laugardagur, febrúar 24, 2007

systir kær

Bjarnheiður systir er mætt á klakann í tveggja vikna heimsókn :) Með henni komu m.a. tvær könnur til að skilja fitu úr steikarsoði (sem fer í sósuna, soðið sko), stafræn myndavél fyrir afa og ömmu í Sigtúni, hellingur af alls konar nostalgíulegu súkkulaði frá A-Þýskalandi (í upprunalegu umbúðunum frá 7. áratugnum o.s.frv.), 2GB minnislykill fyrir mig ásamt kremkrúsum og sápu og 7 pökkum af Fisherman's Friend :D Svo er von á Baldri bróður & fjölskyldu og afa & ömmu í Sigtúni í mat í kvöld. Held það verði heilmikið gaman að kenna afa og ömmu á nýju myndavélina þeirra :) Þau hafa nefnilega einungis átt filmumyndavél til þessa, en svo eftir að þau hafa fengið geisladiska með myndum á til að skoða í sjónvarpinu (fengu DVD spilara með slíkum diski í jólagjöf frá Baldri bróður fyrir nokkrum árum) og afi hefur skoðað útprentaðar stafrænar myndir hjá félaga sínum í tréskurðinum sem eru síst verri en filmumyndirnar, þá ákvað afi að það væri kominn tími til að kynna sér þessa tækni. Afi er 85 ára. Hörkukarl :) Næsta skref er svo að redda almennilegum litaprentara sem við getum átt í félagi við þau, þ.a. báðar fjölskyldur geti prentað út þær myndir sem vill. Hinar myndirnar brennum við á geisla- eða mynddiska fyrir þau.

fimmtudagur, febrúar 22, 2007

hressleikinn allsráðandi

Fyrir rúmri viku tóku nokkrir eitlar aftan á hálsi og við nára upp á því að bólgna ofurlítið upp og verða leiðinlega aumir. Síðustu daga hefur svo gífurleg þörf fyrir að leggja mig sí og æ og sofa álíka mikið og ungabarn hreiðrað um sig í mínum kroppi. Ég hringdi í Guðmund lækni á mánudag og var send í blóðprufu. Hitti hann svo í gær og kom þá í ljós að ég er líkast til með einkirningasótt, sem er veirusýking og þar með ekkert hægt að gera við henni. Hálsbólgan mín fyrir tæpum mánuði var sem sé upphaf blómaskeiðs þessarar veiru í líkamanum. Þar mun hún væntanlega halda partý í svo sem tvær vikur enn, en þá eitthvað fara að róast. Partýljónið mun hins vegar ekki bugast fyrr en að 3-6 mánuðum liðnum. Ég verð sem sé að hegða mér eins og hálfgerður eymingi þann tíma, þ.e. sofa nóg (m.ö.o. of mikið), ekki blotna, ekki verða of kalt o.s.frv. Sem sé hressleikinn allsráðandi.

laugardagur, febrúar 10, 2007

hingað og þangað

Bendi ykkur á tvo sjóðheita pósta og einn m.a. með mynd af Leibniz kexi. Annars vegar gagnrýni á íslenska fréttamennsku og hins vegar um fólk sem upphaflega gróf höfuðið í sandinn en gjuggaði a.m.k. ofurlítið upp úr sandinum skömmu síðar.

fimmtudagur, febrúar 08, 2007

hið „ljúfa“ líf

Ég reis upp úr veikindabólinu síðasta laugardag - og endaði þá beint í 3 klukkustunda löngum algebruaukatíma (kennarinn var úti í 2 vikur...). Skildi varla bofs í efninu eftir vikuveikindi. Fór heim eftir það, borðaði heilan helling og lagði mig. Steinrotaðist öllu heldur. Hef sjaldan verið jafn mygluð og þegar ég steig fram úr bólinu á ný (spyrjið Sigurð). Hresstist samt töluvert við að búa til fimm pítsur með þeim Matthíasi og Bjarka bróðursonum mínum og ofurkokkum. Síðan þá hefur ofurvaxinn risaverkefnahaugur sýnt stærri og stærri hluta af sér. Námsefni síðust tveggja vikna í algebru hefur alveg farið fyrir ofan garð og neðan hjá mér. Það tekur mig endalausan tíma að reikna í rafsegulfræði 2 þar sem ég á eftir að reikna a.m.k. 2 dæmaskammta. Verkleg eðlisfræði hrúgar upp gagnahaug sem er svo gallaður að hr. Murphy hlýtur að vera rígmontinn af sjálfum sér, ásamt tilheyrandi setti af ómögulegum eða illskiljanlegum líkönum til að laga gögnin að. Stærðfræðigreining IVB er það eina sem ég held einhverjum dampi í - og það er bara vegna þess að ég hef kynnst þessu svo til öllu saman í inngangi að hagnýttri stærðfræði og hinum ýmsustu eðlisfræðikúrsum (einkenni eðlisfræðinámsins eru jú: þú notar einhverjar stærðfræðiaðferðir til þess að leysa eðlisfræðiverkefni áður en þú hefur þannig séð lært aðferðirnar, og lærir þessa stærðfræði svo 1-2 önnum síðar í stærðfræðigreiningu...). Er ég í djúpum skít eða er ég í hyldjúpum skít?

þriðjudagur, janúar 30, 2007

urrr...

Ég er komin með einhverja sýkingu í hálsinn. Afkasta þar af leiðandi ekki miklu. Ég er sem betur fer ekki í neinum tímum á þriðjudögum. Gat þ.a.l. haldið mig heima, púhaa... Átti reyndar að skila dæmum núna fyrir hádegi í stærðfræðigreiningu IVB. Reyni bara að fá að skila á morgun. Átti líka að hitta Örn kennara í verklegu eðlisfræðinni, en Pétur hópfélagi er veikur. Sigurður er líka búinn að vera stútfullur af kvefi unandfarið, og er enn. Þetta hefði því verið mikið stuð fyrir Örn blessaðan að fá okkur þrjú til sín, bakteríubomba! Ég hata, hata, hata kvef... >Þ

mánudagur, janúar 22, 2007

plús og mínus

Það er hálfgerð synd finnst mér að nú sé hitastigið komið upp fyrir frostmark og snjórinn óðum að hverfa. Hann lýsir svo vel upp og gerir allt töluvert hreinlegra. Hins vegar er ég fegin að vera laus við 7-9°C frost og gleðst einnig fyrir hönd þeirra sem eiga erfiðara en ég með að brjótast yfir snjóruðningana. Verst að veðrið geti ekki haldið sig þarna mitt á milli, þ.e. haft 10 cm snjó og -2°C. Það væri algert yndi - og er þar með auðvitað alveg óhugsandi, hreinustu draumórar... ;)

laugardagur, janúar 13, 2007

tími til að pikka

Mikið var nú gott að stinga af í frí! Ég sat við verkefnavinnuna til miðnættis á nýársdegi, pakkaði þá og var komin í bólið rúmlega eitt. Var þá auðvitað alltof spennt til að geta sofnað. Hrökk svo upp um tvöleytið, þegar ég var um það bil að sofna, við þá uppgötvun að ég hefði gleymt að skrifa um eitt atriði í verkefninu. Dæmigert... ;) En loks kom Óli lokbrá og ég fékk minn u.þ.b. fjögurra tíma svefn, því klukkan hálf sjö varð ég að skríða á lappir til að komast í flugið kl 7:45. Var svo ekki lengi að smella inn í "borða-synda-borða-leggja sig-borða-leggja sig-borða-sofa-..." taktinn hjá afa og ömmu. Nóg af góðum mat, jólakökum og heitu ekta súkkulaði með rjóma :) Færðin og veðrið voru svo ekki of vinsamleg á fimmtudeginum 4. jan, enda ekki við öðru að búast miðað við árstíma. Jón Dór, pabbi Sigurðar, bjó sér því til erindi inn á Akureyri og nældi sér í far þangað. Ók mér og Hörpu svo austur á Ærlæk á skódanum hennar Hörpu um kvöldið. Þar var áti, hvíld, spjalli og labbitúrum haldið áfram og auðvitað nokkur handtök tekin í fjárhúsunum ásamt því að sjóða sig vel og lengi í heita pottinum. Alltaf gott að koma á Ærlæk, enda prýðisfólk þar og skemmtilegt :) Svo þurfti að halda aftur í stórborgina, búhú. Skólinn fór í gang strax klukkan átta á mánudagsmorgni, úffffff... erfitt að vakna eftir að hafa lúrt fram yfir hádegi undanfarið :P Síðan þá hefur lífið smátt og smátt færst í sitt gamla horf: skóli, skóli, skóli, skóli... Eins og venjulega slæðast óvenjumörg "óskólaleg" verk inn á milli, enda næ ég aldrei að komast yfir allt sem ég vil í jólafríinu. Sérstaklega þegar sérverkefni leggur stóran hluta þess undir sig... Mér líst annars vel á önnina, hæfileg blanda af stærðfræði og eðlisfræði. Vona bara að áfangarnir verði ekki of feitir og pattaralegir ;)

mánudagur, janúar 01, 2007

haha

Gleymdi að segja ykkur í fyrradag frá alveg hreint stórskemmtilegu atviki. Í hittífyrrakvöld kúrði ég mig sem sé undir sæng í herberginu hennar Bjarnheiðar (niðri í kjallara) og spjallaði í gemsa við minn ástkæra. Það eru alltaf einhverjir sem ganga gegnum bílskýlið hjá okkur og sem ég lá þarna, ganga nokkrir ungir menn í gegn. Einn þeirra vippar sér inn í garðinn með orðunum: "Strákar, ég ætla aðeins að pissa." (eða einhverju álíka). Áður en ég næ að rísa upp er drengurinn, með hendurnar á buxnastrengnum, búinn að reka upp þessi líka risastóru augu við að sjá grilla í mannveru inn um gluggann - beint fyrir framan hann - og þotinn til baka fyrir hornið, inn í bílskýlið. Hahaha, ég svoleiðis sprakk úr hlátri :D Nema hvað, þar sem ég er í miðri frásögn af þessum bráðskemmtilega atburði, rekur strákskinnið höfuðið fram yfir tröppurnar upp að garðhurðinni, eins og til að athuga hvort það hefði ekki örugglega verið einhver þarna. Svo ég veifaði bara kankvís til hans - og hann var horfinn á nóinu ;) Hvílíkt hláturkast sem ég fékk. Hver sem þetta var, þá vil ég þakka honum fyrir u.þ.b. eitt ár af auka lífi... ;D

Gleðilegt nýtt ár, öllsömul!

laugardagur, desember 30, 2006

jólafrí trallarí

Jólafríið mitt stóð frá 22. til 25. desember. Strax á annan í jólum byrjaði ég á að hita upp fyrir lokaárás á sumarverkefnið mitt hjá ÍSOR. Gaf mér samt tíma til að hafa það gott með Baldri bróður og fjölskyldu þegar þau komu í mat um kvöldið og spila með þeim púkk á eftir. Síðan hef ég setið yfir verkefninu frá u.þ.b. hálf ellefu að "morgni" og fram yfir miðnætti alla daga, með hléum til þess að borða, fara í sund, leika bílstjóra af og til o.s.frv. Að meðaltali hafa þetta væntanlega verið 8-9 klst á dag nema hvað í gær bakaði ég hinn árlega kastaníuhnetuhring og það rændi mig heilum tveim tímum (grrr...) og fór í afmæli Kristínar Þóru, svo þetta urðu ekki nema 6 klst. Ég stefndi á að klára í dag, en eins og ég bjóst fastlega við þá hefur herra Murphy bankað upp á nokkrum sinnum svo ég stórefast í augnablikinu :P Sjáum til, sjáum til... Almennilega fríið mitt hefst svo klukkan 7.45 að morgni 2. janúar þegar ég flýg norður á Akureyri til að slappa af með afa og ömmu og öðrum ættingjum þar. Að kvöldi 4. janúar eða þann 5. mun ég svo líklegast aka Hörpu, systur Sigurðar, og sjálfri mér í bílnum hennar austur á bóginn á Ærlæk. Tek svo flugið á sunnudagskvöldi, 7. jan., til að mæta í háskólann 8. janúar. Þetta verður nú meiri skreppitúrinn...

sunnudagur, desember 24, 2006

kertasníkir


Þrettándi var Kertasníkir,
-þá var tíðin köld,
ef ekki kom hann síðastur
á aðfangadagskvöld.

Hann elti litlu börnin,
sem brostu glöð og fín,
og trítluðu um bæinn
með tólgarkertin sín.





-- Gleðileg jól! --