3 af 4
Nýjum botni í prófsögu Líneyjar Höllu er náð. Mér hefur aldrei nokkurn tíma liðið jafn bölvanlega í nokkru prófi og þessu rafsegulfræði 2 prófi. Í fyrsta lagi var ég skolli stressuð fyrir það og svo þegar ég loksins bretti upp ermar til að leysa dæmin, þá hafði prentunin á því klúðrast. Fyrsta dæmið hljóðaði:
"Óhlaðinn óendanlega langur málmsívalningur með geisla , er skorinn eftir langásnum í - -sléttunni ..."
þ.e. 80% allra stærfræðitákna höfðu dottið út. Þessu var kippt í liðinn í snatri, því svo heppilega vildi til að Snorri (einn kennaranna) var rétt hjá og rauk til og prentaði út þrjú eintök (við vorum bara þrjú í námskeiðinu). Á meðan liðu tæpar 10 mínútur og minn ólukkulegi haus pikkfraus. Ekki nokkur vitglóra eftir. Ég reyndi að skoða þetta fyrsta dæmi og hafði ekki minnstu hugmynd hvernig ég ætti að taka á því, jafnvel þótt öll a, x og y væru komin á sinn stað á prófblaðið. Komst að því þegar tæpur hálftími var eftir af próftíma að fyrri liður þess var svo til sama dæmi og við höfðum skilað fyrr í vetur og ég var með í möppunni fyrir framan mig, tilbúið til að láta skrifa sig upp. Mér tókst fyrst að hiksta í gang á dæmi sem var svo lauflétt að það hefði talist létt í rafsegulfræði 1. En það tók líka sinn tíma. Áfram skrölti ég í gegnum þægilegt dæmi um takmörkuðu afstæðiskenninguna í rafsegulfræði. Það tók líka sinn tíma að kreista það á blaðið. Og bíðum nú við: Hálftími eftir af 3 klst! Tókst að henda því sem hægt var á blað um þetta sívalnings-skiladæmi, en meira ekki. Á prófinu voru 6 dæmi og 5 bestu eiga að gilda til einkunnar. *Hér komi ritskoðuð setning.* Í námskeiðinu voru þrír kennarar. Það telst yfirleitt vera dauðadómur hvers námskeiðs. Það var reyndar prýðilega kennt. Ég mæli hins vegar ekki með kennslubókinni. Um hana eru MJÖG skiptar skoðanir (biblía allt niður í sorprit). Svo féllu kennararnir þrír í þá gryfju að koma með of erfiðar/langar spurningar hver um sig. Í þessu frystiástandi mínu hefði ég þurft a.m.k. 6 klst til að klára prófið. Arrrrg!
Ég er farin að sofa, góða nótt.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli