29+30 ferningar
Já, þetta mjakast fram á við. Mesta furða að mér hafi tekist að hekla ferning þessa vikuna, það er búið að vera svo svakalega mikið að gera. Við erum að leggja lokahönd á grein, sem er nú hér um bil næstum alveg að verða tilbúin til að senda inn til birtingar. Svo er bara að sjá hvort einhver vilji birta þetta fyrir okkur. Ég efast reyndar ekki um að það takist einhvers staðar, það er bara spurning hversu ofarlega við náum að komast í goggunarröð tímaritanna.
Bumban vex út eins og nefið á honum Gosa. Ég tilkynnti Sigurði í morgun að nú fengi hann mikið ábyrgðarhlutverk: Að segja mér hvenær eru komnir blettir á bolinn minn fyrir neðan "bumbusjóndeildarhring"! Eitthvað leist honum reyndar illa á starfið, var snöggur að bjóðast til að kaupa handa mér spegil ;) Tsk-tsk-tsk, kauði ekki lengi að gera tilraun til að firra sig ábyrgð...
Lakkrísinn sem pabbi kom með hverfur hratt. Skuggalega lítið eftir. Auðvitað eiga óléttar konur ekki að borða of mikinn lakkrís (passa blóðþrýstinginn) og Sigurður lætur ekki sitt eftir liggja í aðstoðinni við að láta freistingarnar hverfa. Það er ábyrgðarhlutverk sem engin þörf er að skorast undan :D
1 ummæli:
Teppið er mjög fallegt og mér finnst nú bara skrítið ef þú ert búin að fá að smakka lakkrísinn, en gott að hann fær nóg að borða :)
Skrifa ummæli