mánudagur, janúar 01, 2007

haha

Gleymdi að segja ykkur í fyrradag frá alveg hreint stórskemmtilegu atviki. Í hittífyrrakvöld kúrði ég mig sem sé undir sæng í herberginu hennar Bjarnheiðar (niðri í kjallara) og spjallaði í gemsa við minn ástkæra. Það eru alltaf einhverjir sem ganga gegnum bílskýlið hjá okkur og sem ég lá þarna, ganga nokkrir ungir menn í gegn. Einn þeirra vippar sér inn í garðinn með orðunum: "Strákar, ég ætla aðeins að pissa." (eða einhverju álíka). Áður en ég næ að rísa upp er drengurinn, með hendurnar á buxnastrengnum, búinn að reka upp þessi líka risastóru augu við að sjá grilla í mannveru inn um gluggann - beint fyrir framan hann - og þotinn til baka fyrir hornið, inn í bílskýlið. Hahaha, ég svoleiðis sprakk úr hlátri :D Nema hvað, þar sem ég er í miðri frásögn af þessum bráðskemmtilega atburði, rekur strákskinnið höfuðið fram yfir tröppurnar upp að garðhurðinni, eins og til að athuga hvort það hefði ekki örugglega verið einhver þarna. Svo ég veifaði bara kankvís til hans - og hann var horfinn á nóinu ;) Hvílíkt hláturkast sem ég fékk. Hver sem þetta var, þá vil ég þakka honum fyrir u.þ.b. eitt ár af auka lífi... ;D

Gleðilegt nýtt ár, öllsömul!

Engin ummæli: