veisla fyrir bragðlauka og hláturtaugar
Við Sigurður áttum 4 ára parafmæli í gær og ákváðum að fara út að borða og í bíó að sjá Hróa hött í tilefni dagsins. Ótrúlegt en satt þá datt okkur nokkurn veginn það sama í hug (ekkert svo óvanalegt) með nokkurra daga fyrirvara (mjöööög óvanalegt), þannig að við gátum valið veitingastað og bíó, pantað borð og keypt bíómiða (föst sætaskipan) tímanlega.
Í stuttu máli sagt þá var kvöldið yndislegt. Við fengum mjög gott borð út af fyrir okkur á Elysée í Málmey, maturinn var einfaldlega frábær (salatbar, smjörsteiktar tígrisrækjur í forrétt, nautasteik með shitake-sveppum og parmesan í aðalrétt og toblerone-mús með hindberjasósu í eftirrétt), rauðvínið sem pabbi mælti með (við sendum auðvitað vínlistann á sérfræðinginn) átti svo vel við for- og aðalrétt að við sammæltumst um að það væri hverrar krónu virði - a.m.k. ef keypt í ríkinu... ;) - og þjónustudaman okkar var svo indæl að við greiddum henni þjórfé þótt þess þyrfti ekki. Það smellpassaði að þegar við vorum búin að borga þá voru um 25 mínútur þar til bíómyndin byrjaði, en það var akkúrat tíminn sem Sigurður þurfti til að teyma meir en pakksadda Líneyju á lúsarhraða yfir í Entré-bíóið. Hróa hattar myndin var búin að fá svo misjafna dóma að við fórum á hana án nokkurra væntinga. Hún er ekkert meistarastykki, en ég skemmti mér konunglega (þakkaði fyrir hve fljótt sjatnaði í mallakút við það að rölta í bíóið, ég hló svo mikið) og langar til að sjá myndina aftur. Sigurður var að mestu sammála en það fór í taugarnar á honum hversu mikið er tekið beint úr myndinni Gladiator (sami aðalleikari og leikstjóri...) en hann er búinn að horfa svo oft á þá mynd að ég vil meina að hann sé ekki marktækur ;) Loks náðum við strætó aftur til Lundar beint eftir bíóið í stað þess að bíða í allt að hálftíma eins og við höfðum gert ráð fyrir. Yndislegt kvöld í alla staði :)
1 ummæli:
TIL HAMINGJU ! er það nema von að kvöldið hafi orðið yndislegt, það eigið þið svo vel skilið dugnaðarforkar :) (og dúllur! ...þótt siggi kannski samþykki þann titil ekki jafnfljótt og hinn ;) ...)
Skrifa ummæli