giljagaur
Giljagaur var annar,
með gráa hausinn sinn.
- Hann skreið ofan úr gili
og skauzt í fjósið inn.
Hann faldi sig í básunum
og froðunni stal,
meðan fjósakonan átti
við fjósamanninn tal.
Á þessum degi í fyrra fór ég í próf í stærðfræðigreiningu IIIB hjá Ragnari (þeim sama og kenndi mér mál&tegur á þessari önn). Hafði þetta um það að segja hérna á blogginu:
Ragnar karlinn semur greinilega jafn ofvirk ef ekki ofvirkari próf en hann er sjálfur. Stærðfræðigreiningarprófin hafa verið sanngjörn og nokkuð stöðluð síðustu ár, en það er eitthvað sem segir mér að þetta próf verði skalað upp. Hann blés lengd dæma talsvert upp og jók þyngdina að auki. Allamalla.Kíkti svo í Uglu, mér til ánægju og yndisauka, og athugaði með tölfræði þessa áfanga á síðustu haustönn. Jú jú, 54.3% stóðust prófið, 34.1% féllu og 11.6% voru fjarverandi. Það voru einungis 75 af þeim 193 sem voru upphaflega skráðir í áfangann sem á endanum rusluðust í gegn (55 sem skráðu sig úr honum áður en kom að prófi). Ef einhver getur veitt mér upplýsingar um tölfræði þessa áfanga haustið 2005 eða 2004 væri það ákaflega gaman svona til samanburðar ;)
Eftir prófið í gær þurfti ég að snatta smávegis, m.a. kíkja heim til pabba og mömmu í föndurpappírsleit. Kom við í Sigtúninu hjá afa og ömmu og fékk þar hálfmána, gyðingakökur, piparkökur og mjólk - amminamminamm :D Amma er alger snillingur í jólabakstri :) Fyrir utan að þar er svo afskaplega gott að slappa af, ahhh... Þegar ég svo kom heim til pabba og mömmu stóðu þar sprautukökur á grind og súkkulaðibitakökur ofan í boxi svo ég krækti mér auðvitað í sitt af hvoru tagi (tók sko sprautuköku sem var pínulítið útlitsgölluð, heldur brún í annan endann, ég er svo vel upp alin 0:D )

Engin ummæli:
Skrifa ummæli