sunnudagur, ágúst 31, 2008

ljúf helgi

Jæja, það hafðist að fara til Køben og gera það sem gera þurfti, þ.e. kaupa pilluna! Það kom nefnilega í ljós að pillutegundin mín (Harmonet) fæst ekki hérna í Svíþjóð og ekkert samheitalyf (Meloden, Gestonette, Gestinyl, ...) heldur og þar að auki engin pilla sem er álíka væg og mín. Þar sem ég hef áður verið á sterkari pillu, sem kroppurinn var alls ekki eins sáttur við og þá sem ég er á núna, þá var mikil gleði þegar Bjarnheiður fann út að pillutegundin mín fengist í Danmörku. Enn meiri gleði þegar ég fann út að venjuleg apótek hafa líka opið á laugardögum (ekki bara mán-fös). Alger aukabónusgleði þegar mér var boðið samheitalyf sem kostaði 56,10 DKR < 1000 íkr. Heima á klakanum er nefnilega seld dýr útgáfa af þessari pillu (kemur á óvart? NEI!), þ.e. hún kostar a.m.k. 2200-2400 kr. Svo ef ég á fleiri erindi til Køben þá borgar sig að kaupa pilluna þar :) Verst er bara að fjölnota lyfseðlar frá Íslandi eru bara einnota á hinum Norðurlöndunum.

Eftir að hafa reddað pillunni, andað léttar og bölvað hitanum í sólinni ofurlítið, þá röltum við yfir á Strikið. Nærðum kroppinn á Shawarma Grill (ágætur skyndibiti) og röltum svo af stað eftir hinni ægilega löngu verslunargötu. Á þessum tímapunkti var kvefið farið að minna á sig og ég strax farin að sjá rúm í hyllingum. Þið getið því ímyndað ykkur hversu ofur"hress" ég var þegar við vorum komin niður allt Strikið :P Þar fyrir utan leiðist Sigurði svona verslunarrölt, fataverðið var greinilegra hærra í Køben (m.ö.o. sama krónutala er á verðmiðunum beggja megin sundsins - sú sænska margfaldast með 13 en sú danska með 17...) og það var aðeins of heitt (~18°C) fyrir ísbjörninn Sigurð. Við höfðum þó belti og andlitskrem fyrir mig upp úr krafsinu, hvort tveggja eitthvað sem leitað hefur verið að leeeengi. Fundum líka Guinnes heimsmetasafnið sem við viljum kannski kíkja á næst, þ.e. þegar frökenin verður úthaldsbetri. Næst á atburðaskránni var að rölta upp Strikið, grillast í sólinni á Ráðhústorginu, uppgötva að sýningin "Bodies" er í Køben fram undir áramót (jei!), finna Pétur Gordon og Gunni, rölta með þeim langleiðina niður Strikið til að fara í raftækjabúðina Fona (sem mér er nær hulin ráðgáta hvernig fór framhjá tækjatótunum okkur Sigurði áður - við vorum kannski bara svona lúin?), skemmta okkur þar um stund og rölta upp Strikið á ný gjuggandi eftir álitlegum matsölustað. Settumst að lokum inn á kínverskan veitingastað sem bauð upp á hlaðborð. Smjatt, góður matur! Þarna inni, fjarri sólinni, sitjandi og borðandi góðan mat, rann kvefslenið líka smám saman af mér. Við sátum dágóða stund eftir að hafa klárað matinn og kjöftuðum og hefðum alveg getað setið talsvert lengur ef skynsami hlutinn af mér hefði ekki verið búinn að negla niður lest til að taka heim til Lundar sæmilega snemma.

Í lestinni sátu á móti okkur málglaður og góðglaður Sví og Úsbeki sem talaði ótrúlega góða ensku miðað við að hann hafði bara lært hana í 2 mánuði. Svíinn hélt uppi samræðunum til Málmeyjar með skemmtilegum lýsingum á sænsku háskólalífi og spurningaflóði til okkar hinna þriggja, en eftir það röbbuðum við við Úsbekann sem hafði komist inn í haśkólann í Växjö. Svo skemmtilega vildi til að hann var stærðfræðilegur eðlisfræðingur. Er ekki heimurinn lítill? :)

Nújæja, í dag var svo nýnemadagur í náttúruvísindadeild LU. Það kom í ljós að hann var aðallega hugsaður fyrir glænýju sænsku stúdentana en við Sigurður ákváðum samt að fá að fljóta með. Við sáum þó strax að fólkið í kringum okkur væri töluvert yngra (og óþroskaðra) en við og - það sem skemmti a.m.k. mér mest - með einstaklega hátt hlutfall nörda í stærð- og eðlisfræðihópunum, sem virtust alveg nýskriðnir út úr menntaskóla og hreiðrinu heima ;) Það var samt ósköp gaman að fljóta með fólkinu, hlusta á allar kynningarnar, fara í leiki með þeim, borða risastórar sörur og rabba. Það gladdi mig mikið þegar einn eldri nemandi lýsti fyrir hinum að kannski myndu þau skila fyrstu verklegu skýrslunni sinni skrifaðri í Word, en "síðan myndu þau án efa fara að nota það sem kallaðist LaTeX". Úje! ;) Svo sló hann mig niður á jörðina aftur þegar talið barst að Matlab og ég heyrði að enginn hinna nýnemanna vissi hvað fylki er. Úbbs. Jaaaaáá, fylki er víst ekki jafn sjálfsagt fyrirbæri og blóm og tré. Tjah, alla vega ekki fyrir öllum... ;)

föstudagur, ágúst 29, 2008

1 mánuður

Ojú, það er nákvæmlega einn mánuður síðan ég bloggaði síðast. Það að ég sé ekkert búin að blogga allan þennan tíma er ekki vegna þess að ég hafi ákveðið að fara í sumarfrí, heldur er allt búið að vera á milljón og netsambandið þess utan stundum eitthvað stopult. Byrjum á byrjuninni....

Það var ákveðið að fara í útilegu með fjölskyldunni hans Sigurðar helgina eftir verslunarmannahelgi. Þar sem Sigurður myndi fljúga út í lok vikunnar eftir þá helgi, þá ákváðum við að gera eins mikið og hægt væri áður en farið væri í útileguna. Við byrjuðum því að pakka um verslunarmannahelgina, þ.e. tókum laugardag og mánudag í slíkt stúss, en leyfðum okkur að rölta ásamt pabba og mömmu upp að fossinum Glym í Hvalfirði á sunnudeginum. Eitthvað var fólk ruglað með hver rétta leiðin að fossinum væri, því ég ætlaði varla að þora að halda áfram á einum stað þar sem prílað var eftir hallandi bergvegg. Sigurður steingeit kom mér þó alla leið en mamma ákvað að vera eftir (pabbi hafði þá hellst úr lestinni nokkru áður og sest niður með góða bók, enda seinni partur leiðarinnar ekki fyrir lofthrædda). Þar sem við sátum fram á klettssnös og virtum fossinn fyrir okkur, kom mamma að. Hún hafði þá fundið réttu leiðina. Seig hún mamma. Þegar við komum niður til pabba var auðvitað sest niður og skotið saman í herlegt nestispúkk með pítsu, flatkökum með hangikjöti, harðfiski, döðlum og suðusúkkulaði o.s.frv. Smjatt!

Næstu daga héldum við áfram að pakka og fikruðum okkur yfir í að fara að þrífa (þ.e. Sigurður fór fljótlega að þrífa, því ég er lengur að pakka...). Á þriðjudagskvöldi vorum við komin svo langt að við fluttum okkur yfir til pabba og mömmu á Laugarnesveginn og troðfylltum gestaherbergið hjá þeim af dóti (svo fljótlega fór svo að dótið flæddi út úr herberginu fram á gang). Áfram héldu þrif og pakkningar að lokinni vinnu næstu tvö kvöld. Við vorum orðin ansi hreint þreytt. Okkur tókst þó því sem næst að tæma íbúðina á fimmtudeginum.

Á föstudeginum tókum við frí, því þá var komið að útilegunni. Það var nokkuð magnað með hve miklum fyrirvara var ákveðið að fara í útilegu þessa helgi, því í fjölskyldu Sigurðar tíðkast skipulegt frí-óskipulag. Ekki við öðru að búast hjá bændum þar sem hlutirnir ráðast gjarna af óútreiknanlegum hlutum eins og veðri. Lýsandi fyrir þetta er að það var ekki ákveðið fyrr en um ellefuleitið hvert skyldi eiginlega farið í útilegu. Skaftafell varð fyrir valinu og fólkinu fyrir norðan sagt að beygja til hægri á þjóðveginum (vinstribeygja ef Snæfellsnes hefði orðið ofan á). Við Sigurður stússuðumst hitt og þetta áður en við náðum í Hörpu og Magga. Ætli við höfum ekki komist út úr bænum rétt fyrir tvö.

Allir komust klakklaust í Skaftafell og úr varð indælisútilega í prýðilegu veðri. Verst var að kvefpest sem ég hélt að ég væri að koma mér upp á fimmtudeginum ákvað að herja frekar á Sigurð svo hann var ekki sá allra hressasti. En þar sem hann kann ekki að vera lasinn, þá var ágætt fyrir hann að vera í útilegu með tilheyrandi göngutúrum, áti og afslöppun og ekki verra að foreldrarnir eiga fellihýsi sem rúmar fimm manns, svo ekki þrufti að þola kulda á næturnar. Við gengum auðvitað að Skaftafellsjökli og Svartafossi og þeir gönguglaðari í hópnum röltu inn í Morsárdal og horfðu yfir að Bæjarstaðaskógi.

Áfram hélt vinna og þrif og pökkun á mánudeginum og næstu daga. Allt hafðist þetta áður en Sigurður fór í loftið, kl 1 aðfaranótt föstudagsins. En hvað gerðist ekki þá? Jú, Líney tók við kvefpestinni hans Sigurðar síns! Urrrg... Mér rétt tókst eftir vinnu á föstudeginum að fara vestur eftir og renna síðustu bónumferðinni yfir íbúðina, tæma og þrífa geymsluna. Hinn mikli tími (sex dagar, þar af tveir heilir) sem ég hafði hugsað mér að nota til þess að klára að pakka ofan í töskur, setja hjólið í kassa, klára endanlega bón og þrif á íbúðinni, henda smá drasli, ganga frá ýmsu sem átti að vera eftir, skrifa bréf, prjóna ullarsokka... varð þar með að engu. Um helgina var blýstykki fast við höfuðkúpuna svo ég afrekaði helst það að horfa á ólympíuleikana í sjónvarpinu. Ég herti mig upp og mætti í vinnuna á mánudeginum því mér fannst mér vera að batna. En nei, onei, daginn eftir hringdi ég í vinnuna og tilkynnti mig veika. Reyndi svo allan daginn að pakka, en það gerðist á einstaklega litlum afköstum. Ég gat svo varla haldið nema einu auga opnu um kvöldið þegar gestir komu í mat, því höfuðið var að springa af kvefi. Ja fussumsvei. Daginn eftir var harkan enn aukin og líkaminn fór loks að skilja að það þýddi ekki að vera með neinn aumingjaskap, það væri barasta ekki í boði. Það hafðist því að klára að pakka, skreppa í vinnuna og ganga frá þar, senda um 50 kg af dóti í þrem kössum með póstinum... og gefa pabba og mömmu yfirlit um allt það sem enn væri eftir og hefði ekki tekist að ljúka :P Úúffff... hvað væri maður án foreldra? Þau redduðu mér alla vega aaaalgerlega! Pabbi meira að segja renndi með mig suður á flugvöll klukkan rétt rúmlega fjögur að fimmtudagsmorgni, svo ég þyrfti sem minnst að brasa með risastóra hjólakassann minn!

Flugið gekk vel og var seinkunarlaust (með IcelandExpress!). Það eina var auðvitað að hausinn var fullur af kvefi og allt annað en sáttur við þrýstingsbreytingarnar við flugtak og lendingu. Sérstaklega lendingu - held ég hafi ekki losnað almennilega við síðustu hellurnar fyrr en daginn eftir... :P Ég beið tæpa klukkustund á Kastrup en þá kom Sigurður með lestinni til að hjálpa mér með farangurinn. Aumingja hann þurfti að burðast einn með álíka magn af farangri vikuna áður, sem er allt annað en öfundsvert... Hann reddaði mér alveg. Við tókum leigubíl af lestarstöðinni upp í Spörtu, þar sem Sigurður er með herbergi. Herbergið reyndist öllu stærra en Sigurður hafði ímyndað sér en því miður - alveg grútskítugt! Við sem vorum nýbúin að taka okkar gömlu (meir en tvöfalt stærri) íbúð í alþrif, vorum ekki alveg í stuði að halda hreingerningunum áfram. Við tókum okkur þó til og strukum hnausþykkt (nokkurra ára) ryklag úr fataskápnum til að geta pakkað úr töskunum, þrifum hillurnar í baðskápnum og strukum það mesta af hillunum í herberginu. Gólfið létum við samt óhreyft, enda ekki með almennileg tól í það. Bjakk!

Við erum með sameiginlegt eldhús með 12 öðrum (einsmanns) herbergjum. Útgangurinn á eldhúsinu er eftir því... subbulegt :P En nú þegar flestir íbúarnir eru mættir á svæðið, þá fer ástandið batnandi með hverjum degi. Það eina sem þarfnast yfirhalningar nú er gólfið - held maður þyrfti hreinlega að spúla það ;) Fólkið sem er með okkur á gangi virkar ósköp indælt. Flestir eru sænskir og flestir eru karlkyns. Þeir sem ég hef hitt eru tvær sænskar stelpur, a.m.k. tveir Pakistanar, einn Kani og a.m.k. 6 sænskir strákar. Svo þá vantar bara einn íbúa, nema Pakistanarnir séu þrír (er ekki alveg viss, því einn þeirra var að fara að flytja auk þess sem vinir þeirra eru gjarna í heimsókn).


Nú, mér virðist Lundur vera ósköp indæll bær. Enginn stórborgarbragur hér, sem hentar mér sérlega vel. Ef maður þarf að komast í eitthvað stærra, þá er Málmey steinsnar í burtu og það tekur ekki nema klst að komast til Kaupmannahafnar með lest. Sem sé, alveg tilvalið :) Og ekki er verra að vera í landinu sem gaf af sér t.d. IKEA og H&M ;)

Sökum kvefleiðinda hefur mér ekki tekist að afreka mikið síðan ég kom hingað. Þó höfum við skoðað Lund aðeins, kíkt á matarhátíð í Málmey og ég hef skráð mig formlega í skólann og mætt á almennan upplýsingafund meðan Sigurður hefur verið á skiptinemanámskeiðinu (sem lauk í dag). Á morgun ætlum við að fara í dagsferð til Køben, á sunnudaginn kemur vonandi fólk til að þrífa íbúðina fyrir okkur (jamm, því skal reddað hve útgangurinn var lélegur!) og þá verður einhver upplýsingadagur hjá nemendafélagi náttúrufræðinema við LU, á mánudaginn verður almennur upplýsingafundur við eðlisfræðideildina og kynningarfundir fyrir einstök námskeið. Ætli skólinn fari svo ekki að fara að byrja...?!

Læt þetta gott heita í bili, enda orðið heldur betur langt! Reyni að blogga ofurlítið jafnar núna á næstunni, fyrst netið er komið í gott lag hjá okkur :) Ef þið eruð alveg að farast úr fréttaþörf af okkur Sigurði, þá getið þið líka kíkt við hjá hinum helmingnum!

þriðjudagur, júlí 29, 2008

íbúðaleit

Sem betur fer þurfum við Sigurður ekki að hafa áhyggjur af húsnæði í Lundi eins og svo ógurlega margir stúdentar þar. Fjöldi stúdentaíbúða hefur sum sé ekki haldið í við fjölgun háskólanemanna í Lundi, en Sigurður fékk úthlutað smá kompu (tæpir 19 m2) því hann er skiptinemi. Ég er óbreyttur nýnemi og get því barist á stúdentaíbúðamarkaðnum. Staðan þar núna er ofurlítið svekkjandi: Ég er fremst (eða með þeim fremstu) í nýnemabiðröðinni en einu íbúðirnar sem eru í nýnemaforgangi eru litlar kompur eins og sú sem Sigurður fékk! Sum sé, allar lausu stúdentaíbúðirnar sem eru stærri en 22 m2 eru ekki í nýnemaforgangi, sem þýðir að a.m.k. í bili á ég ekki séns í að komast í þær. Urrg... Verst að mig grunar sterklega að ég muni tapa í olnbogaskotaslagnum sem fyrirsjáanlegur er milli okkar Sigurðar í 19 fermetra herbergi ;)

þriðjudagur, júlí 22, 2008

fræðingar

Þar sem flestir segja "ha?", ranghvolfa í sér augunum, fá hroll eða klóra sér í kollinum þegar ég segist hafa lært stærðfræði og eðlisfræði og sé á leið í framhaldsnám í eðlisfræði, þá er kominn tími til að veita ykkur smá innsýn í það hvað felst í því að vera stærðfræðingur og eðlisfræðingur. Svara þessir tveir pistlar ekki örugglega öllum ykkar spurningum?



ðaldeilis

Ojú, það er sitthvað, viðskiptasnilld eða viðskiptasiðblinda, þótt ýmsir spekúlantar eigi nú stundum erfitt með að greina þar á milli og kalli allt snilld...

fimmtudagur, júlí 17, 2008

nýjasta nýtt úr vinnunni

Súpan í hádeginu var, aldrei þessu vant, vel æt. Þ.e. kokknum tókst loksins í eitt skipti að missa ekki salttunnu ofan í súpupottinn. Það sem meira er, súpan var alveg hreint prýðileg og með ágætlega skilgreint bragð. Bragðlaukarnir mínir kættust (stundum virðist manni nefnilega sem sama súpuuppskriftin sé notuð dag eftir dag og bara sé skipt um nafn á súpunni og einstaka grænmetissnifsi hent út í til að sannfæra mann um að nafnið sé rétt...). Dásemd dagsins var toppuð með stóru fati af alls kyns ávöxtum (melónum, ferskum ananas, vínberjum, appelsínum) og uppáhalds hnetublöndunni minni í salatbarnum. Namm!

Annars er agalega tómlegt hérna á ÍSOR þessa dagana. Fastastarfsmennirnir keppast við að vera í sumarfríi eða barnseignarfríi og nær allir sumarfuglarnir eru að mæla uppi í Kerlingarfjöllum. Kosturinn við þetta er að það er gott næði. Ókosturinn er að ef mann vantar upplýsingar, þá er viðkomandi upplýsingaveita nær undantekningalaust í frí og þegar viðkomandi kemur úr fríi, þá er einhver annars sem líka þarf að tala við, kominn í frí o.s.frv. Svolítið skrautlegt.

Á morgun verður brunað norður í land á ættarmót. Ég hlakka slatta til. Það er heldur ekki verra að helgarveðurspáin hefur farið batnandi síðustu daga. Það er nær öruggt að við kíkjum ofurlítið austar í lok ættarmótsins og heilsum upp á alla á Ærlæk. Alla vega er ég búin að vinna mánudaginn af mér og gott betur en það, svo það verður ekkert stress eða vesen :)

fimmtudagur, júlí 10, 2008

jei!

Ég er loksins komin með formlega inngöngu í Lundarháskóla :) Vonum nú að þessu brasi og bulli sé lokið. Nú vill reyndar íbúðaleigusíðan hjá LU ekki virka, þ.e. þegar ég ætla að sækja um ákveðna íbúð þá koma skilaboðin "Intresseanmälan saknas" eða á ensku "No application was found". Ekki er öll vitleysan eins... Sigurði hefur samt verið úthlutað oggulítlu herbergi (18 m2) svo við höfum a.m.k. þak yfir höfuðið til að byrja með. Hins vegar þarf ég hvort eð er að finna aðra íbúð fyrir vorönnina, svo við þurfum að ná í stækkunarglerin, fingrafaraduftið og spæjó-hattinn og leita!

miðvikudagur, júlí 09, 2008

já, Tímaflug-Hraðferð, góðan dag?

Púff, spurning um að slaka aðeins á tímanum? Ég sigli hraðbyri inn í megapælingar í sambandi við íbúð í Lundi (búið að redda bráðabirgðalausn a.m.k.), hvort ég eigi að flytja lögheimilið (muna: hafa samband við TR), hvenær ég eigi að panta flug (fimmtudagsmorgunn, þann 21. ágúst, varð fyrir valinu), hvernig lestarsamgöngur eru milli Kastrup og Lundar (góðar), hvenær við viljum skila lyklum að íbúðinni okkar hér við Eggertsgötuna (18. ágúst) o.s.frv. o.s.frv. Úgg!

Við Sigurður skelltum okkur á "jeppanum" okkar (Subaru Legacy) á línuveginn síðasta sunnudag. Fyrst norður fyrir Skjaldbreiði og röltum upp á hana. Við vorum afskaplega heppin með veður og útsýni, en myndavélin gleymdist heima, svo lítið er til af heimildum. Svo renndum við inn á hinn spottann af línuveginnum fram hjá Uxahryggjum og niður í Skorradal. Það var öllu verri slóð. Fyrsti gír og max. 15 km/klst. Fínasta blómaskoðunarferð fyrir mig, því herramaðurinn fékk auðvitað að keyra jeppann ;) Við hittum svo pabba og mömmu (sem voru að koma að norðan) við Skorradalsvatn og grilluðum fyrir þau gúmmulaði lambalærissneiðar. Smjatt!

Bjarnheiður systir lendir á klakanum seint annað kvöld. Jaaaahúúúúúú!!! :) Það verður sérdeilis fínt að fá hana. Knúsa hana rækilega, rifja upp hvernig það er að verkja í eyrun af málgleði annarra, gera nokkrar mislukkaðar tilraunir til að komast að, halla sér aftur með bros á vör og uppgjöf í huga og njóta þess að hlusta, reyna að redda málum með því að stinga ís upp í hljóðabelginn (skulda henni ísferð síðan ég veit ekki hvenær) og komast að því að það dugi heldur ekki til... Ah, hún er algert yndi ;) (Nei nei, Bjarnheiður, reyndu ekki að þræta fyrir það að þú hefur alltaf talað fyrir okkur báðar og gott betur en það! ;D )

Svo verður pabbi sextugur núna næsta þriðjudag. Hann ætlar að stinga af út úr bænum til að forðast hamingjuóskasýkina sem gjarna grípur fólk á slíkum dögum. Þó ætti hann ekki að þurfa að örvænta um of, því stór hluti ættingjanna stakk af til sólríkra landa, svo ekki verða þau hér til að "hrella" hann.

Nú nú, helgin þar á eftir er helgi hinna miklu ættarmóta. Ég tilheyri m.a. Gromsaraætt og Stuðlaætt. Þessar ættir ákváðu báðar að halda ættarmót helgina 18.-20. júlí 2008 að Laugum. Því miður, fyrir mig, ekki sömu Laugunum, heldur annars vegar í Sælingsdal og hins vegar í Reykjadal. Úr vöndu var að ráða, en loks ákvað ég að hitta Stuðlana því á slíkt ættarmót hef ég ekki farið síðan ég var nokkurra vikna gömul (ég man agalega vel eftir því ættarmóti *hóst!*) og löngu kominn tími til að hitta það fólk. Svo er aldrei að vita nema við höldum eilítið austar og lítum við á Ærlæk :) Varla annað hægt fyrst maður er á annað borð kominn svo langt norður...

Hendi inn nokkrum myndum við tækifæri - sjáum þó til hvenær það tækifæri finnst!

fimmtudagur, júní 26, 2008

út um allt

Púff, ég er varla búin að vera nokkuð heima hjá mér síðustu vikuna! Raunar er allt búið að vera á hér um bil fullu síðan nokkru fyrir útskriftina (14. júní). En sum sé síðasta fimmtudag var kvennaferð Orkugarðs út í óvissuna strax eftir vinnu og langt fram á kvöld. Við byrjuðum á því að þenja raddböndin undir styrkri stjórn Sigrúnar, stjórnanda Kvennakórs Reykjavíkur. Meira að segja tvíraddað :) Agalega gaman! Þá settumst við inn í rútu (með kvenbílstjóra, hvað annað) og héldum í átt að Keili og gengum niður Lambafellsklof (eða -gjá). Það voru greinilega ekki allar í hópnum sem vissu að þegar Ragna Karlsdóttir (einn skipuleggjenda óvissuferðarinnar) segir að koma þurfi með góða skó þá sé átt við gönguskó. Hallinn niður gjána er töluverður í moldarmöl og grjóti. En allar komumst við niður gjána, þrátt fyrir misskynsamlegan skóbúnað, og settumst í grasbalann framan við gjána, kátar og glaðar, að víni, ostum, kexi, vínberjum og þurrkuðum ávöxtum. Smjatt! Með rútunni héldum við svo á A. Hansen þar sem gourmet sveppasúpa og kjúklingasalat beið okkar. Ég stóð á blístri! Kom ekki heim fyrr en klukkan að verða tólf, með stóra gula bílnum.

Nújæja, á föstudaginn ákváðum við Sigurður um klukkan fimm, hálf sex að drífa okkur í útilegu. Við rukum til og keyptum inn heljarinnar matarbirgðir, pökkuðum í snatri og brunuðum af stað. Vorum að vísu stoppuð á Njarðargötunni af rólegheita andamömmu með nokkra unga á eftir sér, sem þurfti aðeins að ýta á eftir yfir götuna... Við gistum í Úthlíð fyrstu nóttina og kíktum svo á Geysi og Gullfoss áður en við brunuðum að Drumboddsstöðum til að fara í fljótareið (river rafting) í Hvítá. Hvílík snilld! Vorum líka rosalega heppin með bátsfélaga og formann. Ímyndið ykkur t.d. að vera tíu saman í stórum gúmbát úti í miðri Hvítá, standa saman allan hringinn á kantinum á bátnum ooog... "Höfuð, herðar, hné og tær, hné og tær...." Þið getið rétt ímyndað ykkur hvernig sú leikfimi endaði ;) Splass!!! Eftir volkið í Hvítá héldum við á Laugarás þar sem við grilluðum á fjölskyldutjaldstæðinu. Náðum því rétt áður en fór að rigna og ókum svo í rigningunni niður á Selfoss þar sem við fundum sjoppu sem sýndi leik Rússa og Hollendinga. Jújú, við erum alveg forfallin ;) Við enduðum daginn með labbitúr á Stokkseyri, m.a. annars gegnum grashaf sem nefið á mér varð afar ósátt við. Við tjölduðum þarna en ekki svaf ég vel með stíflað nef og pirruð augu :P Það skipti samt engu máli. Veðrið var áfram glimrandi gott daginn eftir og við skelltum okkur á kajak á tjörnunum og skurðunum við Stokkseyri. Dömluðum þar í um tvo klukkutíma áður en við renndum okkur ofan í heita pottinn við sundlaugina. Aahhhh... Ókum þá bílnum út að sjó og borðuðum nesti inni í bíl meðan rigningin hreinsaði bílinn svolítið og við nutum útsýnisins. Við héldum svo heim á leið Krýsuvíkurleið, með viðkomu á skemmtilegu hversvæði og hinn víðfrægu Strandarkirkju. Um kvöldið renndi ég svo upp í Mosó til að hitta Jóhönnu veðurfræðing, Óla fiðlu, Kate kærustuna hans, Karolinu hina pólsku og fleiri góða vini. Kom svo auðvitað alltof seint heim miðað við lítinn svefn í tjaldinu, en hva, það er nú sumar! ;)

Á mánudaginn komu Harpa systir Sigurðar og Maggi hennar til að grilla með okkur. Úr varð indælis kvöldverðarveisla með taflmennsku að auki - Harpa gegn Magga, en Harpa hlaut dygga hjálp frá okkur Sigurði og hafði sigur að lokum.

Nú nú, á þriðjudagskvöldið var kökukvöld hjá okkur eldri eðlunum (stelpur í stæ+eðl) hjá Ástu og Maríu Önnu í Innri-Njarðvík. Hin skemmtilegasta íbúð sem þær eru í. Reyndar náði ég ekki að skoða hana alla, en það er þá bara ástæða til að kíkja aftur í heimsókn :) Aftur var haldið heldur seint heim á leið ef mikið át og komið alltof seint í bólið. Ge-e-eisp!

Í gærkvöldi renndi ég til afa og ömmu í Sigtúnið, því ég hafði enn ekki haft tækifæri til að óska afa til hamingju með afmælið 19. júní! Greip með mér afgang af gulrótarköku frá kökukvöldinu góða. Sat svo og gerði við buxur og vindbuxur í þessari dásamlegu saumavél sem amma á. Alveg brill.

Í kvöld renndi ég eftir kvöldmat til pabba og mömmu með hina gulrótarkökuna sem kom út úr ofninum, sem eftirmat fyrir þau og Helga Haraldsson og Dinu konuna hans, sem voru í heimsókn. Smjatt-kjamms-mjúmms... ;)

Og núna er klukkan enn einu sinni orðin of margt, ég er rokin í bólið, góða nótt!

mánudagur, júní 16, 2008

magafylli og gott betur

Þetta var nú meiri dýrðarinnar áthelgin! Mamma var heldur spennt alla vikuna, að velta komandi útskriftargrillveislu fyrir sér. Hún var svo sniðug að taka sér frí allan föstudaginn svo hún nyti undirbúningsins í stað þess að fyllast af stressi. Amma á Akureyri kom líka með flugi um hálf ellefu á föstudagsmorguninn. Mamma náði svo í okkur pabba um hálf tvö og eftir heilmikið krafs á innkaupalista lögðum við feðgin af stað í Bónus og Hagkaup. Mikið vorum við fegin að komast að versla fyrir 4-umferðina! Svo var spáð og spekúlerað fram til fimm, þegar við pabbi renndum í Sigtúnið, hann til að ná í tvo stóla en ég til að fá lánaða javanál hjá ömmu. Afgangur kvöldsins fór svo að mestu í að nota javanálina til að ganga frá lausum endum á "ermum" til að vera í við útskriftarkjólinn - EM í fótbolta byrjaði mátulega fyrir mig svo það rokgekk að prjóna ermarnar, enda fátt eins notalegt og að prjóna meðan maður fylgist með úrvals fótbolta ;)

Laugardagurinn hófst á ýmsu stússi fyrir grillið og svo fór ég um klukkan eitt upp í Laugardalshöll til þess að sitja lengstu og vafalítið leiðinlegustu útskrift sem ég hef verið viðstödd (fjölskyldan kom síðar). Samt sé ég alls ekki eftir að hafa mætt á athöfnina, enda einhvers konar formlegur endapunktur á þessu námsbrasi. Að geispaköstunum loknum tókum við mamma, pabbi, Sigurður og amma til hendinni í eldhúsinu áður en gestirnir streymdu að um sex-leytið. Amminamminamm og hahaha og ahhhh... lýsir veislunni best ;) Mamma sýndi snilldartakta við grillið, t.d. heppnuðust sauðburðarlaunin mín frá Stað, þ.e. nokkrir lambavöðvabitar, ógurlega vel (takk aftur kærlega, Fríða og Eiríkur!!!). Ég eeeelska matarboð með ættingjunum, enda snillingar upp til hópa, hver á sinn hátt :) Síðustu gestirnir kvöddu um miðnætti, en ég lagði ekki af stað inn í draumalandið fyrr en um hálf tvö, enda ómögulegt að fara strax að sofa...

... sem var ofurlítið óhentugt morguninn eftir því lítil prinsessa var skírð í Hveragerði á hádegi, en það þýddi að við þurftum að fara á fætur klukkan tíu. En það hafðist nú allt á endanum. Í Hveragerði tók við annað dásemdar fjölskylduboðið. Það var sem sé móðursystir Sigurðar sem hélt nýjustu dömunni undir skírn (af 13 afkomendum afa síns og ömmu er Sigurður eini karlmaðurinn - magnað!). Úffminnsann, það var mikið og gott borðað. En við létum ekki staðar numið þar, því eftir ofátið í Hveragerði héldum við Sigurður ásamt foreldrum hans, Sylvíu systur, Hörpu systur og Magga kærasta hennar til foreldra Magga (já, ég þarf að fara að teikna upp ættartré...) sem eru með kúabú rétt hjá Flúðum. Þau biðu okkar með kaffi og kökur. Slúrrp. Við röbbuðum heilmikið, kíktum út í húsin og fjósið, borðuðum pítsu, spiluðum á spil og héldum ekki heim á leið fyrr en um hálf ellefu. Dúbbídú. Ég lagði mig á leiðinni í bæinn og tók svo að mér hlutverk Ungfrú mygluð nr 1 ;) Ég stillti vekjaraklukkuna hálftíma seinna en venjulega, en það dugði ekki til, því ég vaknaði ekki fyrr en 25 mín eftir að hún fór í gang í morgun. Hmm... spurning um að fara snemma að sofa í kvöld? ;)

Hafið það gott á morgun, 17. júní!