fimmtudagur, júní 26, 2008

út um allt

Púff, ég er varla búin að vera nokkuð heima hjá mér síðustu vikuna! Raunar er allt búið að vera á hér um bil fullu síðan nokkru fyrir útskriftina (14. júní). En sum sé síðasta fimmtudag var kvennaferð Orkugarðs út í óvissuna strax eftir vinnu og langt fram á kvöld. Við byrjuðum á því að þenja raddböndin undir styrkri stjórn Sigrúnar, stjórnanda Kvennakórs Reykjavíkur. Meira að segja tvíraddað :) Agalega gaman! Þá settumst við inn í rútu (með kvenbílstjóra, hvað annað) og héldum í átt að Keili og gengum niður Lambafellsklof (eða -gjá). Það voru greinilega ekki allar í hópnum sem vissu að þegar Ragna Karlsdóttir (einn skipuleggjenda óvissuferðarinnar) segir að koma þurfi með góða skó þá sé átt við gönguskó. Hallinn niður gjána er töluverður í moldarmöl og grjóti. En allar komumst við niður gjána, þrátt fyrir misskynsamlegan skóbúnað, og settumst í grasbalann framan við gjána, kátar og glaðar, að víni, ostum, kexi, vínberjum og þurrkuðum ávöxtum. Smjatt! Með rútunni héldum við svo á A. Hansen þar sem gourmet sveppasúpa og kjúklingasalat beið okkar. Ég stóð á blístri! Kom ekki heim fyrr en klukkan að verða tólf, með stóra gula bílnum.

Nújæja, á föstudaginn ákváðum við Sigurður um klukkan fimm, hálf sex að drífa okkur í útilegu. Við rukum til og keyptum inn heljarinnar matarbirgðir, pökkuðum í snatri og brunuðum af stað. Vorum að vísu stoppuð á Njarðargötunni af rólegheita andamömmu með nokkra unga á eftir sér, sem þurfti aðeins að ýta á eftir yfir götuna... Við gistum í Úthlíð fyrstu nóttina og kíktum svo á Geysi og Gullfoss áður en við brunuðum að Drumboddsstöðum til að fara í fljótareið (river rafting) í Hvítá. Hvílík snilld! Vorum líka rosalega heppin með bátsfélaga og formann. Ímyndið ykkur t.d. að vera tíu saman í stórum gúmbát úti í miðri Hvítá, standa saman allan hringinn á kantinum á bátnum ooog... "Höfuð, herðar, hné og tær, hné og tær...." Þið getið rétt ímyndað ykkur hvernig sú leikfimi endaði ;) Splass!!! Eftir volkið í Hvítá héldum við á Laugarás þar sem við grilluðum á fjölskyldutjaldstæðinu. Náðum því rétt áður en fór að rigna og ókum svo í rigningunni niður á Selfoss þar sem við fundum sjoppu sem sýndi leik Rússa og Hollendinga. Jújú, við erum alveg forfallin ;) Við enduðum daginn með labbitúr á Stokkseyri, m.a. annars gegnum grashaf sem nefið á mér varð afar ósátt við. Við tjölduðum þarna en ekki svaf ég vel með stíflað nef og pirruð augu :P Það skipti samt engu máli. Veðrið var áfram glimrandi gott daginn eftir og við skelltum okkur á kajak á tjörnunum og skurðunum við Stokkseyri. Dömluðum þar í um tvo klukkutíma áður en við renndum okkur ofan í heita pottinn við sundlaugina. Aahhhh... Ókum þá bílnum út að sjó og borðuðum nesti inni í bíl meðan rigningin hreinsaði bílinn svolítið og við nutum útsýnisins. Við héldum svo heim á leið Krýsuvíkurleið, með viðkomu á skemmtilegu hversvæði og hinn víðfrægu Strandarkirkju. Um kvöldið renndi ég svo upp í Mosó til að hitta Jóhönnu veðurfræðing, Óla fiðlu, Kate kærustuna hans, Karolinu hina pólsku og fleiri góða vini. Kom svo auðvitað alltof seint heim miðað við lítinn svefn í tjaldinu, en hva, það er nú sumar! ;)

Á mánudaginn komu Harpa systir Sigurðar og Maggi hennar til að grilla með okkur. Úr varð indælis kvöldverðarveisla með taflmennsku að auki - Harpa gegn Magga, en Harpa hlaut dygga hjálp frá okkur Sigurði og hafði sigur að lokum.

Nú nú, á þriðjudagskvöldið var kökukvöld hjá okkur eldri eðlunum (stelpur í stæ+eðl) hjá Ástu og Maríu Önnu í Innri-Njarðvík. Hin skemmtilegasta íbúð sem þær eru í. Reyndar náði ég ekki að skoða hana alla, en það er þá bara ástæða til að kíkja aftur í heimsókn :) Aftur var haldið heldur seint heim á leið ef mikið át og komið alltof seint í bólið. Ge-e-eisp!

Í gærkvöldi renndi ég til afa og ömmu í Sigtúnið, því ég hafði enn ekki haft tækifæri til að óska afa til hamingju með afmælið 19. júní! Greip með mér afgang af gulrótarköku frá kökukvöldinu góða. Sat svo og gerði við buxur og vindbuxur í þessari dásamlegu saumavél sem amma á. Alveg brill.

Í kvöld renndi ég eftir kvöldmat til pabba og mömmu með hina gulrótarkökuna sem kom út úr ofninum, sem eftirmat fyrir þau og Helga Haraldsson og Dinu konuna hans, sem voru í heimsókn. Smjatt-kjamms-mjúmms... ;)

Og núna er klukkan enn einu sinni orðin of margt, ég er rokin í bólið, góða nótt!

mánudagur, júní 16, 2008

magafylli og gott betur

Þetta var nú meiri dýrðarinnar áthelgin! Mamma var heldur spennt alla vikuna, að velta komandi útskriftargrillveislu fyrir sér. Hún var svo sniðug að taka sér frí allan föstudaginn svo hún nyti undirbúningsins í stað þess að fyllast af stressi. Amma á Akureyri kom líka með flugi um hálf ellefu á föstudagsmorguninn. Mamma náði svo í okkur pabba um hálf tvö og eftir heilmikið krafs á innkaupalista lögðum við feðgin af stað í Bónus og Hagkaup. Mikið vorum við fegin að komast að versla fyrir 4-umferðina! Svo var spáð og spekúlerað fram til fimm, þegar við pabbi renndum í Sigtúnið, hann til að ná í tvo stóla en ég til að fá lánaða javanál hjá ömmu. Afgangur kvöldsins fór svo að mestu í að nota javanálina til að ganga frá lausum endum á "ermum" til að vera í við útskriftarkjólinn - EM í fótbolta byrjaði mátulega fyrir mig svo það rokgekk að prjóna ermarnar, enda fátt eins notalegt og að prjóna meðan maður fylgist með úrvals fótbolta ;)

Laugardagurinn hófst á ýmsu stússi fyrir grillið og svo fór ég um klukkan eitt upp í Laugardalshöll til þess að sitja lengstu og vafalítið leiðinlegustu útskrift sem ég hef verið viðstödd (fjölskyldan kom síðar). Samt sé ég alls ekki eftir að hafa mætt á athöfnina, enda einhvers konar formlegur endapunktur á þessu námsbrasi. Að geispaköstunum loknum tókum við mamma, pabbi, Sigurður og amma til hendinni í eldhúsinu áður en gestirnir streymdu að um sex-leytið. Amminamminamm og hahaha og ahhhh... lýsir veislunni best ;) Mamma sýndi snilldartakta við grillið, t.d. heppnuðust sauðburðarlaunin mín frá Stað, þ.e. nokkrir lambavöðvabitar, ógurlega vel (takk aftur kærlega, Fríða og Eiríkur!!!). Ég eeeelska matarboð með ættingjunum, enda snillingar upp til hópa, hver á sinn hátt :) Síðustu gestirnir kvöddu um miðnætti, en ég lagði ekki af stað inn í draumalandið fyrr en um hálf tvö, enda ómögulegt að fara strax að sofa...

... sem var ofurlítið óhentugt morguninn eftir því lítil prinsessa var skírð í Hveragerði á hádegi, en það þýddi að við þurftum að fara á fætur klukkan tíu. En það hafðist nú allt á endanum. Í Hveragerði tók við annað dásemdar fjölskylduboðið. Það var sem sé móðursystir Sigurðar sem hélt nýjustu dömunni undir skírn (af 13 afkomendum afa síns og ömmu er Sigurður eini karlmaðurinn - magnað!). Úffminnsann, það var mikið og gott borðað. En við létum ekki staðar numið þar, því eftir ofátið í Hveragerði héldum við Sigurður ásamt foreldrum hans, Sylvíu systur, Hörpu systur og Magga kærasta hennar til foreldra Magga (já, ég þarf að fara að teikna upp ættartré...) sem eru með kúabú rétt hjá Flúðum. Þau biðu okkar með kaffi og kökur. Slúrrp. Við röbbuðum heilmikið, kíktum út í húsin og fjósið, borðuðum pítsu, spiluðum á spil og héldum ekki heim á leið fyrr en um hálf ellefu. Dúbbídú. Ég lagði mig á leiðinni í bæinn og tók svo að mér hlutverk Ungfrú mygluð nr 1 ;) Ég stillti vekjaraklukkuna hálftíma seinna en venjulega, en það dugði ekki til, því ég vaknaði ekki fyrr en 25 mín eftir að hún fór í gang í morgun. Hmm... spurning um að fara snemma að sofa í kvöld? ;)

Hafið það gott á morgun, 17. júní!

mánudagur, júní 09, 2008

skorarfulltrúi

Það að hafa verið skorarfulltrúi í þrjú ár virðist hafa tryggt mér setu í eðlisfræðiskor fyrir lífstíð, a.m.k. af hliðarlínunni. Ég er sem sé ennþá á póstlistanum þrátt fyrir eina formlega tilkynningu um að ég sé ekki lengur skorarfulltrúi og tvær beiðnir um að kippa mér af póstlistanum. Baah. Nema þeim þyki svo indælt að hafa einn kvenmann á listanum og vilji ekki breyta þeirri tölu í núll? Spurning.

miðvikudagur, júní 04, 2008

austanátt

Ég ákvað að reyna að hjóla í vinnuna þetta sumarið. Það hefur gengið ágætlega hingað til, tekur mig núna um hálftíma. Þar sem ég bý í vesturbæ og vinn við Grensásveginn, þ.e. lengst austur í bæ, þá er kröftug austlæg átt á morgnana ekki sérlega vinsæl. Þetta er nógu mikið púl fyrir, svona snemma morguns. Raunar er það smá sárabót þegar austanáttin eykst og eykst yfir daginn, eins og gerðist í dag, þannig að ég fæ að hjóla í hávaðaroki heim á leið án þess að finna til nokkurra óþæginda - svíf þetta bara :) En lognið eða andvarinn eru nú samt betri að mínu mati...

sunnudagur, júní 01, 2008

góðir grannar

Var ég einhvern tíma búin að minnast á að þegar við fluttum inn hér á Eggertsgötu 20, þá vildi svo skemmtilega til að parið við hliðina á, þau Óli og Inga, voru með mér í MH auk þess sem Óli var með mér á barnaheimilinu Ósi. Fyrir neðan okkur býr svo hún Sólveig ásamt kærastanum sínum, en hún var með mér í bekk í bæði Laugarnesskóla og Laugalækjarskóla og sérlega góð vinkona á hinum miklu fótbolta- og útileikjaárum. Skömmu fyrir prófatíð fluttu þau Óli og Inga í Hlíðarnar (með smá millistoppi að vísu, en Hlíðarnar eru endastöðin - í bili auðvitað ;) ). Í þeirra stað komu þau Steinunn og Egill. Og bíðum nú við - Egill var skólabróðir minn í grunnskóla! Ég get svo svarið það, alger snilld :)

fimmtudagur, maí 29, 2008

aaaaarrrrrgg!!!

Helv**** fíflin í háskólaþjónustumiðstöð Svíþjóðar (VHS) halda því fram að ég uppfylli hvorki kröfur um BS próf í eðlisfræði eða stærðfræði né kröfur um enskukunnáttu þótt ég hafi sent þeim alla nauðsynlega pappíra! Ég er búin að senda tölvupóst til eðlisfræðideildar Lundarháskóla og biðja þá um að kippa þessu í liðinn, því það er gersamlega vonlaust að hafa samband við VHS. Djö, hvað ég er orðin þreytt á þessum asnaskap. Grrrr....

mánudagur, maí 26, 2008

mætt á mölina

Júmms, ég er komin heim á ný, nývöknuð af "vetrarsvefninum" og endurnærð, með helling af alls kyns gúmmulaði kjöti í farteskinu og reyktan rauðmaga í lange baner, skrámuð og marin á höndum og fótum, lambalyktin farin að dofna heldur mikið í lúkunum en fjárhúsið þó hangandi enn í hárinu. Er hægt að hafa það betra?

Ég mætti til vinnu á ÍSOR í morgun. Er fyrsti sumarfuglinn til að mæta þangað, svei mér þá. Mér sem fannst ég vera að birtast svo seint! :P Skilst þó að einhverjir ætli að sýna sig í þessari viku, sem verður ágætt, það er jú alltaf skemmtilegra að hafa félagsskap þarna á sumarfuglasvæðinu. Ég á að halda áfram með þessa grein sem ég hélt ég hefði klárað (fyrir mitt leyti) síðasta sumar. En nei, nú á að bæta einhverju við. Ojamm-ojá. Sosum ágætt, en mig langar líka til að fá að skoppa eitthvað út í náttúruna í sumar með geggjaða mæla á herðunum. Held það hljóti að verða eitthvað um það, því ég efast um að greinarskrifin endist út sumarið, þetta er svoddan smotterí sem er eftir.

Pabbi skynjaði greinilega að manneskja sem er búin að brasa í sauðburði 14 tíma á sólarhring í heila viku hafi þörf fyrir kjarngóðan kvöldverð, því ég var bæði drifin að eldhúsborðinu þeirra pabba og mömmu í gær og í dag :) Kjamms-smjatt-kjúmms. Sigurður er jú fyrir norðan og það tekur því varla að elda mikið fyrir einn... ;) Þetta er annars merkilegt, í þriðja sinnið mistekst okkur að vera í sauðburði í sveitunum okkar á sama tíma, hann fer alltaf norður skömmu áður en ég kem heim að vestan. Við erum pínu spes í skipulaginu - eða er skipluagið með pínu spes meðferð á okkur?

E.S. Fríða: Amma þakkar kærlega fyrir sig og er strax farin að íhuga hvaða lit af pálíu hún eigi að senda þér næsta vor! ;)

sunnudagur, maí 18, 2008

sauðburður

Ég er búin með tölvueðlisfræðiverkefnið mitt (jei! :D ) og er núna í kapphlaupi við tímann að pakka, prenta verkefnið, skila bíl o.s.frv. o.s.frv. áður en ég stekk upp í rútu sem leggur af stað frá BSÍ klukkan eitt. Ég bið því bara að heilsa í bili!

fimmtudagur, maí 15, 2008

afmælisþrenna

Í gær áttum við Sigurður 2 ára afmæli saman - og gleymdum því bæði, blessaðir sauðirnir. Í dag fagnar Hugi frændi 17. afmælisdeginum sínum (til hamingju frændi!). Á morgun verður amma í Sigtúni 81 árs, en hún virkar reyndar 10 árum yngri en svo. Alltaf gaman um miðjan maí ;)

þriðjudagur, maí 13, 2008

einu sinni var...

http://www.procidis.com/. Ég elska þessa þætti :)

Annars gerði tölvueðlisfræðiverkefnið það sem við mátti búast - varð tímafrekara en ég kæri mig um :P Ég kemst sem sé ekki vestur á Stað í sauðburðinn fyrr en í fyrsta lagi á föstudagskvöld og get þ.a.l. ekki mætt til vinnu fyrr en mánudaginn 26. maí. Pínu bömmer, því ég hefði gjarna viljað klára verkefnið á morgun, bruna í sveitina á fimmtudagsmorgni og mæta í vinnuna fyrir helgi. En jæja, hvað um það, ég fæ þá kannski rúma viku í sauðburðinum ef ég næli mér í far á föstudagskvöldi eða laugardegi...