4 af 4
Búin! Hjólaði af stað og mætti í munnlegt próf í verklegri eðlisfræði kl 8 (!) í morgun. Örn Helga, Tumi (Jón Tómas) og Kristján Leós spurðu út úr og Guðni nokkur (sem ég hef ekki glóru hver er) var prófdómari. Tumi átti fyrstu spurningu. Var um segulspætu en ég var alveg klár á henni. Kláraði það af á innan við 5 mín. Reyndar átti þetta að vera langa spurningin (15-20 mín) en Tumi einfaldlega fattaði það ekki. Þá tók Örn við með Mössbauermælingarnar. Raffjórpólsvægi. Obbo-obbosí, uppgötvaði þarna á staðnum að ég hafði hreinlega gleymt að renna yfir glósurnar hans Arnar (eins lélegar og þær nú voru, þá hefði ég nú grætt eitthvað á þeim). Hmm, tjjahh... En þetta er munnlegt svo Örn dró mig af stað og spurði því einfaldlega líka út úr segulsviði, sem ég var oggo-oggo-pínku-ponsu meira inn í. Sem sé Örn impróviseraði ofurlítið þarna og breytti þessari spurningu í löngu spurninguna. Hjúkket, þá gat ég babblað meira um það sem ég vissi eitthvað smávegis um. Verst að ég hugsaði ekki út í að beina umræðunni að því sem ég kunni almennilega, þ.e. nákvæmni mælinganna. En hvað um það. Síðasta spurning frá Kristjáni Leós um lofttæmitækni. "Skilgreindu flæði". Einfalt mál, leiddi það út og spjallaði svo smá um leka, útgösun og uppgufun í lofttæmikerfum og kælidælur sem hann spurði um. Búin!
Klukkan bara hálf níu. Sól og blíða. Hitti Sigurð fyrir utan VR-II, en hann er í prófi núna í varmaflutningsfræði. Fer sjálfur í verklega á föstudaginn. Ég hjólaði svo heim og ryksugaði húsið hátt og lágt (hefði átt að gerast á lau., en það eru jú próf...) eftir að hafa rennt í gegnum Fréttablaðið. Þarf svo að gera upp við mig hvort ég tek til í herberginu mínu eða kíki til afa og ömmu í Sigtúnið. Geri kannski sitt lítið af hvoru ;)
Á morgun bruna ég svo væntanlega í árlegan sauðburð að Stað. Tek annaðhvort rútuna í fyrramálið eða skutlast á bíl sem Rebekka og Stjáni voru að kaupa af Geira frænda sínum. Bíllinnfer sem sé í skoðun hérna í bænum á morgun og ef allt er í lagi myndi ég að renna á honum vestur. Þarf bara að heyra betur í Rebekku með þetta.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli