föstudagur, október 19, 2007

(segul)magnað

Sigurður fékk loksins heyrnatólin (Sennheiser PXC 350) sem hann hefur beðið svo lengi eftir í gær. Þau eru náttúrlega alger snilld með sínum suðdeyfi (noise cancelling) og miklu hljómgæðum. Þar sem að ég er ekki eigandi heyrnatólanna og sé þau því sjaldnar en sjálfan eigandann, þá ættu þessi tól ekki að vera svo mikið í frásögur færandi á bloggsíðunni minni. Nema hvað í kassanum sem heyrnatólin komu í leyndust fjórir litlir skífuseglar (voru notaðir til þess að halda niðri pappaspjaldi með frekari upplýsingum um hin mögnuðu heyrnatól). Ég reif seglana náttúrlega úr í snatri, pillaði allt límið af þeim og - jibbíjei! algert snilldar leikfang fyrir eðlisfræðinörda ;D Með því að leggja þá á slétta borðplötu og snúa segluninni á þeim öllum í sömu átt þannig að þeir hrinda hver öðrum frá sér, er hægt að láta þá þjóta um borðplötuna þvera og endilanga. Nú eða snúa segluninni sitt á hvað þannig að þeir festast saman á brúninni og mynda ýmis mynstur. Sum sé, (segul)magnað stuð hjá mér þessa dagana ;)

Seglarnir mínir eru um 1cm í þvermál og 1mm á þykkt.

fimmtudagur, október 11, 2007

æ ó æ

Vaknaði í morgun með einhvern skít í hálsinum. Úbbs. Hafði það af að klára mál- og tegurfræði skiladæmi fyrir hádegi en eftir hádegi hefur heilinn neitað að puða. M.ö.o. hann neitar að reikna fyrir dæmatíma í mál- og tegurfræði í fyrramálið. Mér tókst þó að fá hann til að lagfæra og pikka inn glósur í þessu fagi, svo hann er til einhvers nýtur... En nú er í gildi hvítlaukviðvörun í 1 km radíus utan um mig því ég át heilt hvítlauksrif og skellti öðru slíku í hvítlauks-engifer-sítrónusafa-hunangs-drykk sem ég hellti ofan í mig skömmu eftir hádegi (vona að þú hafir komist lífs af, Pétur ;) ). Svo er að sjá hvort það virki. Ég er a.m.k. nógu hress til að langa í heitan pott í Árbæjarsundlauginni meðan Sigurður skeiðar 10 km í Poweradehlaupi í Elliðaárdal. Ehm, en er engu að síður einnig nógu skynsöm til að láta það ekki eftir mér ;)

fimmtudagur, október 04, 2007

varúð! námsmannareikningar

Ég vil biðja alla námsmenn um að athuga annaðhvort í heimabanka, á reikningsyfirlitum eða hjá þjónustufulltrúa hvort tékkareikningurinn þeirra sé ekki alveg örugglega skráður sem námsmannareikningur!

Fyrir tæpum mánuði sendi ég í forvitni minni fyrirspurn til eins af viðskiptabönkunum mínum um hvers vegna ég hefði greitt mismikið fyrir nokkrar debetkortafærslur á árinu. Fékk skýringuna til baka: Námsmannatékkareikningurinn sem ég stofnaði skömmu eftir fermingu hafði verið skráður úr "námsmannakjörum" í janúar 2004 og settur aftur í námsmannakjör í apríl 2007.

Hafið þið einhvern tíma skoðað muninn á vöxtunum sem eru á almennum tékkareikningi og námsmannareikningi (í hvaða banka sem er)? Sá munur er heilmikill. Ég varð alveg hreint sjóðbullandibandbrjálaðsbálreið. Hvað átti bankinn með að skrá mig úr námsmannakjörum? Hann hafði ekki nokkurn rétt eða möguleika á að fá lista yfir nemendur sem brautskráðust úr MH um jólin 2003. Tæknilega séð var ég líka námsmaður meðan á aupair-dvöl minni stóð þarna janúar-ágúst 2004, því ég var í þýskunámi svotil allan tímann. Svo lufsaðist bankinn ekki til að skrá mig í námsmannakjör fyrr en í apríl 2007, þótt það hafi t.d. verið fullljóst að ég væri námsmaður í júní 2006 þegar ég fékk ISIC-kreditkort hjá þeim - sem engir aðrir en námsmenn mega fá! Arg.

Ástæðan fyrir afskráningunni er sú að það var lítil hreyfing á reikningnum mínum. Bankinn sum sé notar sem mat á hvort fólk sé ekki lengur námsmenn:
1) mánaðarlegar háar launaupphæðir koma inn á reikninginn;
2) hreyfing á reikningnum er lítil (=fólk er með aðalviðskipti við annan banka);
og ef annað af þessu tvennu er uppfyllt, þá einfaldlega skráir hann fólk úr námsmannakjörum án þess að láta nokkurn vita. Ég á ekki til orð!

Ég sendi auðvitað harðort svar og krafðist þess að fá vextina af reikningnum leiðrétta aftur í tímann, því bankinn átti ekkert með að skrá námsmanninn mig úr námsmannakjörum. Vextina fékk ég í síðustu viku. Þetta voru rúmar 7000 krónur, þ.e. stór matarkarfa hér á Eggertsgötu 20. Ef ekki væri fyrir einn einstakan þjónustuþátt þessa banka (sem sparar mér þónokkra þúsundkalla á ári), þá hefði ég hætt viðskiptum við hann í fússi!

mánudagur, október 01, 2007

smá nöldur

Lífið snýst ekki um annað þessa dagana en skóla, kennslu, mat, innkaup, þvott, þrif, ... Það er ekki einu sinni hægt að skella sér í kæruleysi fyrir framan sjónvarpið nema rétt í bláendann á föstudagskvöldum (ekki að það hafi verið hægt síðustu 3 árin, en ég er orðin þreytt á þessu endalausa spani). Ragnar kaffærir okkur í mál&tegur, Þórður kennir safneðlisfræði fyrir 2. árs BS-nema eins og masterskúrs, ég eyði alltof miklum tíma í að fara yfir verkbækur minna misklóku nemenda og þess á milli er ég að farast úr pirringi yfir að ég komi tölvueðlisfræðinni varla nokkur staðar að. Nöldur... Merkilegt nokk, þá er þetta nú samt skítsæmilegt - oftast nær að minnsta kosti. Maður er jú kominn með þriggja ára þjálfun í þessum bransa ;)

E.S. Hvað á ég líka sosum með að nöldra þegar ég fæ að gera það sem ég vil, þ.e. læra eðlisfræði og stærðfræði? Maður getur stundum verið ansi skrýtinn...

miðvikudagur, september 26, 2007

uppskrift

Jæja Kristín, þá er bara að vinda sér í Bónus, kaupa íslenska tómata á kostakjörum og láta svo hendur standa fram úr ermum! Ger svo vel: tómatsósuuppskriftin ;)

laugardagur, september 22, 2007

tómatsósa

Jú jú, rétt til getið. Hin árlega tómatsósa mallar núna í risapottinum hans pabba. Ég fékk sum sé ódýra íslenska tómata í Bónus um daginn og fékk því pottinn góða og töfrasprotann lánaðan á Laugarnesveginum (þangað sem pabbi og mamma eru nú flutt) en fór að auki óskammfeilinni ránshendi um kryddskápana og -kassana (þau lifa að hálfu í kössum enn sem komið er; þetta er allt að koma...). Reyndar virðist manni að það þurfi bara að segja: "Þurfið þið nokkuð...", og svarið kemur áður en maður lýkur setningunni: "Nei nei, við þurfum ekkert á þessu að halda, endilega taktu það". Þau eru sum sé að drukkna í dóti. En þau eru alla vega búin að tæma á Laugalæk, þar hanga einungis gluggatjöld uppi, auk þess sem einn sparibaukur með Tinna og Kolbeini kaftein verður skilinn eftir. Litla skottan sem mun flytja inn ásamt foreldrum sínum rak nefnilega augun í þennan forláta sparibauk þegar hún fékk að kíkja á nýja heimilið núna seinni part sumars. Hún missti meira að segja áhugann á hinu mjög svo spennandi háalofti í nokkrar sekúndur. Hnátan reyndist með nýtilkomið æði fyrir Tinna og félögum eftir að hafa horft myndbönd með þeim heima hjá afa sínum og ömmu. Það var því samið um það í snatri að sparibaukurinn myndi fylgja húsinu ;) Annars ku þessir sparibaukar vera þeir vinsælustu sem bankarnir hafa nokkru sinni dreift til landans. Skjóta Georgi, Króna og Krónu, hvíta bangsanum í Landsbankanum (hét hann eitthvað?), Paddington o.s.frv. o.s.frv. ref fyrir rass. En þar sem ég hef ekki snefil af sölumannsgenum í mér, þá gaf ég frekar 5 ára ókunnri stelpu með Tinna-æði baukinn minn heldur en að bjóða hann upp á eBay...

þriðjudagur, september 18, 2007

hollíhú

Jæja, kvefið á braut og allt að verða vitlaust í skólanum. Auðvitað. Pabbi og mamma eru líka alveg á kafi að klára að flytja. Eiga að afhenda lyklana á miðvikudaginn eftir viku. Og endalaust fleiri staðir með endalaust meira af bráðnauðsynlegum og ónauðsynlegum og veit-ekki-nauðsynlegum hlutum. Það er erfitt að flytja. Sérstaklega þegar verið er að minnka við sig. Úffpúff.

Það er annars greinilega sama hvort afmæli ber upp undir lok annar, eins og hjá mér, eða í upphafi annar, eins og hjá Sigurði. Skólinn gleypir daginn. Já, Sigurður á afmæli í dag og dagurinn hefur bara farið í lærdóm, rækt, kvöldmat og meiri lærdóm. En, skítt með það. Við förum þá bara kannski út að borða um helgina. Eða þá næstu. Eða bara rétt eftir jólapróf. Eða eftir áramót. Eða... kannski bara næsta sumar? Alla vega hefur okkur tekist að fresta út-að-borða-ferð alveg frá jólum og fram yfir mitt sumar. Jú, við erum snillingar.

miðvikudagur, september 12, 2007

haustlægð og haustkvef

Jebbs, það fór eins og við óttuðumst: Ég tók við kvefbakteríunum hans Sigurðar og þær héldu enn villtara partý í mér en honum. Allt eins og venjulega. Meðan hann þarf að berjast við fullan haus af kvefi og 50-80% afkastagetu í 3-4 daga og smá eftirköst í aðra 3 daga, þá þarf ég að berjast við 0-50% afkastagetu og 14 klst svefnþörf í 3-4 daga (mögulega allt að 6 dögum) auk eftirkasta. Arg. Annars er þetta hefðbundna haustkvef greinilega að ganga, því meir en annar hver maður kepptist við að sjúga upp í nefið þarna í þessum eina fyrirlestri sem ég sat í gær og einn meira að segja gekk svo langt að snýta sér (nei, það var ekki þýska stelpan). Jú, ég reyndar líka, en ég stakk af út úr stofunni til þess arna þegar flóðgáttir nebbans brustu. Spurning hvernig þeirri þýsku hafi liðið þarna innan um okkur Íslendingana. Í Þýskalandi tíðkast nefnilega að snýta sér í tíma og ótíma en það að sjúga upp í nefið er eiginlega bannað, telst a.m.k. svaka lélegir mannasiðir, öfugt við normið hérna í norðri þar sem maður notar frekar nefsogið og vasaklúturinn frekar upp á punt eða rétt aðeins til að fanga það sem hótar að leka út á næstu sekúndu.

Spurning hvort þetta kvef sé eitthvað í tengslum við fyrstu alvöru haustlægðina? Tæpast. Það er bara komið haust. En ég hafði a.m.k. prýðisafsökun fyrir að fara ekkert út í þessa hraustlegu rigningu í dag.

laugardagur, september 08, 2007

fjúhh

Já, ég er fegin að hafa ekki farið í fleiri áfanga á þessari önn fyrst ég er í mál&tegur hjá Ragnari og safneðlisfræði hjá Þórði. Ragnar lætur mann sitja sveittan við ofvaxna dæmaskammta að reikna hvert dæmið á fætur öðru en Þórður, tjah, tökum bara dæmi: ég var 5-6 klst í dag að reikna 1 dæmi... af 4 (sem á að skila, en í heild eru dæmin 7). Mér líður eins og sigurvegara heimsins eftir að hafa klárað þetta eina dæmi (en af fenginni reynslu verður það í lok námskeiðsins örugglega "trivielt" eins og menn segja hér, á íslensku útleggst það sem "fáfengilegt", "augljóst", "ekki þess virði að eyða miklu púðri í" eða "með eindæmum auðvelt").

sunnudagur, september 02, 2007

ofbeldi - nei takk!

Við Sigurður renndum suður Lækjargötuna rétt eftir hádegið í dag og stöðvuðumst á rauðu ljósi. Við Lækjartorgið biðu m.a. maður og kona. Ég veitti þeim sosum enga eftirtekt fyrr en maðurinn vindur sér að konunni og atast í henni, slær hana tvisvar utan undir eða þykist a.m.k. gera það (sá það ekki nógu vel) og er eitthvað æstur og reiður. Sem var þó ekkert í samanburði við mig því í þessu kom grænt ljós og ég bað Sigurð vinsamlegast að renna þarna upp að (enginn strætó í nánd og ekkert af því fólki sem var þarna sýndi nein viðbrögð - grr), steig út úr bílnum og hellti mér yfir manninn á ensku. Sá sum sé þegar ég steig út úr bílnum að þetta voru ekki Íslendingar, heldur líkast til Tyrkir eða Norður-Afríkubúar eða frá því svæði. Sagði manninum hreint út að svona gerði maður ekki. Eitthvað sagði hann án þess að líta á mig á ókunnu tungumáli en konan hrökk þá í gang (þau voru greinilega samferða, hjón eða systkin eða álíka) og virtist eitthvað þýða það sem ég sagði. Alla vega sagði hún eitthvað við hann ákveðin á svip og þótt maðurinn virtist ekki skilja mig var hann þó lúpulegur. Eftir nokkur fleiri orð úr mínum yfirfulla reiði- og hneykslunarbrunni datt loks upp úr manninum eitt "OK". Þá sýndist mér konan vera komin með eitthvað aukið sjálfstraust, ég þakkaði manninum fyrir og kvaddi. Nú vona ég bara að ég hafi ekki gert illt verra, því ekki þekki ég menningu þeirra eða hvert tilefni "handaveifinga" mannsins var. En ofbeldi líð ég einfaldlega ekki. Verst þótti mér að sjá að enginn í grennd um fólkið brást á nokkurn hátt við. Varð hugsað til þessa Spegils-þáttar úr síðustu viku sem fjallar m.a. um "bullumenningu" (pistillinn byrjar þegar um 2/3 eru liðnir af þættinum, ath sérstaklega um 3/4, frásögnina um reynslu Jeremy Vine).