sunnudagur, apríl 30, 2006

lokasprettur

Mig vantar svona sumarsveina og/eða -meyjar með myndum og tilheyrandi vísum til að hafa afsökun fyrir því að blogga á hverjum degi í prófatörninni, eins og fyrir jól. Er annars bara andlaus og skemmti mér á köflum yfir mengjum og firðrúmum, teljanleika og óteljanleika, þjöppun og einslegri samfelldni. Spurning hvort ég sé viðræðuhæf? Þið megið alveg reyna ;)

fimmtudagur, apríl 20, 2006

sumar

Gleðilegt sumar öllsömul.

Strætókortið mitt rann út laugardaginn fyrir páska. Það smellpassaði, því síðan þá hefur verið afskaplega þægilegt hjólaveður (á íslenskan mælikvarða). Ég er því afar hamingjusöm hjólaskvísa þessa dagana.

Hjá mér byrja prófin 2. maí og eru búin 13. maí. Ég býst við að ég bruni vestur í sauðburðinn innan tveggja sólarhringa eftir það. Verð þar svotil sambandslaus í rúma viku, því það þarf að rölta um 1 km inn eftir vegi eða niður að sjó til að ná gemsasambandi. Þó má alltaf nota afgamla tækni eins og fastlínusíma ef í nauðir rekur ;) Veit hins vegar ekki hvort ég hætti á að líta á tölvupóst því þá gæti ég freistast til að athuga með einkunnir í leiðinni... :P

Ég verð að vinna á ÍSOR í sumar eins og í fyrra. Mögulega verð ég send til Potsdam í Þýskalandi í einhverjar bergkjarnamælingar á rannsóknastofu í júní og kannski eitthvað í júlí. Það er samt allt í biðstöðu - held þeir þori ekki að gera neinar áætlanir því þær breytast hvort eð er alltaf eftir í mesta lagi eina viku... Það væri sossum ekkert verra að komast smávegis út, kíkja í H&M og svona ;)

Þar fyrir utan er allt þetta sama að frétta, ég á bólakafi í tómu tjóni og mikið stuð.

Bið að heilsa.

mánudagur, mars 27, 2006

evróvisjón

Örstutt „fréttatilkynning“ í táknum og tónum:

Góðir hálsar.
Þrátt fyrir ófarir síðasta árs á tónlistarsviðinu læra ráðamenn þjóðarinnar ekki af mistökum sínum. Enn er fullkomlega óausturevrópuvænt lag á leið til Grikklands sem framlag íslensku þjóðarinnar til Júróvisjónkeppninnar. Þetta er fullkomlega óásættanlegt. Við látum ekki bjóða okkur þetta lengur. Tími er kominn til að bíta í skjaldarrendurnar, draga fram loðhúfurnar og hrópa öll sem eitt:

Til hamingju Austur-Evrópa!

Góðar stundir,

Við köllum okkur Helvíti góða,
Kristján Eldjárn & Grímur Hjörleifssynir

föstudagur, mars 24, 2006

dadda-radda-dadda-DAAD

Nei, þetta er ekki hrynæfing frá Jóni Hrólfi. Ég lauk tónfræði&tónheyrn fyrir nokkrum árum. Snillingurinn hún systir mín fékk hins vegar tilkynningu núna á þriðjudaginn um að hún hefði hlotið styrk frá "þýsku menntaskiptaþjónustunni" (DAAD - Deutscher akademischer Austauschdienst) til náms í Þýskalandi skólaárið 2006-2007 :D Hæhó-og-jíbbí-jei-og-jibbí-í-jei!

Það nýjasta af mér er annars að ég gleymdi því að ég átti miða á Sinfó núna í gærkvöldi. Mundi það kl 19.55 en tónleikarnir byrjuðu 19.30. Brunaði vestur eftir á (löglegu) spani. Missti af 9. sinfóníu Sjostakovítsj, en náði að heyra mest allan 2. píanókonsertinn hans (sitjandi í stiganum, huggulegra en ég bjóst við) og svo 10. sinfóníuna, alla, eftir hlé (þá sitjandi í eigin sæti...). Þetta eru sinfóníutónleikar númer tvö sem ég gleymi í ár. Hinum gleymdi ég alveg, enda voru þeir á óhefðbundnum tíma kl 15 á laugardegi - laugardegi eftir vöku til kl 5 að klára tölulega greiningu, laugardegi undirbúnings verklega hluta eðlisfræðikeppni framhaldsskólanema.
Annaðhvort er afneitun mín á því hversu djúpt í skítnum ég er, orðin svona öflug eða ég er orðin prófessorslegri en ég kæri mig um...

miðvikudagur, mars 15, 2006

hætt við

Í dag rann út umsóknarfrestur um Erasmus skiptinám. Í dag greiptist vikugömul ákvörðun mín í stein. Ég hætti við að fara til München.
Hvers vegna? Jú, ég ákvað að fara út áður en ég byrjaði í HÍ. Áður en ég fór á 2. ár. Áður en ég tók Eðlisfræði 3 (inngangur að skammtafræði) eða Eðlisfræði 4 (nútímaeðlisfræði-bland-í-poka) og áttaði mig á því að ársfrí frá skammtafræði er ekki sniðug hugmynd þegar maður lendir beint í gini ljónsins við heimkomu (Skammtafræði 1 með Þórði Jóns, úje!) og félagarnir búnir og farnir. Áður en ég fór í Mengi og firðrúm (1. árs námskeið) og komst að því að einhverra hluta vegna vinnur maður með sínum árgangi eða endar bara svolítið utanveltu, einn á báti. Áður en ég komst að því að upplýsingar á vefsetri TUM eru af skornum skammti og svör við fyrirspurnum berast seint eða aldrei. Áður en ég áttaði mig á því að ég hef engan áhuga á að fara út og læra og læra, án þess að vera viss um að fá áfangana metna sem hliðstæðu skyldunámskeiða í HÍ og geta kannski ekki útskrifast með stærðfræði B.Sc. Áður en ég sá að þetta allt saman er of hátt "gjald" fyrir að skoða einn mögulegan skóla til framhaldsnáms, anda að mér öðru lofti o.s.frv., miðað við að klára grunnnámið á sveigjanlegri hátt hér heima í góðra félaga hópi.
Kom í faðm minn, ástkæra íslenska eðlisfræðinám[sgeggjun]!
Sjáumst á Fróni :)

miðvikudagur, mars 08, 2006

sæl á ný

Hejsan, nú er pínkuponsu lægð milli toppa (sem er náttúrlega bara sjálfsblekking - ég á eftir að vinna allt upp frá síðustu 4-6 vikum ;P ). Törninni lauk með vinnu til kl 4 aðfaranótt laugardagsins...

Um helgina sáum við í eðlisfræðinni m.a. um verklega hlutann í úrslitum eðlisfræðikeppni framhaldsskólanna. Mjög skemmtilegt starf, en ALGER tímasuga: 14-18.30 á lau og 9-16.30 á sun. Sérstaklega þar sem eðlisfræðinemar eru misgleymnir og misfórnfúsir, eins og gengur, svo við vorum miklu færri í þessu en í fyrra og þ.a.l. meiri vinna og tími á mann. Pétur fórnaði samt mestum tíma og vann líka eitthvað að þessu á mið. Úffpúffpúff, einmitt það sem við þurftum á að halda ... eða EKKI! En ég steingleymdi að ég átti miða á Sinfó kl 15 á lau, úbbsasí... Svolítið lýsandi fyrir ástandið.

En það er sem sé allt á góðu róli á ný. Og ég hætt í Svaninum og farin að geta synt og spriklað á ný eftir kvefið.

Hafið þið annars tekið strætó nýlega? Held vagnstjórar séu annaðhvort orðnir galnir, ósáttir við nýja kerfið eða nýja kerfið sé lélegt. Ég hef tekið vagn 12 fjórum sinnum síðan 5. mars (þá var skipt um kerfi) og í fyrstu tvö skiptin var hann 10 mín of seinn, einu sinni á hárrétum tíma og einu sinni 15 mín of seinn (alls ekki 5 mín of fljótur!). Þegar vagninn var á réttum tíma var það rétt eftir endastöð. Hin skiptin voru heima á leið niður í bæ, þ.e. eftir alla ferðina upp í Breiðholt. Þar af var vagnstjórinn í eitt skiptið alveg stórskrýtinn - stoppaði á grænu ljósi og beið á hringtorgi þótt það væri autt: "Halló! úti að aka?"

sunnudagur, febrúar 26, 2006

rugl

Það er ekki ólíklegt að ég bloggi lítið á næstunni. Það er bókstaflega allt klikk í skólanum. Er meira að segja að hugsa um að beila á lúðrasveitinni. Ég varð næstum lasin núna á fimmtudaginn (er raddlaus sem stendur) sem þýddi 10-12 tíma svefnþörf í a.m.k. þrjár nætur og það ásamt morðskiladæmum, stórum heima-/þemaverkefnum, námskynningu um helgina o.fl. o.fl. hefur sett allt á haus. Við erum öllsömul eftirá í öllu og það er sama hvað við reynum, bunkinn bara stækkar. Ég er ekki einungis dauðþreytt á þessu, heldur líka bálreið. Fyrsta árið var slæmt, en þetta er ekki bara geggjun heldur algerlega út í hróa hött, út af kortinu og gersamlega óþolandi. Langt yfir strikið. Og þetta var aðeins brotabrotabrot af stórri reiðigusu....

Þangað til næst; bið að heilsa.

þriðjudagur, febrúar 21, 2006

myndirnar

Búin að laga upplausnina á myndunum; eða a.m.k. að reyna það því enn eru nokkrar að stríða mér og þykjast vera sykurmolar...

laugardagur, febrúar 18, 2006

brandari

Hafið þið heyrt/séð þennan? :D

föstudagur, febrúar 17, 2006

ahh...

Hvað sundið var yndislegt! :)