föstudagur, janúar 22, 2010

kraftaverkin gerast enn

Núna áðan fór ég ásamt nýjum meistaranema í hópnum mínum til að fá aðgangskort að eðlisfræðibyggingunni. Vandamálið er að hann er ekki skráður við LU heldur er eins og "gestanemi" og venjulega fá engir nema þeir sem eru á launaskrá eða nemendaskrá svona aðgangskort. Nema hvað, sænska miðaldra konan í afgreiðslunni tautaði þetta með að raunar mætti hann ekki fá kort en fyrst hann yrði hérna fram í júní, jafnvel júlí, að gera verkefnið sitt þá gengi náttúrlega ekki að hann kæmist ekki inn í húsið á kvöldin og um helgar og lét hann fá kort! Ég trúði hvorki augum né eyrum. Hallelúja, það eru til Svíar sem ekki fylgja reglum í blindni!!! Þessari skrifstofukonu var snarlega fyrirgefið að vera sjaldan við vegna mikillar rabbhneigðar og er komin á uppáhaldslistann minn.

sunnudagur, desember 27, 2009

jólin hér, jólin þar...

Jæja, allir komust jólasveinarnir til byggða þótt seint væri. Netið hérna fyrir norðan er töluvert inn og út en þó mest úti og agalega hægt þegar það er inni. Það verður svona þegar allir námsmennirnir flykkjast heim í sveitina ;) Svo sat ég í bíl með tveim kvefgemlingum (Sigurði og Hörpu) alla leiðina frá Reykjavík til Ærlækjar og því varla hjá því komist en ég smitaðist - sér í lagi þegar maður er knúsaður í tíma og ótíma af einum áðurnefndra gemlinga. Ég var því dulítið lasin á aðfangadag, í fyrsta skipti svo ég muni til (atburðaminni mitt er reyndar arfaslakt svo takið þessa fullyrðingu hæfilega alvarlega). Ég ætlaði að vera komin í Grundargerðið til afa og ömmu í dag, en það varð auðvitað ekkert úr því með svoddan kvefaumingjaskap. Ekki vil ég smita gömlu hjónin og ég er nú ekki neitt sérstaklega skemmtilegur félagsskapur, hálfsofandi og eins og með blýklump í hnakkanum... :P En kannski ég verði ferðafær á morgun. Svo er stefnan sett á höfuðstaðinn fyrir áramótin, því Gunna og Summi bjóða í kalkún á gamlárskvöld eins og venjulega og það er ekki hægt að sleppa því :) En jamm og já, yfir og út áður en netið dettur út á ný ;)

fimmtudagur, desember 24, 2009

kertasníkir


Þrettándi var Kertasníkir,
-þá var tíðin köld,
ef ekki kom hann síðastur
á aðfangadagskvöld.

Hann elti litlu börnin,
sem brostu glöð og fín,
og trítluðu um bæinn
með tólgarkertin sín.





-- Gleðileg jól! --

miðvikudagur, desember 23, 2009

ketkrókur


Ketkrókur, sá tólfti,
kunni á ýmsu lag. -
Hann þrammaði í sveitina
á Þorláksmessudag.

Hann krækti sér í tutlu,
þegar kostur var á.
En stundum reyndist stuttur
stauturinn hans þá.

þriðjudagur, desember 22, 2009

gáttaþefur


Ellefti var Gáttaþefur,
- aldrei fékk sá kvef,
og hafði þó svo hlálegt
og heljarstórt nef.

Hann ilm af laufabrauði
upp á heiðar fann,
og léttur, eins og reykur,
á lyktina rann.

mánudagur, desember 21, 2009

gluggagægir


Tíundi var Gluggagægir,
grályndur mann,
sem laumaðist á skjáinn
og leit inn um hann.

Ef eitthvað var þar inni
álitlegt að sjá,
hann oftast nær seinna
í það reyndi að ná.



Best að hleypa gjuggaranum að áður en hann gleymist. Ég er alvarlega farin að halda að ég hafi skilið heilann eftir í Lundi, a.m.k. þann hluta sem lýtur að skipulagi, minni og einbeitingu. Sem sé, varúð! óvenjurugluð Líney gengur laus...

sunnudagur, desember 20, 2009

bjúgnakrækir


Níundi var Bjúgnakrækir,
brögðóttur og snar.
Hann hentist upp í rjáfrin
og hnuplaði þar.

Á eldhúsbita sat hann
í sóti og reyk
og át þar hangið bjúga,
sem engan sveik.




Við mamma skruppum á jólamarkaðinn í Heiðmörk (þ.e. við Elliðavatn) og fundum þar nokkrar jólagjafir. Ekki gekk eins vel hjá okkur Sigurði sem skunduðum niður í bæ í leit að jólagjöfum fyrir hvort annað. Þ.e.a.s. það gekk ekki neitt :P Sjáum til hvort það reddist á morgun. Svo komu Bladur og Birte og Matthías og Bjarki í kvöldmat: hreindýrakæfu, svínasteik og vel vökvaða jólaköku. Eftir matinn spiluðum við púkk og Matthías hélt áfram sigurgöngu sinni, en hann segist aldrei hafa tapað í púkki. Magnað. Þetta stóð að vísu ansi tæpt hjá honum um tíma en hann slapp fyrir horn og endaði sem "stórbóndi héraðsins" ;)

laugardagur, desember 19, 2009

skyrjarmur


Skyrjarmur, sá áttundi,
var skelfilegt naut.
Hann hlemminn o´n af sánum
með hnefanum braut.

Svo hámaði hann í sig
og yfir matnum gein,
unz stóð hann á blístri
og stundi og hrein.



Í dag bakaði ég gyðingakökur. Það var svolítið skrautlegt þetta árið. Fyrir það fyrsta var deigið einhverra hluta vegna óvenju þurrt og leiðinlegt að vinna með. Í öðru lagi hljóp einhver sjálfstæður vilji í fjárans ofninn eftir að hann hafði verið þrifinn ósköp vel af henni móður minni. Þ.e. hann hitnaði vel, náði réttum hita og hélt honum um stund en slökkti svo barasta á sér og engin leið að tjónka við hann fyrr en hitinn var kominn niður fyrir um 120°C, þá loksins vildi hann hitna aftur. Það er ekkert sérlega gaman að baka þegar hitastigið rokkar milli 120°C og 200°C... Þetta hafðist þó allt á endanum en ef ofnar gætu hikstað, þá hefði þessi fengið krónískan hiksta í dag. Verst að lambahryggur kvöldsins verður lengi að steikjast (við 120-220°C) og eymingja pabbi þarf að steikja jólakæfu ársins hjá ömmu og afa í Sigtúni á morgun. Vesensmesen.

föstudagur, desember 18, 2009

hurðaskellir


Sjöundi var Hurðaskellir,
- sá var nokkuð klúr,
ef fólkið vildi í rökkrinu
fá sér vænan dúr.

Hann var ekki sérlega
hnugginn yfir því,
þó harkalega marraði
hjörunum í.




Búmm! Jú jú, Hurðaskellir mættur á svæðið. Una litla lýsti honum fyrir mér í gærkvöldi. Hann kæmi sko alveg "búmm!". En samt hélt hún að hann myndi ekki ná að vekja sig, hún svæfi alltaf svo vel ;) Í dag er útskriftarveisla klukkan fimm og afmælispartý klukkan níu á dagskránni. Æ já, og mögulega einhver vinna/lærdómur fram að því. Ég held samt satt best að segja að ég hafi skilið einbeitinguna eftir í Svíþjóð, því það gengur ósköp lítið eitthvað að læra hjá mér þessa dagana...

fimmtudagur, desember 17, 2009

askasleikir


Sá sjötti, Askasleikir,
var alveg dæmalaus. -
Hann fram undan rúmunum
rak sinn ljóta haus.

Þegar fólkið setti askana
fyrir kött og hund,
hann slunginn var að ná þeim
og sleikja á ýmsa lund.




Þá er það næsti jólasveinn, einum degi of seinn. Hef eiginlega enga afsökun fyrir því, var bara svolítið í ruglinu í gær og gleymdi mér við að lesa Harry Potter. Setti þó í og hengdi úr tveim þvottavélum, sko mig ;) Svo komu líka Hlynur, Kristín, Hugi, Lóa, Una og Númi litli í amminammi góðan silung um kvöldið. Alltaf svo indælt að fá þau í heimsókn :)