spurningin (15-20 mín) en Tumi einfaldlega fattaði það ekki. Þá tók Örn við með Mössbauermælingarnar. Raffjórpólsvægi. Obbo-obbosí, uppgötvaði þarna á staðnum að ég hafði hreinlega gleymt að renna yfir glósurnar hans Arnar (eins lélegar og þær nú voru, þá hefði ég nú grætt eitthvað á þeim). Hmm, tjjahh... En þetta er munnlegt svo Örn dró mig af stað og spurði því einfaldlega líka út úr segulsviði, sem ég var oggo-oggo-pínku-ponsu meira inn í. Sem sé Örn impróviseraði ofurlítið þarna og breytti þessari spurningu í löngu spurninguna. Hjúkket, þá gat ég babblað meira um það sem ég vissi eitthvað smávegis um. Verst að ég hugsaði ekki út í að beina umræðunni að því sem ég kunni almennilega, þ.e. nákvæmni mælinganna. En hvað um það. Síðasta spurning frá Kristjáni Leós um lofttæmitækni. "Skilgreindu flæði". Einfalt mál, leiddi það út og spjallaði svo smá um leka, útgösun og uppgufun í lofttæmikerfum og kælidælur sem hann spurði um. Búin!

Klukkan bara hálf níu. Sól og blíða. Hitti Sigurð fyrir utan VR-II, en hann er í prófi núna í varmaflutningsfræði. Fer sjálfur í verklega á föstudaginn. Ég hjólaði svo heim og ryksugaði húsið hátt og lágt (hefði átt að gerast á lau., en það eru jú próf...) eftir að hafa rennt í gegnum Fréttablaðið. Þarf svo að gera upp við mig hvort ég tek til í herberginu mínu eða kíki til afa og ömmu í Sigtúnið. Geri kannski sitt lítið af hvoru ;)

Á morgun bruna ég svo væntanlega í árlegan sauðburð að Stað. Tek annaðhvort rútuna í fyrramálið eða skutlast á bíl sem Rebekka og Stjáni voru að kaupa af Geira frænda sínum. Bíllinnfer sem sé í skoðun hérna í bænum á morgun og ef allt er í lagi myndi ég að renna á honum vestur. Þarf bara að heyra betur í Rebekku með þetta.

fimmtudagur, maí 10, 2007

3 af 4

Nýjum botni í prófsögu Líneyjar Höllu er náð. Mér hefur aldrei nokkurn tíma liðið jafn bölvanlega í nokkru prófi og þessu rafsegulfræði 2 prófi. Í fyrsta lagi var ég skolli stressuð fyrir það og svo þegar ég loksins bretti upp ermar til að leysa dæmin, þá hafði prentunin á því klúðrast. Fyrsta dæmið hljóðaði:
"Óhlaðinn óendanlega langur málmsívalningur með geisla , er skorinn eftir langásnum í - -sléttunni ..."
þ.e. 80% allra stærfræðitákna höfðu dottið út. Þessu var kippt í liðinn í snatri, því svo heppilega vildi til að Snorri (einn kennaranna) var rétt hjá og rauk til og prentaði út þrjú eintök (við vorum bara þrjú í námskeiðinu). Á meðan liðu tæpar 10 mínútur og minn ólukkulegi haus pikkfraus. Ekki nokkur vitglóra eftir. Ég reyndi að skoða þetta fyrsta dæmi og hafði ekki minnstu hugmynd hvernig ég ætti að taka á því, jafnvel þótt öll a, x og y væru komin á sinn stað á prófblaðið. Komst að því þegar tæpur hálftími var eftir af próftíma að fyrri liður þess var svo til sama dæmi og við höfðum skilað fyrr í vetur og ég var með í möppunni fyrir framan mig, tilbúið til að láta skrifa sig upp. Mér tókst fyrst að hiksta í gang á dæmi sem var svo lauflétt að það hefði talist létt í rafsegulfræði 1. En það tók líka sinn tíma. Áfram skrölti ég í gegnum þægilegt dæmi um takmörkuðu afstæðiskenninguna í rafsegulfræði. Það tók líka sinn tíma að kreista það á blaðið. Og bíðum nú við: Hálftími eftir af 3 klst! Tókst að henda því sem hægt var á blað um þetta sívalnings-skiladæmi, en meira ekki. Á prófinu voru 6 dæmi og 5 bestu eiga að gilda til einkunnar. *Hér komi ritskoðuð setning.* Í námskeiðinu voru þrír kennarar. Það telst yfirleitt vera dauðadómur hvers námskeiðs. Það var reyndar prýðilega kennt. Ég mæli hins vegar ekki með kennslubókinni. Um hana eru MJÖG skiptar skoðanir (biblía allt niður í sorprit). Svo féllu kennararnir þrír í þá gryfju að koma með of erfiðar/langar spurningar hver um sig. Í þessu frystiástandi mínu hefði ég þurft a.m.k. 6 klst til að klára prófið. Arrrrg!

Ég er farin að sofa, góða nótt.

laugardagur, maí 05, 2007

2 af 4

Svei mér þá, ég held ég sé ekki fallin í algebru II. Hef meira að segja möguleika á sjöu. Sem væri brill. Þá slepp ég við sumarpróf. Hef ekkert í það að gera ef ég fæ sjö. Hefði búist við að það væri leiðinlegra en þetta að fara í próf í fagi sem maður hefur sama og ekkert náð að læra í yfir veturinn. Sýnir bara hvað algebra er skemmtilegt fag. Spurning með að fara í algebru III? Næst er rafsegulfræði 2. Fagið þar sem fletta þurfti næstum hverri einustu lausn upp á netinu til að komast eitthvað áfram í dæmareikningnum. Stuð. (Eðlisfræðibrandari, hahahaha..., hm.)

þriðjudagur, maí 01, 2007

1 af 4

Fyrsta og léttasta prófið búið. Stærðfræðigreining IVB. Gekk vel. Algebra II á föstudaginn. Best að vinda sér út í það.

þriðjudagur, apríl 24, 2007

vömbin kýld

Afmælisgjöfin okkar Bjarnheiðar í ár var út að borða með kærastanum. Bjarnheiður nýtti sýna gjöf úti í Prag um páskana á frönsku veitingahúsi við mikla lukku. Við Sigurður vorum hins vegar að koma frá því að nýta okkar hlut, sem var gert í Perlunni. Þetta var alveg frábært :) Ofboðslega góður matur og nóg af honum. Við fengum okkur fjögurra rétta tilboðið sem nú er í gangi: Humarsúpa með grilluðum kóngarækjum, pönnukaka með sveppafyllingu, steikt/grillað lambafillet og -lund og vanilluskyr með pistasíufrauði og melónusorbet í eftirmat. Úff, ég sprakk úr seddu undir lok aðalréttarins - en við einfaldlega skiptum á diskum *dúddúrú* ;) Svo er nú alltaf hægt að renna eftirréttinum niður :D Þjónustan var prýðileg, ekki uppáþrengjandi en alltaf til staðar. Það voru auðvitað fáir gestir á þriðjudagskvöldi í lok apríl, svo þetta var einstaklega notalegt. Eini mínusinn var spes tónlist, þ.e. bylgjandi tenór og svo skömmu síðar rífandi stuðlag, tenórinn á ný og seinna "hljómborðssönglag". Öööö... ;) Perlan fær 4½ stjörnu af 5, mikið hrós og kærar þakkir.

Ef þið eruð tilbúin til að greiða 5900,- kr fyrir velútilátna og gómsæta máltíð (bætið 750,- kr við til að fá rauðvínsglas með lambinu), þá eru 4 réttir í Perlunni málið!

föstudagur, apríl 20, 2007

klappað og klárt

Jæja, þá er ég búin að bóka flugið til og frá Potsdam. Allt orðið nokkuð öruggt þar.

Annars eru litlar féttir nema kveffréttir af mér að segja. Krækti mér á ný í sýkingu í hálsi í páskafríinu. Var samt hitalaus og þurfti ekki að lúra í bólinu daginn út og inn, en gat ekki spriklað meira en sem nam einum og einum göngutúr. Baah. Þegar sú kveisa var að réna eftir mikil hóstaköst, nú þá tók bara sú næsta við. Vaknaði sem sé með stokkbólginn hálskirtil í morgun. Já, ég er orðin huuuuuuuuundleið á þessu endalausa víruspartýi! Ekki það, það gætu náttúrlega einhverjar bakteríur hafa kíkt í heimsókn líka. Ég ætla að væla ofurlítið í heimilislækninum á þriðjudaginn. Sjá hvort hann komi auga á einhverjar bakteríur og setji mig á pensilín eða álíka. Minn aumi kroppur virðist í það minnsta ekki ráða einn við þessa gleðipinna....

Eftir þetta væl og volæði er víst best að koma með eina skondna sögu:
Þegar ég steig út úr strætó ská fyrir utan heimilið núna í dag sá ég þar gamlan snyrtilegan mann og annan ungan með ferðatösku, sem greinilega var útlendingur, bíðandi utan við dyrnar. Ég brunaði á staðinn tilbúin að vísa þeim á réttan veg, því svo sannarlega sem við bjuggumst ekki við neinum gestum! Ungi maðurinn var sem sé nýkominn frá farfuglaheimilinu og taldi sig eiga að gista eina nótt á númer 3 við Laugalæk. Ööööö, ne-ei, það getur ekki passað. Humhumhum. Ég opnaði útidyrnar í snatri, bauð þeim inn og hringdi í farfuglaheimilið. Komst að því að ungi maðurinn, Túnisbúi, Mahmoud að nafni, ætti þar bókað herbergi í nótt. Hann hélt á svona lykilkorti og bæklingi sem á var ritað "#03". Í bæklingnum var meðal annars kort af nánasta umhverfi með tölusettum deplum hingað og þangað. M.a. depli 3 við Laugalæk, sem stóð fyrir 10/11 verslunina hér ská á móti. Aha! Mahmoud hafði gist á farfuglaheimilinu eina nótt og hafði svo greinilega átt að skipta um herbergi, þ.e. fara í herbergi 3, en hann misskilið og talið sig eiga að fara þar sem depill 3 var og gamli maðurinn (sem hitti hann greinilega rammvilltan við Laugalæk) skilið hann svo þannig að hann væri að leita að Laugalæk 3! Skemmtilegasta hringavitleysa. Áður en þeir kvöddu, fundum við svo heimilisfang og símanúmer Alþjóðahússins fyrir Mahmoud, því hann var að leita sér að ódýru herbergi til að leigja í einn mánuð. Þar ætti hann örugglega að finna einhvern til að hjálpa sér, sér í lagi einhvern sem talar frönsku.

þriðjudagur, apríl 03, 2007

tími til að tengja

Nú er orðið hér um bil öruggt (þ.e. 90%) að ég fer aftur til Potsdam í sumar, eins og í fyrra. Verð þar líklega í 6 vikur, frá 28. maí til 10. júlí. Get leigt herbergi hjá Gudrun eins og í fyrra og notað sama hjólið því Gudrun keypti það af hinni indælu frú Fuhrmann í lok sumars, einmitt til að geta lánað leigjendum sínum. Það á eiginlega bara eftir að panta flugið. Sem sé, hvenær á ég að heimsækja þig eða þú að heimsækja mig, Bjarnheiður? :)

Síðasta prófið mitt er annars 14. maí, munnlegt próf í verklegri eðlisfræði. Skýrslunum í því fagi fækkaði um eina í gær (tvær eftir) þegar ég lauk einni sem er búin að taka "#$!#%!$% fimm vinnudaga. Út úr henni kemur svo mest megnis rugl. Allt eins og það á að vera... En jamm, ætli ég renni ekki vestur á Stað í sauðburðinn 15. maí og komi heim þann 22. Get þá mætt í vinnu mið., fim. og fös. áður en ég flýg á braut.