laugardagur, október 08, 2005

tómatsósa

Í dag sauð ég tómatsósu úr m.a. 5,5kg af tómötum, 6 laukum og 14 hvítlauksrifjum. Ég er nokkuð að spennt að sjá hve mörg kíló þetta verða af sósu. Mest hef ég soðið 3,8kg af sósu árið 2001 en ég er nokkuð viss um að ég slái metið núna. Held ég muni líka leggja undir mig heila skúffu í frystiskápnum, ef ekki meira...

laugardagur, október 01, 2005

geggjun

Brjálaðasta vika sem ég hef nokkurn tíma upplifað er liðin. Hallelúja! Það er ekkert skrítið að fólk tali um að þessi skóli (n.t.t. raunvísinda- og verkfræðideild) sé geðfjandsamlegur.

Pollýanna: Nú get ég alltaf litið til baka og hugsað: "Jæja, þetta er þó ekki eins slæmt og vikan í lok september 2005."
Svartsýnispúkinn: Þetta er bara staðbundið hágildi, alls ekki víðfeðmt...

Ég held með báðum. Ég get þó alla vega gripið til Pollýönnu þangað til sannleikur Púkans kemur í ljós ;)

fimmtudagur, september 29, 2005

nördapróf

Ég stóðst ekki mátið að tékka á þessu ;)

I am nerdier than 79% of all people. Are you nerdier? Click here to find out!

Verst að mér er ómögulegt að muna hvað ég fékk síðast. Þessi tala ætti þó vonandi ekki að týnast svo ég get bara hafið samanburðarrannsóknir eftir sossum eitt ár :D

þriðjudagur, september 20, 2005

klukk!

Bloggeltingarleikurinn æsispennandi berst víða... En ég hef sem sé verið klukkuð af Kristjönu sem þýðir að ég verð að segja 5 staðreyndir um sjálfa mig.

1) Ég átti að vera strákur og heita Einar eftir föðurafa mínum. En ég varð stelpa og fékk því nafnið Líney eftir móðurafasystur minni (lést í bílslysi 39 ára, 1958) og Halla eftir móðurafa mínum (Hallur). Einar afi hefur líka fengið nafnið sitt því einn langafastrákurinn hans heitir Einar Páll (býr við götuna Einarsnes í húsi að nafni Pálshús, sem, ótrúlegt en satt, er algerlega óviðkomandi nafninu hans). Það passar meira að segja við postulana því afi heitir Einar Pétur :)

2) Ég er svo lík systur minni (Bjarnheiður, tveim árum eldri) að margra mati, að fólk ruglast ákaflega oft á okkur. Annað dæmi um að foreldrar mínir kunna bara eina barnauppskrift...

3) Ég var 8 ára þegar ég ákvað að ég vildi læra á trompet. Píslin ég, óendanlega feimin, var meira að segja svo ákveðin að ég talaði við lúðrasveitarstjóra skólans, Stefán Þ. Stephensen, og spurði hvort ég mætti ekki byrja strax, þótt yfirleitt mætti ekki hefja námið fyrr en 9 ára. Í stuttu máli leit hann vinalega niður á krílið og sagði að ég skyldi bíða í eitt ár, ég væri of smá og svo væri ekkert kornett (trompet sem hefur lent í smá bílslysi) laust. Ég beið, bekkjarsystir Bjarnheiðar systur skilaði kornettinu sínu (takk, Stefanía!), ég byrjaði 9 ára og var komin á kaf í litla og stóra lúðrasveit í lok vetrar. Hef spilað á trompet síðan ég var 11 ára, í mismiklum mæli þó.

4) Ég eeeelska sund, þótt ég þurfi einstaka sinnum að taka mér 5-7 daga frí til að fá ekki leið á því. Ótrúlegt hvað pirringur og leiðindi geta minnkað mikið á einum kílómetra...

5) Til er einhver formúla út frá hæð barna þegar þau eru tveggja ára, sem segir hversu há þau loks verða (*2 fyrir stelpur og *2+10cm fyrir stráka, að mig minnir). Mamma trúði því varla þá að ég myndi rétt slefa yfir 1,60m. Ég er 1,57m í dag.

Ég klukka Örnu og Kötlu, Gunna hinn, Gunna Silla og Bjarnheiði (sem hér með skal stofna blogg eða upplýsa hvar það er að finna!).

sunnudagur, september 11, 2005

afsakið hlé

Sýndist vera kominn tími á póst. Mánaðarhlé er helst til langt hlé...
Skólinn er kominn á fullt (les: við erum að drukkna), ég er með hóp 1. árs verkfræðinema í stoðtíma í línulegri algebru og er komin í lúðrasveit. Hefði jafnvel farið í hljómfræði III ef ég væri bara ekki í skólanum á sama tíma og hún er kennd. Held það sé eins gott...
Ég keypti mér miða á 13 tónleika með Sinfó um daginn, 4 fyrir jól og 9 eftir jól. Hefði meira að segja getað valið fleiri, en ákvað að peningalega og tímalega séð væri þetta orðið ágætt. Þið ættuð endilega að kíkja á dagsskrána hjá þeim í vetur. Það er líka hægt að fá mjög góðan bækling (eiginlega bók) á skrifstofunni í Háskólabíói þar sem hægt er að lesa margt skemmtilegt um flytjendur, höfunda og tónverk vetrarins. Svo er jú ekki verra að fá um 30-50% afslátt út á að vera yngri en 26 ára... ;)
En nú þarf ég að skjótast út í búð eftir smjörva áður en pabbi fer á límingunum (hverju er ekki hægt að stressa sig yfir?). Svo furðulegt sem það er, þá fékkst ekki smjörvi í Nóatúni og við verðum að vona að okurbúllan 10-11 eigi hann til.

laugardagur, ágúst 06, 2005

ferðir og flakk

Sæl, hvernig hafið þið það? Vonandi glimrandi gott. Eins og alltaf. Ég sakna ykkar slatta mikið. Hef verið svo lítið heima og ekki komist í matarboð og partý og skemmtiferðir o.s.frv. Held ég hafi heldur aldrei ferðast jafn mikið um Ísland á einu ári. Vel við hæfi eftir langa fjarvist frá elsku gamla Fróni á síðasta ári.

Ég byrjaði á að segulmæla á Snæfellsnesinu í tvo daga. Þá tók við ættarmót í Ísafjarðardjúpi og að því loknu heilmikill flækingur um Hellisheiði og Hengil í smáskjálftamælingum. Næstu ferð var heitið á Kárahnjúkasvæðið (gist við Hraunaveitu og unnið undir Þrælahálsi), 5 daga segulmælingaferð þar sem allar Evrópureglur um vinnutíma voru þverbrotnar og svo endað með skoðunarferð um göng og stíflu í blíðskapar veðri. Áfram var segulmælt og nú í 3 daga í Skagafirði (Hrollleifsdal og Hjaltadal). Evrópureglum hent út um gluggann sem fyrr. Sú ferð endaði með tveim dýrðardögum hjá afa og ömmu á Akureyri og ferð á síldarævintýrið á Siglufirði með fjórum frændsystkinum. Enn er eftir ein segulmælingaferð í Eyjafjörðinn og aldrei að vita nema ég flakki eitthvað meira. Gaman gaman.

Og nú verð ég að hætta því við erum á leið upp í Mosfellsdal á grænmetismarkaðinn þar og að hlusta á upplestur á Gljúfrasteini. Sjáumst.

laugardagur, júlí 09, 2005

vinna, vinna - víhí!

Jamms, nú er ég eiginlega í smá vandræðum því mér finnst sumarvinnan svo svaaaakalega skemmtileg að ég gleymi mér algerlega, og tímanum þar með! Þetta er eiginlega að verða að áhugamáli ;P Bráðsmitandi yfirvinnuveira þarna á Orkugarði... Neinei, kannski ekki svo afskaplega "slæmt" en Kanarnir og vinnan á Henglinum eru mjög skemmtileg, forvitnileg, lærdómsrík... (ég vann í dag lau. og fer að hitta Jonathan, annan prófessoranna, á morgun sun. til að skoða forrit hjá honum, fyrir utan að þvo ÍSOR-bílinn sem við vorum á). Krakkarnir eru yfirsighrifnir af landslaginu, útsýninu og kindunum; ein mælistöðin er kölluð "Sheep". Aðrar sem nefna má er "Devil's Road" (lélegur vegur), "Fluffy Land" (mosinn yfir hrauninu), "Death Valley" (ekki hugmynd hvers vegna!), "Sigvaldi in the Rain" (Sigvaldi gekk þvers og kruss um svæðið í grenjandi rigningu með GPS tæki til að finna norður, því þau gleymdu áttavitanum), "High Way #1" (segir sig sjálft). Alls eru um 20 stöðvar dreifðar um Hengil/Hellisheiði og krakkarnir munu næstu 5 vikurnar hossast milli þeirra á pallbíl, eftir misgóðum vegum sem gerðir hafa verið til að koma upp háspennulínum frá Nesjavallavirkjun eða fyrir framkvæmdirnar við Hellisheiðarvirkjun, og safna saman gögnum og tékka hvort tækin virki vel. Svo er bara að skipuleggja starfið vel svo þau fái frídaga reglulega til að skoða sig um :)

Ferðinni austur var frestað fram á fim. eða fös. því segulmælirinn bilaði - hvað annað! Og auðvitað áttu framleiðendurnir ekki til annað tæki, hvorki til að lána né selja!!! Baah, mælirinn sendur vestur um haf með hraðpósti og kemur vonandi aftur á mið. því okkur (og Kárahnjúkafólkinu) liggur á. Borun og Skagafjörðurinn og margt fleira bíður. Annars er nokkuð skondið að ef mælingarnar á Kárahnjúkum takast vel, þá má vel vera að það þurfi ekki bara að mæla þennan 1,5km kafla, heldur heila 30km. Sem þýðir að við Tobba mættum alveg taka okkur frí frá skólanum og vinna eins og berserkir fyrir jól ;) Hehe, glætan!

mánudagur, júlí 04, 2005

Hengillinn

Þessa vikuna mun ég aðstoða hóp kennara og nemenda frá UNC (University of North Carolina) í smáskjálftamælingum á Hengilssvæðinu. Í dag rúntuðum við um svæðið og settum upp mælistöðvar. Aumingja fólkið vann víst líka í því í gær í öllu rokinu og rigningunni. Það er líka alveg dæmigert að þau höfðu séð myndir frá hópnum sem kom hingað í fyrra (voru í Kröflu) þar sem sást endalaus sól og blíða og þar sem veðrið var skaplegt fyrir hádegi í gær, áður en þau fóru af stað "út í náttúruna", þá héldu þau að það myndi ekkert rigna og urðu hundrennandidrullublaut og köld. Úgh! Í dag voru þau öll með regnjakka...

Þetta er reglulega skemmtilegt fólk og gott að vinna með þeim. Drepfyndið að byrja að vinna með þeim í morgun þegar einn eldri nemendanna, Matt, sýndi mér hvernig þau setja saman mælistöðvarnar. Það var svo hriiiiikalega "idiot proof" hvernig hann fór í gegnum þetta skref fyrir skref. Alveg skelfilegt. Hann afsakaði sig að vísu, en virtist samt þurfa á því að halda sjálfur því þótt öll tengi væru þannig að það var ekki hægt að setja þau í vitlausar innstungur, þá reyndi hann einstaka sinnum að stinga þeim inn á vitlausum stað ;) Svo kenndi ég Matt að segja "takk", "bless", "bjór" og "einn" (honum fannst mikilvægt að geta beðið um "einn bjór"). Sé til hvort hann muni þetta á morgun :) Svo tvítékkar, þrítékkar, krosstékkar og "ég veit ekki hvað"-tékkar fólkið hlutina. Soldið óskipulagt. En alveg svakalega flottur búnaður.

Á morgun munum við setja niður eina til tvær stöðvar, kannski færa nokkrar og ná í gögn úr öðrum. Nóg að gera. Kennararnir fara svo eftir u.þ.b. viku, á sun. og þri., en þá verða nemendurnir eftir (fram í ágúst) og sjá um að rúnta á milli mælistöðvanna, ná í gögnin og athuga hvort allt sé í lagi.

Upphaflega átti ég að vera með þeim í tvær vikur, en sú áætlun breyttist (eins og allar aðrar áætlanir á ÍSOR ;) ) því stór hópur mælingafólks frá ÍSOR er að fara á Kárahnjúka 11. júlí (hmm, það var alla vega dagsetningin síðast þegar ég vissi :P). Ragna, sem sér um að halda utan um tímasetningar verkefna og pota saman áætlunum, þorði held ég ekki að prenta út áætlunina sem gilti frá síðustu viku því hún var viss um að hún myndi breytast þá og þegar. Sem var svo auðvitað raunin: Inn rann nýtt verkefni. Einhvern tíma eftir Kárahnjúkaverkefnið (1 vika) förum við Tobba í rúma viku í Skagafjörðinn í segulmælingar. Það er sko nóg að gera hjá okkur í segulstússinu - mælingar, gagnavinnsla og skýrslugerð. Svo á Tobba líka að aðstoða einhvern rannsóknarhóp í Kröflu í júlí/ágúst en þar sem við vitum enn ekki með vissu hvenær sá hópur kemur og Tobba mun að öllum líkindum fara í eitt keppnisferðalag í viðbót í sumar (óvíst hvenær), þá er þetta allt fremur óljóst enn! Sumarvinnan mín er yndi :)

ættarmót

Um helgina var ættarmót hjá Gromsurum á Reykjanesi við Ísafjarðardjúp. Við fjölskyldan fórum ásamt afa og ömmu og svo komu einnig Gunna systir pabba, Summi maðurinn hennar og dóttir þeirra Dagga ásamt tveim börnum (5 og 1 árs), manni og peru (aupair). Þetta voru allir sem mættu af ættleggnum okkar (vantaði a.m.k. 20 aðra). Við Bjarnheiður reyndum að halda uppi heiðri græna leggsins á íþróttamóti Gromsara (snúsnú, reiptog, fótbolti ...) með hjálp Döggu í reiptoginu og dóttur hennar Diljár í snúsnúinu. En við tvær gátum varla myndað 8 manna grænt fótboltalið. Svo við sameinuðumst appaelsínugula leggnum. Þá vorum við 5. Fengum að lokum að láni nokkra hressa krakka í öðrum litum. "Appelsínugræna liðið með rauðu og ljósbláu ívafi" var afar skemmtilegt lið, því hjá okkur fengu krakkarnir sko að spreyta sig; engar fullorðinstruntur að valta yfir þau ;) Svo þegar úrslitaleikirnir nálguðust var farið að spara rauðu og ljósbláu krakkana og þá voru leikmannaskiptin svo tíð að ég veit ekki hvort ég sá alla sem léku fyrir okkur í síðasta leiknum. Á eftir skunduðum við svo í það sem ég held að sé stærsti heiti pottur landsins; 52x12,5 m laug/heitur pottur. Aaahhhhh.....

Á leiðinni suður hossuðumst við yfir Þorskafjarðarheiði (í stað þess að fara Hólmavíkur og Stranda megin) og komum við í sveitinni á Stað. Víííí :)

föstudagur, júní 17, 2005

Það er fallegt að sjá tunglið á vinstri hönd og sólina á þá hægri (eða öfugt) en mengunarskýið við sjóndeildarhring er ljótt.

Gleðilega þjóðhátíð! :)