þriðjudagur, desember 14, 2010

stúfur



Stúfur hét sá þriðji
stubburinn sá.
Hann krækti sér í pönnu,
þegar kostur var á.

Hann hljóp með hana í burtu
og hirti agnirnar,
sem brunnu stundum fastar
við barminn hér og þar.



Tók sannkallaðan eðlisfræði- og blaðurþoldag í dag. Hélt fyrirlestur um Wigner-staðbindingu í nanóvírum (e. Wigner localization in nanowires) í morgun. Bjarnheiður systir skildi að mestu hvað ég var að tala um - jíha! Steffi, leiðbeinandinn minn, hélt líka fyrirlestur seinna um daginn um skammtapunkta og hvirfla í þeim. Þess utan reyndi ég að fylgja eftir samræðum hjá Steffi og "eðlisfræði-gestgjafanum" okkar honum Alejandro Saenz (hvorugt kann að enda samræður þegar umræðuefni eru uppurin, æ-ó-æ) og fræddist um rannsóknirnar sem eru gerðar í hópnum hans Alejandro (ósköp áhugavert). Á morgun reyni ég að vinna úr upplýsingaflóði dagsins í dag og flýg svo aftur til Lundar um kvöldið. Vona að snjórinn valdi ekki svaka töfum eins og þegar ég flaug hingað til Berlínar :P

mánudagur, desember 13, 2010

giljagaur


Giljagaur var annar,
með gráa hausinn sinn.
- Hann skreið ofan úr gili
og skauzt í fjósið inn.

Hann faldi sig í básunum
og froðunni stal,
meðan fjósakonan átti
við fjósamanninn tal.




Við Bjarnheiður erum ákaflega þægar og góðar systur. Sönnuðum það enn og aftur í dag þegar okkur tókst á innan við 2 klukkutímum að finna okkur sín hvor leðurstígvélin en leit að slíkum stígvélum hefur staðið í um 3 ár hjá mér og eitthvað aðeins minna hjá Bjarnheiði. Við fengum sem sé beiðni frá foreldrunum í gær um að ljúka slíkum innkaupum af í hvelli því við ættum að fá leðurstígvél/kuldaskó í jólagjöf. Sko okkur!

sunnudagur, desember 12, 2010

stekkjastaur



Stekkjastaur kom fyrstur,
stinnur eins og tré.
Hann laumaðist í fjárhúsin
og lék á bóndans fé.

Hann vildi sjúga ærnar,
- þá var þeim ekki um sel,
því greyið hafði staurfætur,
- það gekk nú ekki vel.



Úbbs, Stekkjastaur komst ekki til bloggbyggða sökum dagsferðar til Dresden. Ég er sem sé í heimsókn hjá Bjarnheiði systur í Berlín og við skelltum okkur í dagsferð til Dresden í gær með félagi erlendra doktorsnema við Humboldt-háskólann, til að skoða borgina sem eitt sinn var á á heimsminjaskrá UNESCO og elsta jólamarkað Þýskalands. Ég var að vísu hálflasin og raddlaus og því hálfsofandi eins og gengur, en hva, ég hélt augunum opnum á réttum stöðum og augnablikum... Verð þekkt hér eftir sem þögla og sofandi systir hennar Beu (Bjarnheiðar) ;)

laugardagur, maí 15, 2010

veisla fyrir bragðlauka og hláturtaugar

Við Sigurður áttum 4 ára parafmæli í gær og ákváðum að fara út að borða og í bíó að sjá Hróa hött í tilefni dagsins. Ótrúlegt en satt þá datt okkur nokkurn veginn það sama í hug (ekkert svo óvanalegt) með nokkurra daga fyrirvara (mjöööög óvanalegt), þannig að við gátum valið veitingastað og bíó, pantað borð og keypt bíómiða (föst sætaskipan) tímanlega.

Í stuttu máli sagt þá var kvöldið yndislegt. Við fengum mjög gott borð út af fyrir okkur á Elysée í Málmey, maturinn var einfaldlega frábær (salatbar, smjörsteiktar tígrisrækjur í forrétt, nautasteik með shitake-sveppum og parmesan í aðalrétt og toblerone-mús með hindberjasósu í eftirrétt), rauðvínið sem pabbi mælti með (við sendum auðvitað vínlistann á sérfræðinginn) átti svo vel við for- og aðalrétt að við sammæltumst um að það væri hverrar krónu virði - a.m.k. ef keypt í ríkinu... ;) - og þjónustudaman okkar var svo indæl að við greiddum henni þjórfé þótt þess þyrfti ekki. Það smellpassaði að þegar við vorum búin að borga þá voru um 25 mínútur þar til bíómyndin byrjaði, en það var akkúrat tíminn sem Sigurður þurfti til að teyma meir en pakksadda Líneyju á lúsarhraða yfir í Entré-bíóið. Hróa hattar myndin var búin að fá svo misjafna dóma að við fórum á hana án nokkurra væntinga. Hún er ekkert meistarastykki, en ég skemmti mér konunglega (þakkaði fyrir hve fljótt sjatnaði í mallakút við það að rölta í bíóið, ég hló svo mikið) og langar til að sjá myndina aftur. Sigurður var að mestu sammála en það fór í taugarnar á honum hversu mikið er tekið beint úr myndinni Gladiator (sami aðalleikari og leikstjóri...) en hann er búinn að horfa svo oft á þá mynd að ég vil meina að hann sé ekki marktækur ;) Loks náðum við strætó aftur til Lundar beint eftir bíóið í stað þess að bíða í allt að hálftíma eins og við höfðum gert ráð fyrir. Yndislegt kvöld í alla staði :)

föstudagur, janúar 22, 2010

kraftaverkin gerast enn

Núna áðan fór ég ásamt nýjum meistaranema í hópnum mínum til að fá aðgangskort að eðlisfræðibyggingunni. Vandamálið er að hann er ekki skráður við LU heldur er eins og "gestanemi" og venjulega fá engir nema þeir sem eru á launaskrá eða nemendaskrá svona aðgangskort. Nema hvað, sænska miðaldra konan í afgreiðslunni tautaði þetta með að raunar mætti hann ekki fá kort en fyrst hann yrði hérna fram í júní, jafnvel júlí, að gera verkefnið sitt þá gengi náttúrlega ekki að hann kæmist ekki inn í húsið á kvöldin og um helgar og lét hann fá kort! Ég trúði hvorki augum né eyrum. Hallelúja, það eru til Svíar sem ekki fylgja reglum í blindni!!! Þessari skrifstofukonu var snarlega fyrirgefið að vera sjaldan við vegna mikillar rabbhneigðar og er komin á uppáhaldslistann minn.

sunnudagur, desember 27, 2009

jólin hér, jólin þar...

Jæja, allir komust jólasveinarnir til byggða þótt seint væri. Netið hérna fyrir norðan er töluvert inn og út en þó mest úti og agalega hægt þegar það er inni. Það verður svona þegar allir námsmennirnir flykkjast heim í sveitina ;) Svo sat ég í bíl með tveim kvefgemlingum (Sigurði og Hörpu) alla leiðina frá Reykjavík til Ærlækjar og því varla hjá því komist en ég smitaðist - sér í lagi þegar maður er knúsaður í tíma og ótíma af einum áðurnefndra gemlinga. Ég var því dulítið lasin á aðfangadag, í fyrsta skipti svo ég muni til (atburðaminni mitt er reyndar arfaslakt svo takið þessa fullyrðingu hæfilega alvarlega). Ég ætlaði að vera komin í Grundargerðið til afa og ömmu í dag, en það varð auðvitað ekkert úr því með svoddan kvefaumingjaskap. Ekki vil ég smita gömlu hjónin og ég er nú ekki neitt sérstaklega skemmtilegur félagsskapur, hálfsofandi og eins og með blýklump í hnakkanum... :P En kannski ég verði ferðafær á morgun. Svo er stefnan sett á höfuðstaðinn fyrir áramótin, því Gunna og Summi bjóða í kalkún á gamlárskvöld eins og venjulega og það er ekki hægt að sleppa því :) En jamm og já, yfir og út áður en netið dettur út á ný ;)

fimmtudagur, desember 24, 2009

kertasníkir


Þrettándi var Kertasníkir,
-þá var tíðin köld,
ef ekki kom hann síðastur
á aðfangadagskvöld.

Hann elti litlu börnin,
sem brostu glöð og fín,
og trítluðu um bæinn
með tólgarkertin sín.





-- Gleðileg jól! --

miðvikudagur, desember 23, 2009

ketkrókur


Ketkrókur, sá tólfti,
kunni á ýmsu lag. -
Hann þrammaði í sveitina
á Þorláksmessudag.

Hann krækti sér í tutlu,
þegar kostur var á.
En stundum reyndist stuttur
stauturinn hans þá.

þriðjudagur, desember 22, 2009

gáttaþefur


Ellefti var Gáttaþefur,
- aldrei fékk sá kvef,
og hafði þó svo hlálegt
og heljarstórt nef.

Hann ilm af laufabrauði
upp á heiðar fann,
og léttur, eins og reykur,
á lyktina rann.

mánudagur, desember 21, 2009

gluggagægir


Tíundi var Gluggagægir,
grályndur mann,
sem laumaðist á skjáinn
og leit inn um hann.

Ef eitthvað var þar inni
álitlegt að sjá,
hann oftast nær seinna
í það reyndi að ná.



Best að hleypa gjuggaranum að áður en hann gleymist. Ég er alvarlega farin að halda að ég hafi skilið heilann eftir í Lundi, a.m.k. þann hluta sem lýtur að skipulagi, minni og einbeitingu. Sem sé, varúð! óvenjurugluð Líney gengur laus...