þrír fjórðu og einn mánuður
Í dag er síðasti dagurinn sem ég ætla að þrjóskast við að reyna að vinna. Nokkuð viðeigandi því í dag er akkúrat mánuður í settan dag(!). Í næstu viku verð ég því komin í sumarfrí og get loksins spýtt í lófana með að klára blómateppið, litlu peysuna, lopapeysuna hennar Láru frænku, barnateppið úr blómateppisafgöngunum o.s.frv. Ekki það, ég hef sosum verið í hálfgerðu fríi þessa viku líka, en þó náð að gera eitthvað vinnutengt. Þarf "bara" að klára hlutina af í dag og koma þeim áfram á vinnufélagana...
Annars er náttúrlega ýmislegt búið að gerast síðan ég bloggaði þarna fyrir löngu. Það tókst að gera svona næstum allt fyrir Íslandsför. Einhvern veginn tókst okkur að troða öllu okkar hafurtaski ofan í tvær töskur, flugfreyjutösku og bakpoka án þess að vera með yfirvigt (í innrituðum farangri, það er að segja, ehemm... ;) ). Svo fór brottfarardagurinn í tiltekt og maraþonþrif á íbúðinni. Svo sannarlega hægt að mæla með því að fara í burtu í lengri tíma og leigja út íbúðina sína á meðan - leiðir til þess að afskekktustu krókar og kimar eru þrifnir og ótrúlegasta samansafn af (hálf)ónýtu dóti trillar út í ruslagám. Eina sem pirrar mig er að við náðum ekki að þrífa gluggana... En hvað um það, við lögðum af stað í rólegheitum og komumst stresslaust út á flugvöll tæpum 3 tímum fyrir brottför. Þurftum meira að segja að bíða í um korter þar til opnað var í farangursmóttökunni. Svo var nægur tími til að rölta um Kastrup, fá okkur að borða og svona. Við reyndumst svo heppin að fá eina sætaröð út af fyrir okkur í flugvélinni, svo ég gat kúrt mig niður í tvö sæti mest alla leiðina - orðin ansi þreytt eftir hasar daganna á undan. Þar sem ég lá þarna á bakinu skemmti krílið Sigurði með því að hendast um bumbuna og stinga hælunum lengst út í loftið. Gasalegt fjör ;)
Svo hefur tíminn farið í þetta venjulega, hitta fjölskylduna, borða skyr og fisk og lakkrís, fara í sund o.s.frv. ásamt því að vinna og koma sér smátt og smátt fyrir í íbúðinni hennar Bjarnheiðar systur (sem hún náði að skrifa undir kaupsamning á 6 klst áður en hún tók flugið yfir á meginland Evrópu!). Þetta er fallegasta íbúð, allt ytra byrðið nýuppgert (þ.e. útveggir, gluggar, svalir) en innréttingin og gólfefnið eru orðin ansi lúin, auk þess sem þarf að mála hana. En það er allt eitthvað sem má endurnýja og laga í rólegheitum allan ársins hring. Það var bara skverað inn rúmi, eldhúsborði, tveim stólum, eldhúsdóti og smá samansafni af húsgögnum í stofuna - svona þegar Sigurður var búinn að jafna sig að mestu á kvefinu sem tók á móti honum á Íslandi og ég var tekin við því...
Tengdó renndu í bæinn í gær í smá kaupstaðarferð áður en heyskapur fer á fullt skrið. Við fórum með þeim út að borða á Silfurtunglinu þar sem Maggi kærasti Hörpu systur Sigurðar kokkar. Ansi hreint notalegur veitingastaður. Það var rólegt þar í gærkvöldi, svo Maggi hafði tóm til að koma og sitja með okkur og rabba um stund. Ekki amalegt það og maturinn auðvitað sva-ha-ha-kalega góður. Mæli með þriggja rétta tilboðinu á Silfurtunglinu! (Sjávarréttasúpa, lungamjúkir lambaskankar og súkkulaðikaka með súkkulaðimús og hnetuís á bara 4000-kall.)
Jæja, best að koma sér að verki, svona ef ég á að ná að klára allt í dag! ;)














