blómateppi
Spurning um að endurvekja bloggið? Eða alla vega gera tilraun til þess, látum þar við sitja í bili ;)
Byrjum á núinu. Þessa helgi endurtókum við í Íslenska kórnum í Lundi leikinn frá í fyrra og skunduðum í kóræfingabúðir með Hreiðari Inga Þorsteinssyni. Svaka stuð, heilmikið puð, mikil gleði. Kórinn er alger áhugamannakór svo við hljótum að svahahakaleg viðbrigði fyrir Hreiðar ;) Í fyrra vorum talsvert fjær Lundi svo langflestir gistu og því var mikil stemmning á kvöldvökunni. Sófahornið hjálpaði þar líka til. Núna í ár vorum við mjög nálægt Lundi, og ekkert sófahorn, svo kvöldvakan var eitthvað hálfendaslepp. En það var þá þeim mun meira af rabbi og spjalli og súpi og prjónaskap og afsleppelsi, sem er líka ágætt.
Þessa dagana og vikurnar er ég með ýmislegt á prjónunum, að vanda, og meira að segja heklunálinni líka. Er að klára ungbarnahúfu, með tvær litlar peysur í huga, eina lopapeysu og svo blómstrað ungbarnateppi sem er sem sé heklverkefnið. Ég fékk hugmyndina að blómateppinu þegar við stelpurnar í saumó skelltum saman í ömmuferningateppi sem sængurgjöf fyrir eina okkar síðasta sumar. Ég lét það því eftir mér að missa mig í kambgarninu núna í jólafríinu. Verst að það er búið að vera heilmikið bras að fá marga kambgarnslitina frá því í haust, því það klikkaði eitthvað hjá Ístex. Til dæmis á ég engan fjólubláan. En ég á eina 25 liti af 38, sem verður að teljast ansi gott ;)

Nú er bara að krossa putta að mér takist að töfra fram 3-4 sinnum fleiri ferninga en ég er þegar komin með á næstu mánuðum. Ég hef reyndar fulla trú á að það hafist. Mamma er líka með í að hekla ferningana, mjög hentugt til að nota kambgarnsafganga sem hún átti. Saman ættum við að ná upp í 80-100 ferninga sem er þá mátulegt í mömmu-ömmu-teppi fyrir krílið sem hefur boðað komu sína í lok júlí :)
Minnst á krílið, kúlan tók þennan líka vaxtarkipp í þessari viku, fannst eins og hægt væri að sjá mun milli daga hreinlega. Enda bætti ég á mig 2 kg á innan við viku, jafn miklu og ég bætti á mig á fyrstu 19 vikum meðgöngunnar, takk fyrir pent! Í tilefni þessa er hér ein bumbumynd, tekin í dag þegar ég er gengin akkúrat 20 vikur - hálfnuð! :)
Þá er við hæfi svona að lokum að skella inn sónarmynd af bumbubúanum, tekin fyrir rúmum 2 vikum síðan.
4 ummæli:
vá hvað bumban hefur stækkað á einni viku! jeminn eini, en ég hlakka til að sjá fleiri myndir :)
Gaman að bloggið sé að lifna við aftur :)
Nú þegar maður er búinn að sjá myndir af bumbu og bumbubúa verður þetta svo miklu raunverulegra! Hlakka til að sjá fleiri myndir!
Jibbí það var alveg kominn tími á blogg frá ykkur í Lundi. Það er alltaf sami myndarskapurinn á þínum bæ ;) Þú tekur þig vel út með kúluna. Knús frá okkur í Garðastræti
Híhí, í minningunni þá gastu gert miklu stærri bumbu í baði þegar þú varst lítil Líney! ;) Gott að bloggið sé komið í gang aftur. Knús og kram.
Skrifa ummæli