föstudagur, desember 16, 2011

pottaskefill


Sá fimmti, Pottaskefill,
var skrítið kuldastrá.
- Þegar börnin fengu skófir
hann barði dyrnar á.

Þau ruku upp, til að gá að
hvort gestur væri á ferð.
Þá flýtti' ann sér að pottinum
og fékk sér góðan verð.

fimmtudagur, desember 15, 2011

þvörusleikir


Sá fjórði, Þvörusleikir,
var fjarskalega mjór.
Og ósköp varð hann glaður,
þegar eldabuskan fór.

Þá þaut hann eins og elding
og þvöruna greip,
og hélt með báðum höndum,
því hún var stundum sleip.



Það er heldur mikið að gera þessa dagana. Virðist ekki vera tími til nokkurs annars en sofa, borða, vinna/læra ... og sinna öllum tómstundunum ;) Kóræfingar, badminton og -skipulag, saumó og alls kyns jólastúss hafa hertekið dagana þessa vikuna. En í næstu viku er bara einn vinnudagur og svo jólafríííí! :D

miðvikudagur, desember 14, 2011

stúfur



Stúfur hét sá þriðji
stubburinn sá.
Hann krækti sér í pönnu,
þegar kostur var á.

Hann hljóp með hana í burtu
og hirti agnirnar,
sem brunnu stundum fastar
við barminn hér og þar.



Tjah, þegar maður er farinn að gleyma uppáhaldsjólasveininum sínum, þá er ástandið orðið æði alvarlegt. Barasta aðeins of mikið að gera, sjáið þið til...

þriðjudagur, desember 13, 2011

giljagaur


Giljagaur var annar,
með gráa hausinn sinn.
- Hann skreið ofan úr gili
og skauzt í fjósið inn.

Hann faldi sig í básunum
og froðunni stal,
meðan fjósakonan átti
við fjósamanninn tal.

mánudagur, desember 12, 2011

stekkjastaur



Stekkjastaur kom fyrstur,
stinnur eins og tré.
Hann laumaðist í fjárhúsin
og lék á bóndans fé.

Hann vildi sjúga ærnar,
- þá var þeim ekki um sel,
því greyið hafði staurfætur,
- það gekk nú ekki vel.



Jæja, þótt ég hafi ekki bloggað neitt síðan jólasveinarnir tíndust inn í fyrra, þá er ekki annað hægt en að hleypa þessum elskum að á nýjan leik ;) Mér finnst óttalega lítið að frétta héðan, en væntanlega er það heilmikið þar sem ég hef ekki bloggað í heilt ár... Lífið gengur sinn vana gang með námi/starfi, kórsöng, badmintonspili, handavinnu og hversdagslegu sýsli. Jú, reyndar smávegis jóla jóla í bland þessa dagana :) Aðventukertin hafa verið tendruð samviskusamlega í morgunhádegismatnum síðustu þrjá sunnudaga, 105 súkkulaðibitakökur voru bakaðar fyrir rúmri viku síðan (nokkur stykki ennþá til, þrátt fyrir góðar útrýmingartilraunir af hálfu Sigurðar), jólagjafirnar eru langflestar ákveðnar og tilbúnar eftir því sem hægt er og jólatrjákrílið er alveg að fara að komast upp á sinn koll. Allt á réttri leið.

föstudagur, desember 24, 2010

kertasníkir


Þrettándi var Kertasníkir,
-þá var tíðin köld,
ef ekki kom hann síðastur
á aðfangadagskvöld.

Hann elti litlu börnin,
sem brostu glöð og fín,
og trítluðu um bæinn
með tólgarkertin sín.





-- Gleðileg jól! --

fimmtudagur, desember 23, 2010

ketkrókur


Ketkrókur, sá tólfti,
kunni á ýmsu lag. -
Hann þrammaði í sveitina
á Þorláksmessudag.

Hann krækti sér í tutlu,
þegar kostur var á.
En stundum reyndist stuttur
stauturinn hans þá.




Þetta er búinn að vera ansi annasamur dagur, a.m.k. miðað við heimsókn hjá ömmu á Akureyri. Við Inga komum jólatrénu upp og skreyttum það, ég skellti mér í Bónus og Blómaval með ömmu (sem tekur náttúrlega um þrefalt til fimmfalt lengri tíma en venjulega því amma er amma og þar fyrir utan hitti hún frænku okkar og þá er amma líka amma og hefur gaman af að rabba lengi lengi - jafnvel þótt það sé t.d. ís og frostpinnar í skottinu á bílnum... ;) ) og svo brunaði ég í bæinn til að kaupa allra síðustu jólagjafirnar sem nást fyrir jól (jú jú, það verða 1-2 eftir-jólagjafir í ár). Bráðlega mun ég svo bruna áfram austur á bóginn í Ærlæk í Öxarfirði til Sigurðar míns og fjölskyldu. Yfir og út!

miðvikudagur, desember 22, 2010

gáttaþefur


Ellefti var Gáttaþefur,
- aldrei fékk sá kvef,
og hafði þó svo hlálegt
og heljarstórt nef.

Hann ilm af laufabrauði
upp á heiðar fann,
og léttur, eins og reykur,
á lyktina rann.

þriðjudagur, desember 21, 2010

gluggagægir


Tíundi var Gluggagægir,
grályndur mann,
sem laumaðist á skjáinn
og leit inn um hann.

Ef eitthvað var þar inni
álitlegt að sjá,
hann oftast nær seinna
í það reyndi að ná.



Aumingja amma fékk ælupest í nótt og líður ósköp illa í dag, þótt hún sé hitalaus. Ósköp leitt :( Við Inga virðumst hafa sloppið hingað til (krossa putta!) Við skelltum okkur tvær í sund í morgun og ég tók þátt í sundleikfiminni fyrir ömmu. Við vorum bara þrjár, enda hefur snjórinn bara aukist. Risaskaflar og ruðningar upp um allt. Stuð að vera krakki á Akureyri núna ;) Við Inga ætlum að fá okkur bæjarrölt og sjá hvort einhverjar fleiri jólagjafir rati ofan í poka.

mánudagur, desember 20, 2010

bjúgnakrækir


Níundi var Bjúgnakrækir,
brögðóttur og snar.
Hann hentist upp í rjáfrin
og hnuplaði þar.

Á eldhúsbita sat hann
í sóti og reyk
og át þar hangið bjúga,
sem engan sveik.




Við Inga frænka sváfum út í morgun meðan amma skellti sér í sund og sundleikfimi eins og venjulega. Þær voru þó bara þrjár í leikfiminni, snjór og jólastúss virðist halda mörgum heima. Við Inga fórum í sund eftir síðbúinn morgunmat, með viðkomu á pósthúsinu þar sem ég kom jólakortum í póst á síðasta degi til að senda kort innanlands, hvað annað ;) Sundið var yyyyyndislegt. Best í heimi :) Svo stússuðumst við Inga ýmislegt fleira, kíktum í bæinn þar sem ég fór í jólaklippinguna, litum við í Ásabyggðinni og komum svo við í Hrísalundi til að kaupa fisk í matinn. Það er alltaf svo notalegt hjá ömmu á Akureyri :)