þriðjudagur, júlí 17, 2007

komin heim fyrir viku...

... og er þá ekki kominn tími til að láta heyra af sér? Hugsa það.

Hóf kapphlaup við nóttina að kvöldi þriðjudagsins 10. júlí og rústaði henni. Við náðum meira að segja í skottið á sólinni sem skein sterkt í augun uppi í háloftunum en heldur mildar þegar við vorum lent, tæpum hálftíma fyrir miðnætti. Fékk hjartanlegar móttökur frá langþráðum Sigurði sem beið mín fyrir utan tollinn. Komum í bæinn um eittleytið og gæddum okkur á brauði frá mér (afgangs nesti) og súkkulaðiköku og ís. Kjamms-mjamms-mjúmms. Sváfum fram eftir í samræmi við langa vöku og mættum í vinnu daginn eftir, eiginlega rétt mátulega fyrir hádegismatinn ;) Síðan þá hafa dagarnir liðið við símtöl og heimsóknir til ættingja og vina, dagsferð með hinni þýsku Friederike Koch (83 ára, hörkukerling ;) ) til Borgarness og Reykholts, töskutæmingu, verslunarferð, gönguferð upp á Esju, kökuát (pabbi átti afmæli í fyrradag) og grill. Algert sældarlíf sem sé.

Það er gott að vera komin heim.

sunnudagur, júlí 08, 2007

skeyti

Ég gefst upp. Blogg kemst barasta ekki fyrir í þéttpakkaðri síðustu-daga-dagsskrá! Svo hér fáið þið markverða atburði síðustu daga í símskeytastíl:

Dásamlegt grill með Reiner vinnufélaga, konunni hans, fjölskyldu og vinum laugardag fyrir viku. Til Berlínar að hitta Kristínu, Huga, Lóu og Unu og Önju, Anze og Mika vini þeirra fyrri part sunnudags, með gómsætum morgdegismat í garðinum Friedrichshain og labbitúr. Fór á flautu/orgel barokktónleika hér í Potsdam klukkan fjögur. Bergsýnið mitt hegðar sér vel í mælingunum og vekur um leið upp skemmtilegar spurningar. Fór á sinfóníutónleika á fimmtudagskvöldið (klukkan hálf átta, bara alveg eins og á Íslandi ;) ). Orient&Occident eftir Arvo Pärt og 9. sinfónía Beethovens (Óðurinn til gleðinnar). Mjög góðir tónleikar. Fór í megaverslunarferð til Berlínar og hér í Potsdam í gær. Keypti góða gönguskó, tjaldbotnsdúk, göngusokka, buff-hárklút, buxur í H&M, 55+10 lítra bakpoka og regnkápu fyrir hann. Ansi stolt af góðu dagsverki. Hitti Friðrik Hauk frænda og Angeliku konuna hans núna á eftir og túristast með þeim hér í Potsdam. Við fáum eina sólskinsdaginn í langan tíma til þess; það rigndi síðustu daga og mun rigna næstu daga. Ég gleymdi örugglega að segja frá einhverju.

Ég kem heim eftir rúmlega tvo og hálfan sólarhring [hér sé broskall sem dansar trylltan gleðidans]

föstudagur, júlí 06, 2007

er ekki í lagi???

Á hvaða tímum og í hvaða heimi lifum við? Dómskerfið virðist vera gersamlega úr takt við raunveruleikann. Og reyndar sjálft sig, því ef mig misminnir ekki þá var gæsluvarðhald yfir þessum manni framlengt á þeim rökum að hann gæti talist hættulegur umhverfi sínu. Ég hef sjaldan verið jafn hneyksluð!

mánudagur, júlí 02, 2007

hláturinn lengir lífið

Meðan ég vinn enn að því að koma út pistli um atburði helgarinnar, þá getið þið lengt lífið með þessu myndbandi hér. Já já, níu mínútur er fremur langt, en þær margborga sig í þessu tilfelli ;)

fimmtudagur, júní 28, 2007

regnbuxur

Ég er farin að sjá eftir að hafa skilið regnbuxurnar mínar eftir heima á Íslandi. Eftir síðasta sumar datt mér bara ekki í hug að það ætti eftir að kólna niður í íslenskt hitastig hérna og rigna dag eftir dag. Ekki að ég hafi neitt á móti veðurfarinu hérna í ár. Sakna bara regnbuxnanna til að njóta þess enn betur ;)

Annars langar mig til að benda þeim á þessa minningargrein, sem ekki hafa lesið hana.

sunnudagur, júní 24, 2007

allt í sóma

Það hefur rignt ansi duglega síðustu daga. Með hæfilegum hléum, að sjálfsögðu. En ég er búin að finna trikk til að lenda ekki í dembu ef ég er einhvers staðar að hjóla: Því betur sem ég geri ráð fyrir því að lenda í dembu (hjóla í stuttbuxum en engum sokkum, hafa regnstakkinn til taks, setja regnkápuna yfir bakpokann, ...), þeim mun ósennilegra er að það lendi nokkur dropi á mér. Ég hjóla yfirleitt tvisvar á dag hingað upp í GFZ og niður aftur, fyrir utan ferðir á markað og hingað og þangað svo þetta er margsannað ;) Hef t.d. aldrei blotnað jafnrækilega og þegar ég var viss um að enn væru 1-2 klst í rigninguna - hefði getað undið nokkra desilítra úr sokkunum og gallabuxunum. Var sem betur fer í grennd við tré þegar sturtan byrjaði, svo ég gat sveiflað mér í regnjakkann í snatri í smá skjóli, annars hefðu hár og bolur lagt um lítra til. En regnskýjabakkarnir virðast sem sé tékka á því hvernig Líney Halla er klædd: Ef ég fer út og er í síðbuxum og sokkum og illa undirbúin fyrir regn, þá svoleiðis bruna þau á staðinn og henda sér niður. Ef ég fer út og er búin undir rigningu, þá geyma þau yfirleitt að heimsækja jörðina þar til ég er komin í skjól, dropa svo lítið að það gufar bara strax upp af manni aftur eða sleppa því bara alveg. Ef ég lít út, sé skýin og ákveð að vera inni meðan þau skola húsin, þá barasta móðgast þau og hendast framhjá í þeytingskasti. Eins og ég segi, margsannað.

En já, þessu regni fylgir óneitanlega mun þægilegra hitastig. Eiginlega alveg eins og ég vil hafa það :) Hef komist að skokka þegar ég vil eiginlega alla þessa viku, með einni undantekningu þegar það var of heitt. Í dag er mátulega heitt, en sólin heldur sterk. Lét mig samt hafa það enda með nýja leynivopnið mitt í höndunum: flaska með smá slurk af powerade svaladrykk. Ótrúlegt hvað það reddar miklu. Hef engan áhuga á fleiri skokktúrum sem enda næstum á því að ég slagi síðustu metrana af vökvaskorti og ofhitnun :P

Reyndar líður mér svolítið eins og á Íslandi þessa dagana, eða reyndar síðustu tvær vikur. Það hefur nefnilega ekki verið hægt að treysta á veðurspána sem virðist þar að auki breytast á a.m.k. 6 klst fresti. Greinilega erfitt að vera veðurfræðingur í Brandenburg þennan júnímánuð ;) Það er heldur ekki á neitt að treysta þegar maður er utandyra - glaðasólskin, þá hellidemba og jafnvel haglél í um klukkustund, sólskin á ný og svo ný demba þegar gangstéttirnar eru orðnar þurrar - og bakpokinn minn því fullur af fötum allt frá stuttbuxum yfir í flíspeysu og ullarsokka. Bara allt eins og heima ;)

fimmtudagur, júní 21, 2007

veðmál

Hér á GFZ finnst fólki gaman að veðja. Og ef það er engin heimsmeistarakeppni til að veðja um, nú þá er bara fundið eitthvað annað til að veðja á. T.d. hversu mikinn þrýsting þurfi til að einhver sprunga opnist. Erum við að tala um samansafn af jarðeðlis- og jarðfræðingum? Já! ;) Veðpotturinn bauð svo upp á bjór, rauðvín og grillmat. Kvöldið í kvöld var frátekið fyrir þá veislu. Í dag hefur rignt nær stanslaust frá því fyrir hádegi. En fyrst það stytti upp þannig að hægt var að kveikja upp í grillinu, þá var ekkert til að stöðva sælkerana og bara staðið yfir grillinu með regnhlíf ;) Fólkið hér er nú alger snilld :D

mánudagur, júní 18, 2007

trallarí

Já, já, já - heldur langur tími liðinn frá síðasta pistli. En hei! hann var líka ansi langur ;) Annars gerðist svo lítið markvert að það var ekki frá neinu að segja en svo varð kúvending þegar allt í einu gerðist svo margt frásagnavert að það var ekki tími til frásagnar! Byrjum á byrjuninni...

Á föstudag, skömmu eftir hádegismatinn, bauð ég öllum í jarðhitadeildinni hérna í GFZ (deild númer 5.2) upp á vel verkaðan skyrhákarl frá Bjarnarhöfn og íslenskt brennivín, harðfisk (ýsu og steinbít) frá Flateyri (verkun Halldórs Mikkaelssonar er langbest, bara svo þið vitið það ;) ) ásamt ekta íslensku smjöri og einnig djúpur. Hann afi í Sigtúni hefði sko verið stoltur að sjá þetta veisluborð! Og hákarlsátið gekk framar vonum, meir en helmingur þeirra sem var á staðnum þennan dag reif upp hugrekkið og skellti í sig einum bita :) Enda benti ég þeim á að ef þau borðuðu gorgonzola-ost (þ.e. gráðaost) þá hefðu þau enga afsökun ;) Harðfiskurinn gerði mikla lukku, etinn af öllum sem yfir höfuð borðuðu fisk, og auðvitað slógu djúpurnar í gegn.


Um kvöldið kom svo Bjarnheiður blaðskellandi frá Freiberg til að heimsækja litlu systur yfir helgina. Ég skildi hana reyndar aðeins eftir yfir námsbókunum meðan ég skaust til að mæla hérna upp frá og rabba á skype. Kom svo niður eftir með hákarlinn og harðfiskinn. Þá sat daman í náttfötunum inni í herbergi og búin að bursta tennur. En þegar um hákarl er að ræða, þá má nú alveg bursta tennurnar barasta aftur. Svo settist hún inn í eldhús og góflaði í sig hákarlinum. Kostuleg sjón, ég skellihló :D Það fyndnasta var að ég var búin að segja fólkinu í GFZ að það væri eins gott að ég hefði boðið þeim upp á íslensku veitingarnar þennan dag, því systir mín væri örugglega búin með hákarlinn fyrir lok helgarinnar. Þarna sat hún svo og næstum því kláraði hann á einu bretti! :D


Nújæja, á laugardegi brölluðum við systur ýmislegt. Úðuðum t.d. í okkur einu kílói af jarðarberjum, fórum í skoðunarferð um Potsdam ásamt félagi erlendra nema við TU BA Freiberg (skólann hennar Bjarnheiðar) sem voru í heimsókn þennan dag, sleiktum ís, röltum að Charlottenhof smáhöllinni til þess að komast að því að 20 manna hópur hefði bókað sig í síðustu skoðunarferðina þann daginn svo þetta var "ekki nema" indæll labbitúr í góða veðrinu og vorum svo þreyttar eftir daginn að í stað þess að gera leit að góðu veitingahúsi þá sigum við bara heim á leið og gerðum okkur gómsætt tómat-mozarella salat.


Á sunnudagsmorgni sat hin duglega Bjarnheiður yfir bókunum meðan ég mældi aðeins, pikkaði tölvupóst og tók einn stuttan skokktúr. Þá rukum við af stað að hitta Hlyn frænda, Kristínu, Huga, Lóu og Unu. Röltum með þeim í rólegheitunum í leit að Halensee (vatn í Berlín) en sáum það aldrei fyrir einhverjum ríkra manna villum, þangað til við vorum komin í garð íslenska sendiherrabústaðarins. Við þáðum sem sé boð íslensku sendiherrahjónanna í Berlín að gæða okkur á grilluðum SS-pylsum og flatkökum með hangikjöti ásamt öðrum Íslendingum í nágrenninu í tilefni þjóðhátíðardagsins. Það boð tókst prýðilega. Allir saddir og sælir, sólin skein, íslenskan flæddi um allt og forvitnir svanir og kviknakið fólk synti hjá (þessi nektarsundmenning í vötnum er víst ansi algeng hér í Þýskalandi).

Já, og svo skemmtilega vildi til að skáklið Laugalækjarskóla var þarna á ferðinni milli Póllands og Búlgaríu og þar með var náttúrlega Matti bróðir hennar Ástu og að auki hinn bróðir hennar hann Hjalti og Pétur pabbi þeirra. Ansi gaman að hitta svona óvænt fólk sem maður kannast meir en lítið við :) Boðið stóð milli þrjú og sjö en við Bjarnheiður stungum af rúmlega sex svo hún kæmist tímanlega af stað til Freiberg á ný (fékk sko bíl lánaðan hjá Matta). Það tókst allt, meira að segja að finna ódýra bensínstöð. Svo var alveg hrikalega einmanalegt eitthvað þegar systurskvettan var farin. Úffpúff. Það er alltaf gott að fá gesti, en leitt að kveðja þá...

En jamm, ég skreið snemma í ból eftir viðburðaríka helgi og svo var það bara vinnan og þetta venjulega í dag. Það rigndi meira að segja svo skemmtilega í morgun að þegar ég rölti hér milli bygginga í skóginum þá leið mér eins og þegar við vorum í sumarbústað í gamla daga og fórum í gönguferð út í skóg í gúmmístígvélum og regngalla í leit að sveppum. Minntist á þetta í hádegismatarspjallinu og að mig vantaði nú eiginlega bara kakókrús, þá væri þetta komið ;) Og viti menn! haldið þið ekki bara að hún Angela hafi stolist til að kaupa kakóbolla handa mér í lok máltíðar :D Meira að segja ágætis kakó þótt úr vél væri. Smjatt. Hún Angela er nú alger snilld ;)

sunnudagur, júní 10, 2007

löng vísindanótt

Milli 17 og 1 í gær var löng vísindanótt (Lange Nacht der Wissenschaften) hér í Berlín og Potsdam. Út um borg og bý stilltu fræðimenn upp kynningarbásum sýnum, plakötum og undratækjum, héldu fyrirlestra og röltu með almenning í kynnisferðir um vinnustaði sína. Ég hefði náttúrlega allra helst vilja geta skipt mér í a.m.k. þrennt. Hefði viljað kíkja í eðlis- og stærðfræðideildir Freie Universität Berlin, Humboldt Universität Berlin og Technische Universität Berlin. Ég náði bara síðasttalda háskólanum. Þar fyrir utan hefði verið mjög áhugavert að kynna sér allar hinar fræðigreinarnar... Hefði ég átt að ná að skoða allt sem ég hafði nokkurn áhuga á að sjá, þá hefði það tekið u.þ.b. mánuð. Það þurfti jú a.m.k. sólarhring til þess að lesa í gegnum alla dagskrána og spá og spekúlera í henni. Ég ákvað því fljótlega að einskorða mig við stærðfræði-, eðlisfræði og tölvunarfræði. Þar sem boðið var upp á fyrirlestur um skammtadulkóðun í TU ákvað ég því að kíkja helst þangað.

Eftir að hafa ákveðið að brjóta tæplega ársgamla reglu um að fara ekki inn til Berlínar í 30°C hita, settist ég inn í S7 lestina til að svitna í um 20 mínútur. Við dýragarðinn hoppaði ég fljótlega upp í vísindanæturstrætó og steig út á næstu stoppistöð. Elti þar örvar sem á stóð "Haus der Physik", þ.e. hús eðlisfræðinnar. Hús eðlisfræðinnar er stórt. Riiiisastórt. VR byggingarnar eru í mesta lagi 1/5 af þessu húsi. En þau eru glettilega lík. Steinsteypuklumpar með flísa- eða dúkalögð gólf (flísarnar rauðbrúnar), þar sem mynstrið af steypumótunum sést á veggjunum sem eru í mesta lagi málaðir ljósgráir. Er þetta einkenni allra bygginga þar sem eðlisfræði er kennd? Við erum greinilega stórhættulegur þjóðflokkur ;)

En eðlisfræðingarnir brugðust ekki. Áhugaverð plaköt og fyrirlestrar og svo náttúrlega nokkur herbergi þar sem alls kyns tilraunauppstillingar voru. Gaman að sjá þarna sömu uppstillingar og eru venjulega heima. M.a. litla segulinn sem svífur fyrir ofan skífu af ofurleiðara og ég er búin að kynna fyrir gestum og gangandi á a.m.k. þrem kynningum. Gífurlega gaman að láta útskýra hann fyrir sér, alveg niður í kjarna og rafeindir. Aumingja strákurinn sem útskýrði þetta fyrir mér, vissi ekkert hvað hann átti að halda þegar ég kinkaði endalaust kolli sama hvaða hugtök hann nefndi: varmahreyfingar - aha; kristalbygging - aha; kjarnar og lausar rafeindir - aha; cooper-par - aha; fermíeindir og bóseindir - já þannig!; rafsegulfræði - jú ég ætti nú að kannast við hana... ;) Held hann hafi nú haft gaman af þessu, strákgreyið. En hann varð held ég feginn þegar ég þurfti að drífa mig á fyrirlestur, hehe. Svo var þarna nóg af fljótandi köfnunarefni, lofttæmiklefi, seglar, rennandi vatn, grænir, rauðir og bláir leisar, ljósgreiður, sveiflandi strengur, kúplaðir pendúlar, ... Doijngs-doijngs gaman ;D

Ég náði að fara á þrjá fyrirlestra. Einn um nýjustu tæknina við gagnadiska. Vinnuhóp/fyrirtæki við TU Berlín hefur tekist að búa til disk sem getur geymt 500 GB af gögnum. Já, hálft terabæt! Takmarkið er að ná upp í 1 TB. Þegar þau byrjuðu trúðu þau því ekki sjálf að þeim tækist að kreista svona mikið á einn lítinn disk. En svei mér, við erum alltaf að koma sjálfum okkur og öðrum á óvart ;) Næsti fyrirlestur var um skammtadulkóðun. Ákaflega gaman þar. Tengsl TU við þá grein eru þau að við TU er verið að þróa ljóseindagjafa. Þ.e. græju sem gefur frá sér eina og eina ljóseind frá sér í einu eftir óskum. Til þess eru notaðir skammtapunktar í hálfleiðurum. Segir þetta ykkur eitthvað? Tæpast. Hann útskýrði þetta ekki nánar þannig að fyrir mér eru þetta bara tvö hugtök sem ég kannast ágætlega við. Enda hugsa ég að varla nokkur annar en ég og fyrirlesarinn hafi almennilega vitað hvaða fyrirbæri ljóseind er... Síðasti fyrirlesturinn sem ég sótti (eftir að hafa kíkt í hús stærðfræðinnar, sjá fyrir neðan) var um almyndir (hologram). Það var sérstaklega áhugavert því það eru einmitt almyndir sem eru notaðar við nýju tæknina í gagnadiskunum. Tæknin er hreinlega kölluð 4D-bits, þ.e. fjórvíðir bitar(!) Það eru sem sé almyndirnar sem gefa fjórðu víddina. Stórsniðugt allt saman.

Eini ókosturinn við hús eðlisfræðinnar var að þar fékkst ekkert almennilegt til að eta. Gekk út í leit að döner-sölustað en rambaði þá á hús stærðfræðinnar í staðinn. Þar fékkst m.a. stórt rúnstykki með osti, káli og tómat. Kjamms. En stærðifræðingarnir ollu mér eiginlega vonbrigðum. Fyrir utan að í rýminu fyrir utan kennslustofurnar var svo hrikalega sterk sótthreinsiduftslykt að ég held ég hafi sótthreinsað nefholið niður í kok áður en ég flúði þaðan. Jakk. En ég nældi mér þar í stærðfræðiþrautir til að glíma við á leiðinni heim.

Hvað segir það okkur svo að TU Berlín hafi sérhús fyrir eðlisfræði og sérhús fyrir stærðfræði sem hvort um sig myndi rúma um fimm VR byggingar? VR byggingar sem eru fyrir verkfræði- OG raunvísindadeild??? Jú, Háskóli Íslands er oggulítið lítill ;)

Ég fór aftur til Potsdam um tíuleytið. Leit aðeins á kynningarbásana hér á Telegrafenberg, þar sem ég vinn. Kíkti þá á mælitækin og rölti svo á skrifstofuna til að rabba við Sigurð þar til ég nánast sofnaði ofan í lyklaborðið rúmlega tólf. Einstaklega góður dagur :)

mánudagur, júní 04, 2007

það er blessað veðrið

Jóhó, það er kannski kominn tími á aðeins fleiri fréttir? Annars er nú ekki mikið fréttnæmt hér. Mælingarnar komnar vel í gang en ganga samt í augnablikinu ósköp hægt, eins og þeirra eðli er. Veðurguðirnir eru búnir að vera mjög vingjarnlegir við mig en ætla að gera vel við hann Ali (frá Íran, vinnur hér við GFZ) undir lok vikunnar. Litlum 30°C og glampandi sól spáð fyrir og um helgina. Obbo-obbo-sí :P Ekki gott fyrir mig. En ég skal halda þetta út fyrir hann Ali, þetta er fínasti karl. Síðasta sumar fannst honum náttúrlega alveg dásamlegt - 30°C og sól viku eftir viku! ;D Hehe, einhvern tíma kom hann til Íslands í ágúst þegar voru undir 10°C og rigning mestan tímann. Hann gekk þá um í öllum þeim fötum sem hann hafði með, líka náttfötunum!

Á laugardaginn fór ég m.a. á markaðinn og í H&M og sameinaði svo langan og góðan hjóltúr og kynnisferð í Stern Center verslunarmiðstöðina. Þrátt fyrir ágætis kort sem ég fékk lánað hjá Gudrun, þá tókst mér náttúrlega að villast á leiðinni í Stern Center. Tók risastóran sveig og hjólaði eftir stígum sem tæpast teljast til hjólastíga... En það var nú þegar allt kemur til alls indælt. Valdi aðra og auðveldari leið fyrir heimleiðina og beygði þá bara einu sinni vitlaust. Var þó fljót að uppgötva þá vitleysu, enda komin í góða æfingu við það ;) Tók svo sunnudaginn í að gera bókhald, pikka eitthvað inn í dagbók, vafra á netinu, kjafta á MSN og skype og vera fremur löt almennt. Dásamlegt :)

Bestu kveðjur,
ykkar Líney Halla í síðbuxum (jei! ;) )