mánudagur, apríl 23, 2012

72 ferningar - ah búh!

Það er að segja, ah-búh í ferningaheklinu sjálfu. Nú er "bara" eftir að hekla þá alla saman... ;)


Annars hef ég verið með ýmislegt annað á prjónunum síðustu vikurnar og mánuðina. Tók mig til og skolaði úr afrakstrinum í gær.

Í alvöru, verður það mikið krúttlegra en þetta? Á reyndar eftir að sauma í miðjuna á peysunni, klippa (*andköf!*) og hekla lista með grænum blómatölum á. Hækka krúttstuðulinn þá enn meira. Núna eru pínkuponsu sokkar á prjónunum og lopapeysa á Láru frænku fer mjög fljótlega í vinnslu. Verður voða gott að hafa eitt verkefni á almennilegri prjónastærð svona með, ekki bara prjóna á tannstöngla endalaust ;)

Og í lokin, bumbumynd frá í gær (já, ég veit, grey naflinn!)

Fyrir áhugasama, þá vegur þessi kúla um 7 kíló, samkvæmt nýjustu ónákvæmu mælingum.

föstudagur, apríl 20, 2012

70 ferningar og 100 dagar

Jábbs, sléttir 100 dagar í settan dag.

Burðarrúmið í barnavagninn kom með póstinum í gær. Svoooooo ljúft að hafa það frá! Við þurfum bara að redda flugnaneti og sólskermi, og þá ætti allt að vera komið fyrir vagninn. Fundum bæði vagninn/kerruna og burðarrúmið notað, en alveg eins og nýtt, á netinu og borguðum um helming þess sem glænýtt sett myndi kosta út úr búð. Lúxuslíf :) Næst á reddingalistanum er þvottavél og þegar sá hausverkur er frá hugsa ég að allt annað á listanum verði eins og leikur einn...

miðvikudagur, apríl 18, 2012

69 ferningar

Þá hefur krílið fengið hiksta í fyrsta sinn, svo ég viti til a.m.k. Einstaklega skondið og krúttlegt, nema kannski fyrir það að það gerðist um klukkan 4 um nótt ;)

Ég gleymdi að segja frá því að við fórum í mæðraskoðun núna síðasta fimmtudag. Þar reyndist allt vera í stakasta lagi og stærðin á legbotninum (lengd yfir bumbuna, frá lífbeini og að toppnum á leginu) lenti nákvæmlega á meðalkúrfunni. Ég er sem sé einstaklega venjuleg og þægileg við að eiga á þessari meðgöngu. Næst á dagskránni er sykurþolspróf eftir rúmar 3 vikur og mæðraskoðun í framhaldinu.

Núna er ég komin í frí frá badmintoninu (sem ég spila annars á miðvikudögum með nágrannakonunum). Það var eitthvað farið að pirra tengingar í mjóbakinu að standa mikið með vinstri fótinn fyrir framan þann hægri. Ég var byrjuð að setja hægri fótinn fram í staðinn og beita mér þá eitthvað asnalega, svo það var betra að hætta áður en ég gerði eitthvað meira af mér. Skítt að missa af þessum æðislega félagsskap sem stelpurnar eru. Á hinn bóginn er ég enn nógu hress til að mæta í leikfimi og meira að segja skokka létt, svo ég held það sé best að kvarta sem minnst :) (Ég er sem sé ekki með nein grindarvandamál, fótapirring, bakverki, axlarverki, svefnvandamál, bjúg, ógleði, viðvarandi brjóstsviða, ógurlega löngun í sætindi og aðra óhullstu, skapsveiflur eða hvað eina annað sem lagst getur á konur á [seinni hluta] meðgöngu. Mig hrjáir í mesta lagi brjóstsviði svona 1-2 sinnum í viku og að ég vakna aðeins fyrr á morgnana en ég myndi vilja og einstaka sinnum um miðja nótt. Ég ætla að þakka þetta íþróttaástundun og almennilegri hreyfingu frá því ég var krakki ásamt góðum skammti af heppni.)

1. maí nálgast óðfluga með tilheyrandi vortónleikum kórsins. Það þýðir að kórinn tekur svolítið meiri tíma en venjulega en það er samt svo gaman þegar hlutirnir fara að smella saman. Æfingin á mánudaginn var þrusugóð og ef sú næsta verður þannig líka, þá hef ég litlar áhyggjur af tónleikunum. Hins vegar virðist það loða við kórinn að lögin verða einhvern veginn ekki fullæfð fyrr en á generalprufu eða hreinlega tónleikunum sjálfum. Kannski óþarfa aukaskammtur af adrenalíni það...

laugardagur, apríl 14, 2012

66 ferningar

Eitthvað mjakast heklið rólega áfram. Hef reyndar klórað mér svolítið í kollinum yfir hvernig ég vil tengja ferningana og gert prufur í gærkvöldi og í dag, er orðin nokkuð viss um hvernig ég ætla að hekla þá alla saman. En ég hef hreinlega ekki fundið tíma fyrir sjálfa ferningana síðustu daga, frekar heldur en bloggið. Enda ýmislegt í gangi.

Í morgun ætlaði ég svoleiðis að sofa út eftir heldur lítinn svefn undanfarna daga. Því var hins vegar lítill ólátabelgur ósammála. Ég rumsakði sem sé skömmu fyrir átta og nokkrum mínútum síðar upphófust þessar líka leikfimiæfingar hjá krílinu sem stóðu fram eftir morgni með nokkrum hléum. Svo ég gat ekki sofnað og ekki leið á löngu þar til garnagaul bættist í hóp friðarspilla. Þá þýddi ekki annað en lufsast á fætur og fá sér eitthvað í gogginn. Ég skreið reyndar aftur upp í rúm til að reyna að lúlla aðeins, en fékk þá bara aðra gusu af leikfimiæfingum til þess að skemmta mér við. Það er því greinilegt hverju þarf að taka á í uppeldinu... ;) Baunin hefur annars verið frekar róleg síðustu tvær vikurnar, svo dagurinn í dag er tekinn með trompi til að vinna upp afslappelsið.

Við Sigurður tókum því fremur rólega um páskana. Litum reyndar á handverkssýningu nokkurra íslenskra kvenna á litlu sveitakaffihúsi rétt hjá Veberöd.


Tókum strætó mest alla leiðina og gengum þá tæpan 1,5 km fram hjá túnum og í gegnum skóg til að komast á kaffihúsið. Röltum þar hjá hópi dádýra, voða gaman það.

Þegar að kaffihúsinu kom, kom í ljós að þar voru alls kyns dýr: villigöltur, kindur með lömb (gotlandsfé, ákaflega líkt því íslenska), geit með hoppandi káta 5 daga gamla kiðlinga, endur, gæsir, hænur og hanar, hundur og kanínur. Ég held ég sé ekki að gleyma neinu(?)






Við hittum þar líka Maríu og Helga kórfélaga mína og 3 ára guttann þeirra hann Svavar, sem voru svo indæl að bjóða okkur far aftur til Lundar.

Barn eltir hana - sá síðarnefndi hafði ekki svo gaman af þeim leik ;)

Við vorum hins vegar svo lengi úti í kuldanum (um 4°C) að skoða öll dýrin og svo var svo napurt að hjóla heim frá strætóstöðinni við sjúkrahúsið, að það dugði ekkert annað en bolli af heitu kakói og heitt bað til að hita kroppinn þegar heim kom. Brrr... páskahret.

Á páskadag tókum við því rólega með morgdegisverði, ég kláraði að prjóna litla peysu á krílið (á eftir að hekla lista og svona, mynd kemur síðar), við kíktum í ræktina/leikfimi, elduðum fínasta lambahrygg um kvöldið og fengum okkur heimagerðan toblerone-ís í eftirmat. Sllllúrp!


Annar í páskum fór að mestu hjá mér í það að sauma hlíf fyrir hrærivélina. Be-eh, hvílíkt maus sem mér tókst að gera þetta að :P

Eftir talsverða yfirlegu á blocket.se duttum við niður á vel meðfarinn og lítið notaðan barnavagn. Ég skellti mér til Málmeyjar á þriðjudagsmorgni til að kíkja á gripinn og kom heim vagninum ríkari, en nokkrum sænskum þúsundköllum fátækari. Þetta var reyndar bara vagn með kerrustykki, þ.e. það vantaði burðarrúm/vagnstykki á hann. Það er hins vegar fundið, sömuleiðis á blocket.se, alla leið norður í Skaraborg. Ætti að berast með póstinum í næstu viku. Það saxast smám saman á innkaupalistann...

sunnudagur, apríl 01, 2012

33+30 ferningar

Já, ég hef alls ekki verið nógu dugleg við að hekla ferninga undanfarið. En, þeir duga samt núna í teppi sem er um 70x90 cm að stærð. Einn ferningur í viðbót og þá næ ég í 80x80 cm teppi. Níu í viðbót og teppið verður 80x90 cm. Það er ekki svo slæmt að hugsa til þess :)

Og nei, ég hef heldur ekki verið nógu dugleg við að blogga. Við vörðum síðustu helgi að mestu við að þræða verslanir í Lundi, Málmey og á netinu. Úff púff púff, ég var eiginlega alla vikuna að ná mér andlega eftir það :P Nú, og hvað geri ég þá þessa helgina? Jú, skelli mér í fleiri verslunarferðir! Jámms, sjálfspíningarhvöt á háu stigi hérna ;)

Við erum sem sé farin að skoða ýmislegt sem tengist komu litla krílisins. Efst á blaði þar er barnavagn, og ómæ ómæ hvílíkur frumskógur!!! Ég verð bara uppgefin við það eitt að hugsa orðið "barnavagn" :-o Hins vegar höfum við (held ég) komist að niðurstöðu um hvaða barnavagnar koma til greina og þá er bara að liggja á Blocket (vefsíða fyrir smáauglýsingar) og bíða eftir að "draumavagninn" detti inn á sölu í sæmilegu ástandi og ekki í einhverjum fáránlegum lit.

Annað sem er á innkaupalistanum er þvottavél. Helst þvottavél sem krefst þess ekki að við þurfum að kalla til marga iðnaðarmenn og ráðast í svakalegar framkvæmdir. Í augnablikinu þýðir það frekar nett og lágvaxin þvottavél inni í eldhúsi. Það eru nefnilega hvergi jarðtengdar innstungur í íbúðinni, nema í eldhúsinu. Bögg...

Svo verður næsti hausverkur væntanlega rimlarúm. Já já já, þetta er sko heilmikið fyrirtæki að fara út í barneignir ;)

Af náminu er það helst að við erum að leggja lokahönd á grein númer tvö í doktorsnáminu hjá mér. Stefnan er að senda hana inn til birtingar (eða höfnunar...) á morgun. Það verður mjööög ljúft að losna við greinina í smá tíma!

Að lokum, bumbumynd frá í dag þegar 23. vikan er að baki og tæpir fjórir mánuðir eftir. Mér skilst að eftir eina viku þá verði fóstrið nógu þroskað til að miklar líkur séu á því að það lifi af komi það í heiminn strax þá. Við skulum nú samt vona að það bíði í a.m.k. 14 vikur enn, engin ástæða til að flýta sér :)

föstudagur, mars 23, 2012

29+30 ferningar

Já, þetta mjakast fram á við. Mesta furða að mér hafi tekist að hekla ferning þessa vikuna, það er búið að vera svo svakalega mikið að gera. Við erum að leggja lokahönd á grein, sem er nú hér um bil næstum alveg að verða tilbúin til að senda inn til birtingar. Svo er bara að sjá hvort einhver vilji birta þetta fyrir okkur. Ég efast reyndar ekki um að það takist einhvers staðar, það er bara spurning hversu ofarlega við náum að komast í goggunarröð tímaritanna.

Bumban vex út eins og nefið á honum Gosa. Ég tilkynnti Sigurði í morgun að nú fengi hann mikið ábyrgðarhlutverk: Að segja mér hvenær eru komnir blettir á bolinn minn fyrir neðan "bumbusjóndeildarhring"! Eitthvað leist honum reyndar illa á starfið, var snöggur að bjóðast til að kaupa handa mér spegil ;) Tsk-tsk-tsk, kauði ekki lengi að gera tilraun til að firra sig ábyrgð...

Lakkrísinn sem pabbi kom með hverfur hratt. Skuggalega lítið eftir. Auðvitað eiga óléttar konur ekki að borða of mikinn lakkrís (passa blóðþrýstinginn) og Sigurður lætur ekki sitt eftir liggja í aðstoðinni við að láta freistingarnar hverfa. Það er ábyrgðarhlutverk sem engin þörf er að skorast undan :D

laugardagur, mars 17, 2012

25+30 ferningar

Pabbi kom til okkar í dag í smá helgarheimsókn (er á leið á fund í Brussel) og hafði þá með sér ferningana frá mömmu - váháhá, heil 30 stykki! (Já, og svo leyndist auðvitað ein bók um meðgöngu/fæðingu/fyrstu vikurnar og nauðsynjar eins og lakkrís og svona líka í töskunni hans pabba ;) ). Hér er ég búin að blanda saman öllum ferningunum:


Aldeilis fínt og fallegt! Nú er "bara" að hekla um 25-45 ferninga í viðbót og hekla svo allt saman í heilt teppi :)

sunnudagur, mars 11, 2012

blómateppi

Spurning um að endurvekja bloggið? Eða alla vega gera tilraun til þess, látum þar við sitja í bili ;)

Byrjum á núinu. Þessa helgi endurtókum við í Íslenska kórnum í Lundi leikinn frá í fyrra og skunduðum í kóræfingabúðir með Hreiðari Inga Þorsteinssyni. Svaka stuð, heilmikið puð, mikil gleði. Kórinn er alger áhugamannakór svo við hljótum að svahahakaleg viðbrigði fyrir Hreiðar ;) Í fyrra vorum talsvert fjær Lundi svo langflestir gistu og því var mikil stemmning á kvöldvökunni. Sófahornið hjálpaði þar líka til. Núna í ár vorum við mjög nálægt Lundi, og ekkert sófahorn, svo kvöldvakan var eitthvað hálfendaslepp. En það var þá þeim mun meira af rabbi og spjalli og súpi og prjónaskap og afsleppelsi, sem er líka ágætt.

Þessa dagana og vikurnar er ég með ýmislegt á prjónunum, að vanda, og meira að segja heklunálinni líka. Er að klára ungbarnahúfu, með tvær litlar peysur í huga, eina lopapeysu og svo blómstrað ungbarnateppi sem er sem sé heklverkefnið. Ég fékk hugmyndina að blómateppinu þegar við stelpurnar í saumó skelltum saman í ömmuferningateppi sem sængurgjöf fyrir eina okkar síðasta sumar. Ég lét það því eftir mér að missa mig í kambgarninu núna í jólafríinu. Verst að það er búið að vera heilmikið bras að fá marga kambgarnslitina frá því í haust, því það klikkaði eitthvað hjá Ístex. Til dæmis á ég engan fjólubláan. En ég á eina 25 liti af 38, sem verður að teljast ansi gott ;)



Nú er bara að krossa putta að mér takist að töfra fram 3-4 sinnum fleiri ferninga en ég er þegar komin með á næstu mánuðum. Ég hef reyndar fulla trú á að það hafist. Mamma er líka með í að hekla ferningana, mjög hentugt til að nota kambgarnsafganga sem hún átti. Saman ættum við að ná upp í 80-100 ferninga sem er þá mátulegt í mömmu-ömmu-teppi fyrir krílið sem hefur boðað komu sína í lok júlí :)

Minnst á krílið, kúlan tók þennan líka vaxtarkipp í þessari viku, fannst eins og hægt væri að sjá mun milli daga hreinlega. Enda bætti ég á mig 2 kg á innan við viku, jafn miklu og ég bætti á mig á fyrstu 19 vikum meðgöngunnar, takk fyrir pent! Í tilefni þessa er hér ein bumbumynd, tekin í dag þegar ég er gengin akkúrat 20 vikur - hálfnuð! :)


Þá er við hæfi svona að lokum að skella inn sónarmynd af bumbubúanum, tekin fyrir rúmum 2 vikum síðan.

laugardagur, desember 24, 2011

kertasníkir


Þrettándi var Kertasníkir,
-þá var tíðin köld,
ef ekki kom hann síðastur
á aðfangadagskvöld.

Hann elti litlu börnin,
sem brostu glöð og fín,
og trítluðu um bæinn
með tólgarkertin sín.





-- Gleðileg jól! --

föstudagur, desember 23, 2011

ketkrókur


Ketkrókur, sá tólfti,
kunni á ýmsu lag. -
Hann þrammaði í sveitina
á Þorláksmessudag.

Hann krækti sér í tutlu,
þegar kostur var á.
En stundum reyndist stuttur
stauturinn hans þá.




Aftur hófst dagurinn á smákökubakstri, hálfmánum í þetta sinn. Ég tók smá hlé á bakstrinum til að fara í Þorláksmessuskötu til Gunnu og Summa. Skatan var ósköp góð í ár, alla vega var afi sáttur og þá er hún örugglega nógu vel kæst ;) Við Sigurður höfum verið fyrir norðan síðustu tvö ár svo það hafa verið skötulaus ár svo skatan bragðaðist enn betur fyrir vikið (eða enn verr í Sigurðar tilviki ;) ). Svo lauk ég smákökubakstrinum og við komumst í sundið seint og um síðir til að skola af okkur skötulyktina. Þá var pabbi í óða önn við að sjóða upp á hangikjötinu og þar með fylla húsið af annarri lykt en skötulykt... Næst á dagskrá er að pakka inn nokkrum gjöfum og kannski að kíkja niður í bæ, við Sigurður eigum víst að finna eitthvað handa okkur sjálfum frá ömmum hans - svona erum við mikið vandræðafólk ;)