föstudagur, desember 21, 2007

gluggagægir



Tíundi var Gluggagægir,
grályndur mann,
sem laumaðist á skjáinn
og leit inn um hann.

Ef eitthvað var þar inni
álitlegt að sjá,
hann oftast nær seinna
í það reyndi að ná.



Ó ó ó, aumingja Bjarnheiður. Fluginu hennar seinkar töluvert, lending áætluð um kl tvö í nótt. Obbobobb...

fimmtudagur, desember 20, 2007

bjúgnakrækir


Níundi var Bjúgnakrækir,
brögðóttur og snar.
Hann hentist upp í rjáfrin
og hnuplaði þar.

Á eldhúsbita sat hann
í sóti og reyk
og át þar hangið bjúga,
sem engan sveik.



Kemur seint, en kemur þó - Bjúgnakrækir er mættur.

Við lögðum af stað klukkan hálf tíu í morgun og komumst út úr bænum um hálf ellefu eftir ýmislegt smásnatt. Renndum inn á Akureyri um þrjú og beint í Grundargerðið þar sem laufabrauðsútskurði var að ljúka og amma að enda við að sjóða upp á súkkulaðinu. Smjatt. Þarna var auðvitað öll fjölskyldan úr Ásabyggðinni að skera og fletta (nema náttúrlega Una litla, en hún var á staðnum ;) ) svo við vorum alls níu sem sátum að kræsingunum þeirra ömmu og afa. Svo var brunað áfram og við náðum að Ærlæk milli sex og hálf sjö. Stoppuðum þó ekki lengi þar, því korter yfir sjö var rennt aftur inn í Skúlagarð þar sem við skemmtum okkur konunglega yfir bráðfjörugri uppfærslu unglingadeildar Öxarfjarðarskóla á áðurnefndum Wake me up before you go go. Loks hafa garnirnar verið fylltar aðeins, en þær voru farnar að syngja heldur hátt með lokalögum söngleikjarins ;)

miðvikudagur, desember 19, 2007

skyrjarmur



Skyrjarmur, sá áttundi,
var skelfilegt naut.
Hann hlemminn o´n af sánum
með hnefanum braut.

Svo hámaði hann í sig
og yfir matnum gein,
unz stóð hann á blístri
og stundi og hrein.




Úbbs, þessi sveinn kemur heldur seint til byggða í dag... Nú er ég kammbúmmsúmm búin á því eftir eina af þessum "rétt-fyrir-jól" maraþonverslunarferðum. Verst að enn er ansi mikið eftir að gera í dag :P Simmsalabimm, best að skvera þessu af áður en ég sofna standandi!

þriðjudagur, desember 18, 2007

hurðaskellir



Sjöundi var Hurðaskellir,
- sá var nokkuð klúr,
ef fólkið vildi í rökkrinu
fá sér vænan dúr.

Hann var ekki sérlega
hnugginn yfir því,
þó harkalega marraði
hjörunum í.




Jahú-ú-ú! Búin í prófum :) *trallala fallala trallirí*

Næst á dagskrá er að skella í smákökudeig og skvera svo af nokkrum jólakortum. Morgundagurinn fer í að baka smákökurnar (ef ég baka þær ekki í kvöld) og allsherjar útréttingar. Þá er planið að bruna norður á Ærlæk snemma á fimmtudaginn og stoppa kannski ofurlítið á Akureyri en þó alls ekki lengur en svo að við verðum komin á áfangastað klukkan átta, því þá mun Sylvía systir Sigurðar hefja upp raust sína ásamt skólafélögum sínum í ekki ómerkari söngleik en Wake me up before you go go. Algert bann að verða of sein á slíka skemmtun! Sérstaklega þar sem hún mágkona mín mun syngja einsöng í a.m.k. tveim lögum :) Lausleg áætlun er svo að slappa af á Ærlæk yfir jólin, stoppa 2-4 daga á Akureyri hjá afa og ömmu og Hlyni frænda og fjölskyldu og pilla sig svo í höfuðborgina fyrir áramót til þess að borða kalkún hjá Gunnu og Summa og sjá (eða a.m.k. heyra) allt dúndrið í sprengjuóðum Íslendingum.

Frí eru með bestu fyrirbærum í heiminum ;)

mánudagur, desember 17, 2007

askasleikir



Sá sjötti, Askasleikir,
var alveg dæmalaus. -
Hann fram undan rúmunum
rak sinn ljóta haus.

Þegar fólkið setti askana
fyrir kött og hund,
hann slunginn var að ná þeim
og sleikja á ýmsa lund.




Brúmm, brúmm. Lokasprettur fyrir safneðlisfræði í fyrramálið. Góðar stundir.

sunnudagur, desember 16, 2007

pottaskefill



Sá fimmti, Pottaskefill,
var skrítið kuldastrá.
- Þegar börnin fengu skófir
hann barði dyrnar á.

Þau ruku upp, til að gá að
hvort gestur væri á ferð.
Þá flýtti' ann sér að pottinum
og fékk sér góðan verð.



Nú er spurning, er eitthvert sannleikskorn í þessu?

laugardagur, desember 15, 2007

þvörusleikir



Sá fjórði, Þvörusleikir,
var fjarskalega mjór.
Og ósköp varð hann glaður,
þegar eldabuskan fór.

Þá þaut hann eins og elding
og þvöruna greip,
og hélt með báðum höndum,
því hún var stundum sleip.



Þar sem ég veit að mörg ykkar nota hina annars ágætu fésbók, þá er samt gott að minna á að fara varlega...

föstudagur, desember 14, 2007

stúfur



Stúfur hét sá þriðji
stubburinn sá.
Hann krækti sér í pönnu,
þegar kostur var á.

Hann hljóp með hana í burtu
og hirti agnirnar,
sem brunnu stundum fastar
við barminn hér og þar.


Snarbandbrjálað veður í þriðja sinn á innan við viku. Sem betur fer fyrir björgunarfólkið er þó veðurhæðin mest um hábjartan dag í þetta sinn, en ekki miðja nótt eins og hin tvö skiptin...

fimmtudagur, desember 13, 2007

giljagaur




Giljagaur var annar,
með gráa hausinn sinn.
- Hann skreið ofan úr gili
og skauzt í fjósið inn.

Hann faldi sig í básunum
og froðunni stal,
meðan fjósakonan átti
við fjósamanninn tal.


Á þessum degi í fyrra fór ég í próf í stærðfræðigreiningu IIIB hjá Ragnari (þeim sama og kenndi mér mál&tegur á þessari önn). Hafði þetta um það að segja hérna á blogginu:
Ragnar karlinn semur greinilega jafn ofvirk ef ekki ofvirkari próf en hann er sjálfur. Stærðfræðigreiningarprófin hafa verið sanngjörn og nokkuð stöðluð síðustu ár, en það er eitthvað sem segir mér að þetta próf verði skalað upp. Hann blés lengd dæma talsvert upp og jók þyngdina að auki. Allamalla.
Kíkti svo í Uglu, mér til ánægju og yndisauka, og athugaði með tölfræði þessa áfanga á síðustu haustönn. Jú jú, 54.3% stóðust prófið, 34.1% féllu og 11.6% voru fjarverandi. Það voru einungis 75 af þeim 193 sem voru upphaflega skráðir í áfangann sem á endanum rusluðust í gegn (55 sem skráðu sig úr honum áður en kom að prófi). Ef einhver getur veitt mér upplýsingar um tölfræði þessa áfanga haustið 2005 eða 2004 væri það ákaflega gaman svona til samanburðar ;)

Eftir prófið í gær þurfti ég að snatta smávegis, m.a. kíkja heim til pabba og mömmu í föndurpappírsleit. Kom við í Sigtúninu hjá afa og ömmu og fékk þar hálfmána, gyðingakökur, piparkökur og mjólk - amminamminamm :D Amma er alger snillingur í jólabakstri :) Fyrir utan að þar er svo afskaplega gott að slappa af, ahhh... Þegar ég svo kom heim til pabba og mömmu stóðu þar sprautukökur á grind og súkkulaðibitakökur ofan í boxi svo ég krækti mér auðvitað í sitt af hvoru tagi (tók sko sprautuköku sem var pínulítið útlitsgölluð, heldur brún í annan endann, ég er svo vel upp alin 0:D )

miðvikudagur, desember 12, 2007

stekkjastaur



Stekkjastaur kom fyrstur,
stinnur eins og tré.
Hann laumaðist í fjárhúsin
og lék á bóndans fé.

Hann vildi sjúga ærnar,
- þá var þeim ekki um sel,
því greyið hafði staurfætur,
- það gekk nú ekki vel.



Fyrsta prófið búið - jei! Það var mál- og tegurfræðin, þ.e. fræðileg stærðfræði, svo ég fékk 3 korter auk hinna hefðbundnu 3 klst. Sem var eins gott því ég hikstaði töluvert a.m.k. fyrsta klukkutímann í prófinu. Það munar öllu að geta sagt við sjálfa sig: "Iss, allt í lagi þótt heilinn sé eins og seigfljótandi karamella og neiti að hrökkva í gang, þú hefur nægan tíma!" Það bjargar öllu. Sérstaklega í prófum hjá Ragnari, því hans próf tekur aldrei styttri tíma en 3 klst að leysa... Þetta reddaðist held ég ágætlega (*krossa putta*).

Safneðlisfræðin er þá næst á dagskrá og raunar síðust á dagskrá fyrir jólafrí. Ég er nefnilega bara í tveim prófum, sem er ótrúlega mikill munur og í raun eins gott því þetta eru bæði megapróf, þ.e. námsefnið er ekki alveg það einfaldasta eða minnsta í heimi... Og þá er bara að vinda sér út í það að læra - þótt mig gruni reyndar að það verði meiri þykjustulærdómur núna í dag eins og venjulega eftir próf ;)