miðvikudagur, desember 21, 2011

gluggagægir


Tíundi var Gluggagægir,
grályndur mann,
sem laumaðist á skjáinn
og leit inn um hann.

Ef eitthvað var þar inni
álitlegt að sjá,
hann oftast nær seinna
í það reyndi að ná.


Jólasveinasnatt út um borg og bí lýsir deginum vel. Við komumst ekki einu sinni í sund (agalegt!) en því var fórnað fyrir smá heimsókn í Sigtúnið til afa og ömmu og ekki hægt að sjá eftir því. Ég fór líka og hitti vinkonurnar úr MH á Frú Berglaugu sem var voða kósí og æðislegt að hitta allar stelpurnar aftur :) Það eru barasta mörg ár síðan við hittumst síðast allar í einu og löngu kominn tími á endurfundi. Þar gafst gott tækifæri til að dreifa jólakortum ársins, þ.e. prjónuðum jólakúlum fylltum með vatti. Við komumst að því að kúlurnar má nota til ýmislegs annars en að hengja upp á jólatré, þær virkuðu t.d. sem ágætis stressbolti ;)

þriðjudagur, desember 20, 2011

bjúgnakrækir


Níundi var Bjúgnakrækir,
brögðóttur og snar.
Hann hentist upp í rjáfrin
og hnuplaði þar.

Á eldhúsbita sat hann
í sóti og reyk
og át þar hangið bjúga,
sem engan sveik.



Við flugum heim á leið (hitt heim, sko) án tiltakanlegra seinkana, í fyrsta skipti í langan tíma - víhú! Reyndar stóðum við úti á strætóstoppistöð og horfðum á vagninn koma þegar ég mundi að, úbbsasí, íslenska sim-kortið mitt lá ennþá í náttborðsskúffunni. Það var ekki annað að gera en fá lykilinn hjá Sigurði, hlaupa í spretti til baka og ná í kortið og bruna svo til baka aftur. Næsti vagn var akkúrat að renna að þegar ég kom skeiðandi svo ég gat viefað í Sigurð að hann mætti endilega stoppa vagninn, ég væri aaaalveg að koma. Þrátt fyrir þetta náðum við lestinni í tæka tíð og allt gekk eins og smurt eftir þessa brösulegu byrjun. Og það var náttúrlega ekkert annað en yndislegt að koma heim í snjó og faðm fjölskyldunnar og fá ógurlega góðan grillaðan silung að borða og drekka íslenskt vatn með :)

mánudagur, desember 19, 2011

skyrjarmur


Skyrjarmur, sá áttundi,
var skelfilegt naut.
Hann hlemminn o´n af sánum
með hnefanum braut.

Svo hámaði hann í sig
og yfir matnum gein,
unz stóð hann á blístri
og stundi og hrein.



Eldhúsið er fullt af hrærivél! Við sem sé keyptum okkur hrærivél fyrir tæpum tveim vikum síðan. Hún kom til Málmeyjar fyrir viku síðan en pósturinn þurfti að sortera pakkann einum 6 sinnum (var víst vitlaust merktur af vefsölunni og svo var hann þar að auki 3.7 kg umfram 20 kílóin). Síðan leið og beið og ekkert gerðist síðan á fimmtudag. Sigurður ákvað að kíkja út í póstafgreiðslu í kvöld og viti menn, kassinn var kominn, það hafði bara gleymst að skanna hann inn í kerfið... Þetta átti greinilega ekki að ganga ;) En inn í eldhús komst hann fyrir rest og þegar innihaldið tíndist úr honum smátt og smátt fór Sigurður að æja og óa, þetta tók allt svo mikið pláss! Ég ætla mér samt að halda því fram að það sé ekki hrærivélin og fylgihlutirnir sem séu stórir og plássfrekir - eldhúsið er náttúrlega lítið ;)

sunnudagur, desember 18, 2011

hurðaskellir


Sjöundi var Hurðaskellir,
- sá var nokkuð klúr,
ef fólkið vildi í rökkrinu
fá sér vænan dúr.

Hann var ekki sérlega
hnugginn yfir því,
þó harkalega marraði
hjörunum í.




Jólasveinarnir virðast koma í þrenndum þetta árið. Eða ég man bara eftir þeim þriðja hvern dag ;) Ég mundi reyndar eftir Askasleiki í gær, en því miður var ég ekki í nánd við tölvu á því augnabliki (n.t.t. sitjandi í strætó). Útidyrahurðin skelltist nokkrum sinnum í dag í tilefni komu Hurðaskellis, eða þess að Sigurður skúraði og bónaði gólfið á hæla mín og ryksugunnar í gær. Við loftuðum hraustlega út í gær, en bónlyktin var ennþá svo sterk í morgun að ég ákvað að opna út á svalir og stóra stofugluggann og útidyrahurðina. Sigurði leist ekkert á þessa tilraun mína til að breyta íbúðinni í ísskáp og flúði út í búð að kaupa sér mjólk með morgunmatnum... Dagurinn hefur annars liðið í ýmsu jólastússi heima við og aðventukertin fjögur eru brunnin langleiðina niður í botn. Það snjóaði meira að segja það mikið í dag að snjórinn festist á jörðinni í fyrsta skipti þennan veturinn. Á morgun er það síðasti vinnudagurinn fyrir jólafrí - jibbí! :)

laugardagur, desember 17, 2011

askasleikir


Sá sjötti, Askasleikir,
var alveg dæmalaus. -
Hann fram undan rúmunum
rak sinn ljóta haus.

Þegar fólkið setti askana
fyrir kött og hund,
hann slunginn var að ná þeim
og sleikja á ýmsa lund.

föstudagur, desember 16, 2011

pottaskefill


Sá fimmti, Pottaskefill,
var skrítið kuldastrá.
- Þegar börnin fengu skófir
hann barði dyrnar á.

Þau ruku upp, til að gá að
hvort gestur væri á ferð.
Þá flýtti' ann sér að pottinum
og fékk sér góðan verð.

fimmtudagur, desember 15, 2011

þvörusleikir


Sá fjórði, Þvörusleikir,
var fjarskalega mjór.
Og ósköp varð hann glaður,
þegar eldabuskan fór.

Þá þaut hann eins og elding
og þvöruna greip,
og hélt með báðum höndum,
því hún var stundum sleip.



Það er heldur mikið að gera þessa dagana. Virðist ekki vera tími til nokkurs annars en sofa, borða, vinna/læra ... og sinna öllum tómstundunum ;) Kóræfingar, badminton og -skipulag, saumó og alls kyns jólastúss hafa hertekið dagana þessa vikuna. En í næstu viku er bara einn vinnudagur og svo jólafríííí! :D

miðvikudagur, desember 14, 2011

stúfur



Stúfur hét sá þriðji
stubburinn sá.
Hann krækti sér í pönnu,
þegar kostur var á.

Hann hljóp með hana í burtu
og hirti agnirnar,
sem brunnu stundum fastar
við barminn hér og þar.



Tjah, þegar maður er farinn að gleyma uppáhaldsjólasveininum sínum, þá er ástandið orðið æði alvarlegt. Barasta aðeins of mikið að gera, sjáið þið til...

þriðjudagur, desember 13, 2011

giljagaur


Giljagaur var annar,
með gráa hausinn sinn.
- Hann skreið ofan úr gili
og skauzt í fjósið inn.

Hann faldi sig í básunum
og froðunni stal,
meðan fjósakonan átti
við fjósamanninn tal.

mánudagur, desember 12, 2011

stekkjastaur



Stekkjastaur kom fyrstur,
stinnur eins og tré.
Hann laumaðist í fjárhúsin
og lék á bóndans fé.

Hann vildi sjúga ærnar,
- þá var þeim ekki um sel,
því greyið hafði staurfætur,
- það gekk nú ekki vel.



Jæja, þótt ég hafi ekki bloggað neitt síðan jólasveinarnir tíndust inn í fyrra, þá er ekki annað hægt en að hleypa þessum elskum að á nýjan leik ;) Mér finnst óttalega lítið að frétta héðan, en væntanlega er það heilmikið þar sem ég hef ekki bloggað í heilt ár... Lífið gengur sinn vana gang með námi/starfi, kórsöng, badmintonspili, handavinnu og hversdagslegu sýsli. Jú, reyndar smávegis jóla jóla í bland þessa dagana :) Aðventukertin hafa verið tendruð samviskusamlega í morgunhádegismatnum síðustu þrjá sunnudaga, 105 súkkulaðibitakökur voru bakaðar fyrir rúmri viku síðan (nokkur stykki ennþá til, þrátt fyrir góðar útrýmingartilraunir af hálfu Sigurðar), jólagjafirnar eru langflestar ákveðnar og tilbúnar eftir því sem hægt er og jólatrjákrílið er alveg að fara að komast upp á sinn koll. Allt á réttri leið.