sunnudagur, desember 23, 2007

ketkrókur


Ketkrókur, sá tólfti,
kunni á ýmsu lag. -
Hann þrammaði í sveitina
á Þorláksmessudag.

Hann krækti sér í tutlu,
þegar kostur var á.
En stundum reyndist stuttur
stauturinn hans þá.




Jaminnsann, barasta jólin á morgun! Ekki það, þau hefðu allt eins getað verið í gær, ég er jú ekki vön því að vera búin í prófum nema þrem dögum fyrir jól... En þetta er ágætis tilbreyting, þ.e. að hafa ekki neitt sérstakt fyrir stafni í heila þrjá daga :)

Hér er ekki borðuð skata, heldur saltfiskur. Við Siguður matreiddum hann að hætti Gomez de Sao (eða hvernig sem það var nú skrifað), þ.e. bjuggum til hálfgerða stöppu úr heilum helling af lauk og hvítlauk sem var mýktur í vænum slurki af jómfrúrólífuolíu, saltfiski, brytjuðum kartöflum og svörtum pipar (og svörtum ólífum ef vill). Með þessu eru svo harðsoðin egg skorin í báta og salat og við bættum við rúgbrauði. Mjúmmskjúmms.

Í gær voru annars jólatré skreytt á eldri og yngri Ærlæk, ljósaseríum bætt við á vel valda staði, smákökum skolað niður með nóg af mjólk, garðar sópaðir (þ.e. "jötur sópaðar" ef þið eruð að vestan, ég verð alltaf svolítið ringluð þegar ég kem hingað norður því rollurnar eru jú ofan í garðanum á Stað...), ormalyfi troðið ofan í nokkrar ær, gefið og eitthvað starað á imbann, dútlað og vafrað á netinu í háskólaleit. Nóg að gera ;)

Engin ummæli: