komin til Potsdam
Þegar ég steig út úr flugvélinni um kl 21 að staðartíma langaði mig helst til að snúa við inn í hana aftur. Hvílík hitamolla! Flugstjórinn sagði hitastigið í Berlín vera um 21°C, sem hefði verið bara indælt, en þessi svakalegi raki mátti alveg missa sín... Eftir að hafa beðið svolitla stund eftir töskunni og bakpokanum arkaði ég í átt að lestarstöðinni. Líkt og í fyrra hafði ég gleymt að prenta út lestaráætlunina frá Schönefeld til Potsdam. En eftir að hafa sannfært mig um að síðasta lestin sem færi beint frá Schönefeld til Potsdam væri þegar farin, hoppaði bara upp í fyrstu lest inn til Berlínar og tók S-lest þaðan. Var komin til Potsdam rétt rúmlega ellefu. Allt koldimmt (eða þannig lagað, ljósastaurarnir eru ekki jafn þéttbýlir hér eins og á fróninu...) og rigning, þrumur og eldingar. Stökk inn í næsta lausa leigubíl sem rann með mig þennan spotta í Schlaatzstrasse. Þar bankaði ég á glugga hjá nágrannanum sem kom eftir þriðja bank, opnaði dyrnar og lét mig hafa lykla að íbúðinni hennar Gudrunar (var að hjóla á Mallorca, kom í gær).
Í gærmorgun svoleiðis rennvöknaði ég af svita bara við það að leiða hjólið upp hæðina með úttroðna tölvutösku á öxlinni. Bahaa, þessi hiti og raki! Það batnaði reyndar töluvert þegar leið á daginn því þá komu nokkrar hressilegar skúrir sem kældu allt hæfilega.
Nújæja, svo líður tíminn í vinnunni við að koma sér fyrir, skipuleggja mælingarnar, redda sér lykli og lykilkorti að mælingaskálanum, vinna við skýrsluna og hitt og þetta. Flestir frá í fyrra eru hér enn og nokkrir nýir hafa bæst við, allt sama vingjarnlega og skemmtilega fólkið :)
Svo ganga hlutirnir náttúrlega upp og niður á sinn grátbroslega hátt. Fór t.d. glorsoltin að kaupa inn í gær. Í hraðbankann að taka út evrur, nema hvað ég hafði víxlað tveim pin-númerum í kollinum svo ég fékk ekki aur út úr því. Jæja, ákvað bara að borga með kreditkortinu. Hlóð því helsta í körfuna. Mundi svo þar sem ég beið á kassanum að það er ekki tekið við kreditkortum í risarisastórmarkaðnum Kaufland. Obbo-obbo-sí. En kannski debetkortinu mínu? Konan prófaði. En nei, kassinn tók bara við þýskum EC kortum. Brill. Svo ég valdi úr vörunum þar til upphæðin nam 21 evru, afgangurinn af 35 evrunum sem pabbi léði mér fyrir lest og leigubíl. Guði sé lof að hann lætur mann alltaf fá miklu meira en maður alla jafna þarf! (TAKK pabbi!) Þá gat ég loks farið heim og rifið í mig brauðsneið meðan ég sauð hrísgrjón og kjaftaði við Gudrun, sem var nýlega komin heim úr ferðalaginu.
En svo eiginlega leiddist mér barasta í gærkvöldi! (Fyrir utan að sakna Íslands og sakna Sigurðar...) Ég kann greinilega ekki að vera í 8-17 vinnu en ekki 8-24 skóla... ;) a.m.k. ekki ef ég er netsambandslaus! :D En jæja, það reddaðist með dundi og prjónaskap og almennri þreytu. Núna í kvöld nota ég lyklana hans Davids sem ég er með á skrifstofu. Hann fer á einhverja ráðstefnu á morgun og kemur ekki aftur fyrr en á þriðjudag. Vona að ég verði komin með eigin lykla þá. Helst fyrir helgina, því þá get ég mætt til að mæla aðeins um helgina, en við ættum að geta sett mælingarnar í gang á morgun :)
Veðrið lagaði sig að mér í dag en ég ekki mig að því. Alveg dásemd. Það var óskaplega hamingjusöm Líney sem hjólaði í 10-12°C í vinnuna í morgun ;) Svo komst ég í smá skokk áðan án þess að kafna gersamlega úr hita. Það hefur aldrei gerst hérna... Þannig að fyrir utan vont kranavatn, nokkur mýbit og Sigurðar-leysi er þetta nú ekki svo slæmt ;)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli