laugardagur, desember 24, 2005
föstudagur, desember 23, 2005
ketkrókur
Ketkrókur, sá tólfti,
kunni á ýmsu lag. -
Hann þrammaði í sveitina
á Þorláksmessudag.
Hann krækti sér í tutlu,
þegar kostur var á.
En stundum reyndist stuttur
stauturinn hans þá.
Skatan hjá afa og ömmu í Sigtúni brást ekki frekar en fyrri Þorláksmessurnar. Ég fæ sko ekki kvef um jólin, hann passar að hafa skötuna nógu svakalega kæsta hann afi ;)
Svo hentist ég til að hjálpa Unni (MH vinkonu) að bera dótið sitt upp í nýju íbúðina sína á 3. hæð á stúdentagörðunum. Ágæt líkamsrækt það og með þeim skemmtilegri ;D Til hamingju með íbúðina Unnur! Hvað heitir annars íbúðarfélaginn?
En nú er fram undan tiltekt og Laugavegsrölt á Þorláksmessukvöldi :)
fimmtudagur, desember 22, 2005
gáttaþefur
Ellefti var Gáttaþefur,
- aldrei fékk sá kvef,
og hafði þó svo hlálegt
og heljarstórt nef.
Hann ilm af laufabrauði
upp á heiðar fann,
og léttur, eins og reykur,
á lyktina rann.
*geeeisp* buxur, sokkar, peysa..., hm hvar er peysan? æjá, þvottahúsið, sturta í gær, ... *geisp*, náttbolurinn... á hann ekki að fara í óhreint núna? ég svaf út svo þá er laugardagur..., nei haha það er fimmtudagur! - ég er í jólafríi :-D [hér hljómi gleðisöngur MH (þótt kristilegt innihald hans komi gleði minni lítið við)]
Farin til ömmu að ná í laufabrauðsjárnið og mót fyrir gyðingakökurnar :)
miðvikudagur, desember 21, 2005
gluggagægir
þriðjudagur, desember 20, 2005
bjúgnakrækir
Níundi var Bjúgnakrækir,
brögðóttur og snar.
Hann hentist upp í rjáfrin
og hnuplaði þar.
Á eldhúsbita sat hann
í sóti og reyk
og át þar hangið bjúga,
sem engan sveik.
Mamma bakaði smákökur í gær. Namminamminamm :) Ég eeeeelska súkkulaðibitakökurnar hennar.
Svo eftir prófið á morgun, þegar ég er búin að hrópa svo sem eitt 'húrra!' og kjafta einhvern helling, þá ætla ég að drífa mig heim og búa til deig í gyðingakökur. Hef sérhæft mig í þeim síðustu 3 árin eða síðan ég spjallaði lengi við ömmu í Sigtúni um jólasmákökurnar og komst að því að þetta væru uppáhaldssmákökurnar hans pabba. Amma var þá hætt að baka þær, enda heilmikið maus og nóg af öðrum ómissandi kökursortum til að baka, svo ég ákvað að spreyta mig á þeim. Þið hefðuð átt að sjá glampann í augunum hans pabba þegar ég sagðist ætla að baka gyðingakökur. Jiiiminn, ég er svo góð dóttir ;) Haldið þið ekki að amma hafi svo líka bakað þær eftir rabbið okkar, svo pabbi hefur verið sérstaklega hamingjusamur síðustu þrjú jól, smákökulega séð, og fengið kynstur af gyðingum á báðum stöðum :D
mánudagur, desember 19, 2005
skyrjarmur
sunnudagur, desember 18, 2005
hurðaskellir
Sjöundi var Hurðaskellir,
- sá var nokkuð klúr,
ef fólkið vildi í rökkrinu
fá sér vænan dúr.
Hann var ekki sérlega
hnugginn yfir því,
þó harkalega marraði
hjörunum í.
Prófahárgreiðslan í ár er flétta. Ákaflega þægileg og gefur afsökun fyrir hléi á um klukkutíma fresti því hárið á mér er svo sleipt að það rennur úr fléttunni fljótt aftur.
Bjarnheiður lauk prófum í gær og er þotin norður til afa og ömmu. Pabbi bakaði sitt ljúffenga jólahreindýrapatè í snatri í gærkvöldi svo Bjarnheiður gæti tekið eitt stórt fat með sér fyrir ættingjana þar. Þau mega ekki svelta, oseiseinei ;) Hér angar því allt í dýrindis kæfulykt svo ég er gloooorsoltin ;P
laugardagur, desember 17, 2005
askasleikir
Sá sjötti, Askasleikir,
var alveg dæmalaus. -
Hann fram undan rúmunum
rak sinn ljóta haus.
Þegar fólkið setti askana
fyrir kött og hund,
hann slunginn var að ná þeim
og sleikja á ýmsa lund.
var alveg dæmalaus. -
Hann fram undan rúmunum
rak sinn ljóta haus.
Þegar fólkið setti askana
fyrir kött og hund,
hann slunginn var að ná þeim
og sleikja á ýmsa lund.
Mikið var gaman að sjá snjóinn í morgun. Ég dauðvorkenni krökkunum hérna fyrir sunnan; það er varla nokkurn tíma almennilegur snjór hérna lengur. Í minningunni eru margir gleðidagar við snjóhúsa-, snjókarla- og snjókerlingabyggingar, snjókast og skíða- og sleðaferðir í Dalbrautar- og Ártúnsbrekkurnar. Ég held það hljóti að hafa verið meiri snjór þá, enda hefur loftslag hlýnað, eða sitja bara snjódagarnir eftir í kollinum? Man reyndar eftir einu ári þegar ég var orðin mjög óþolinmóð að fá almennilegan snjó í október og mamma þurfti þó nokkra ákveðni til að sannfæra mig um að ég gæti fyrst farið að búast við almennilegum snjó í nóvember. Nú geta krakkarnir ekki búist við honum fyrr en í janúar eða febrúar!
Hérna er ég 6 ára í garðinum hjá afa og ömmu í Ásabyggð (nú býr Hlynur og fjsk þar); voða stolt við litla snjókarlinn minn - mamma var ekki alveg viss, en ég sýndi henni að það var sko víst nógur snjór til að gera snjókarl! Nóg af þrjósku í litlum kroppi ;)

föstudagur, desember 16, 2005
pottaskefill
Sá fimmti, Pottaskefill,
var skrítið kuldastrá.
- Þegar börnin fengu skófir
hann barði dyrnar á.
Þau ruku upp, til að gá að
hvort gestur væri á ferð.
Þá flýtti' ann sér að pottinum
og fékk sér góðan verð.
Í dag hefði Szymon Kuran, fiðluleikari, tónskáld, málari, þúsundþjalasmiður, nostrari og snillingur almennt, orðið fimmtugur. Blessuð sé minning hans.
fimmtudagur, desember 15, 2005
þvörusleikir
Sá fjórði, Þvörusleikir,
var fjarskalega mjór.
Og ósköp varð hann glaður,
þegar eldabuskan fór.
Þá þaut hann eins og elding
og þvöruna greip,
og hélt með báðum höndum,
því hún var stundum sleip.
Ég ætla norður til afa og ömmu á Akureyri eftir áramótin. Fer væntanlega 3. janúar. Get þá líka heimsótt Hlyn frænda og fjölskyldu í Ásabyggð og séð nýju frænkuna, hana Unu Móeiði (fæddist 11. nóvember) og kannski litið við á Ásveginum til Halls frænda og fjölskyldu. Svo er nefnilega skíðaferð Stiguls á Akureyri helgina 6.-8. janúar, svo þetta smellpassar :) Og nú vantar mig bara far norður ;)
----------- 14:37:00 -------------
Bjarnheiður hefur staðið í konfektgerð í gær og í dag. Ég gerðist sjálfskipaður smakkari ;) Slúrrrp! suðusúkkulaði, 70% súkkulaði, rjómasúkkulaði, súkkulaðifylling, pistasíumarsipan, koníakmarsipan, núggat/appelsínufylltar döðlur og von er á marsipanfylltum döðlum, kannski mozartkúlum, [einhverju sem ég gleymi] og því besta af öllu - kókoslengjum; *doijngs-doijngs* ég hlakka til!
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)









