mánudagur, janúar 22, 2007

plús og mínus

Það er hálfgerð synd finnst mér að nú sé hitastigið komið upp fyrir frostmark og snjórinn óðum að hverfa. Hann lýsir svo vel upp og gerir allt töluvert hreinlegra. Hins vegar er ég fegin að vera laus við 7-9°C frost og gleðst einnig fyrir hönd þeirra sem eiga erfiðara en ég með að brjótast yfir snjóruðningana. Verst að veðrið geti ekki haldið sig þarna mitt á milli, þ.e. haft 10 cm snjó og -2°C. Það væri algert yndi - og er þar með auðvitað alveg óhugsandi, hreinustu draumórar... ;)

laugardagur, janúar 13, 2007

tími til að pikka

Mikið var nú gott að stinga af í frí! Ég sat við verkefnavinnuna til miðnættis á nýársdegi, pakkaði þá og var komin í bólið rúmlega eitt. Var þá auðvitað alltof spennt til að geta sofnað. Hrökk svo upp um tvöleytið, þegar ég var um það bil að sofna, við þá uppgötvun að ég hefði gleymt að skrifa um eitt atriði í verkefninu. Dæmigert... ;) En loks kom Óli lokbrá og ég fékk minn u.þ.b. fjögurra tíma svefn, því klukkan hálf sjö varð ég að skríða á lappir til að komast í flugið kl 7:45. Var svo ekki lengi að smella inn í "borða-synda-borða-leggja sig-borða-leggja sig-borða-sofa-..." taktinn hjá afa og ömmu. Nóg af góðum mat, jólakökum og heitu ekta súkkulaði með rjóma :) Færðin og veðrið voru svo ekki of vinsamleg á fimmtudeginum 4. jan, enda ekki við öðru að búast miðað við árstíma. Jón Dór, pabbi Sigurðar, bjó sér því til erindi inn á Akureyri og nældi sér í far þangað. Ók mér og Hörpu svo austur á Ærlæk á skódanum hennar Hörpu um kvöldið. Þar var áti, hvíld, spjalli og labbitúrum haldið áfram og auðvitað nokkur handtök tekin í fjárhúsunum ásamt því að sjóða sig vel og lengi í heita pottinum. Alltaf gott að koma á Ærlæk, enda prýðisfólk þar og skemmtilegt :) Svo þurfti að halda aftur í stórborgina, búhú. Skólinn fór í gang strax klukkan átta á mánudagsmorgni, úffffff... erfitt að vakna eftir að hafa lúrt fram yfir hádegi undanfarið :P Síðan þá hefur lífið smátt og smátt færst í sitt gamla horf: skóli, skóli, skóli, skóli... Eins og venjulega slæðast óvenjumörg "óskólaleg" verk inn á milli, enda næ ég aldrei að komast yfir allt sem ég vil í jólafríinu. Sérstaklega þegar sérverkefni leggur stóran hluta þess undir sig... Mér líst annars vel á önnina, hæfileg blanda af stærðfræði og eðlisfræði. Vona bara að áfangarnir verði ekki of feitir og pattaralegir ;)

mánudagur, janúar 01, 2007

haha

Gleymdi að segja ykkur í fyrradag frá alveg hreint stórskemmtilegu atviki. Í hittífyrrakvöld kúrði ég mig sem sé undir sæng í herberginu hennar Bjarnheiðar (niðri í kjallara) og spjallaði í gemsa við minn ástkæra. Það eru alltaf einhverjir sem ganga gegnum bílskýlið hjá okkur og sem ég lá þarna, ganga nokkrir ungir menn í gegn. Einn þeirra vippar sér inn í garðinn með orðunum: "Strákar, ég ætla aðeins að pissa." (eða einhverju álíka). Áður en ég næ að rísa upp er drengurinn, með hendurnar á buxnastrengnum, búinn að reka upp þessi líka risastóru augu við að sjá grilla í mannveru inn um gluggann - beint fyrir framan hann - og þotinn til baka fyrir hornið, inn í bílskýlið. Hahaha, ég svoleiðis sprakk úr hlátri :D Nema hvað, þar sem ég er í miðri frásögn af þessum bráðskemmtilega atburði, rekur strákskinnið höfuðið fram yfir tröppurnar upp að garðhurðinni, eins og til að athuga hvort það hefði ekki örugglega verið einhver þarna. Svo ég veifaði bara kankvís til hans - og hann var horfinn á nóinu ;) Hvílíkt hláturkast sem ég fékk. Hver sem þetta var, þá vil ég þakka honum fyrir u.þ.b. eitt ár af auka lífi... ;D

Gleðilegt nýtt ár, öllsömul!

laugardagur, desember 30, 2006

jólafrí trallarí

Jólafríið mitt stóð frá 22. til 25. desember. Strax á annan í jólum byrjaði ég á að hita upp fyrir lokaárás á sumarverkefnið mitt hjá ÍSOR. Gaf mér samt tíma til að hafa það gott með Baldri bróður og fjölskyldu þegar þau komu í mat um kvöldið og spila með þeim púkk á eftir. Síðan hef ég setið yfir verkefninu frá u.þ.b. hálf ellefu að "morgni" og fram yfir miðnætti alla daga, með hléum til þess að borða, fara í sund, leika bílstjóra af og til o.s.frv. Að meðaltali hafa þetta væntanlega verið 8-9 klst á dag nema hvað í gær bakaði ég hinn árlega kastaníuhnetuhring og það rændi mig heilum tveim tímum (grrr...) og fór í afmæli Kristínar Þóru, svo þetta urðu ekki nema 6 klst. Ég stefndi á að klára í dag, en eins og ég bjóst fastlega við þá hefur herra Murphy bankað upp á nokkrum sinnum svo ég stórefast í augnablikinu :P Sjáum til, sjáum til... Almennilega fríið mitt hefst svo klukkan 7.45 að morgni 2. janúar þegar ég flýg norður á Akureyri til að slappa af með afa og ömmu og öðrum ættingjum þar. Að kvöldi 4. janúar eða þann 5. mun ég svo líklegast aka Hörpu, systur Sigurðar, og sjálfri mér í bílnum hennar austur á bóginn á Ærlæk. Tek svo flugið á sunnudagskvöldi, 7. jan., til að mæta í háskólann 8. janúar. Þetta verður nú meiri skreppitúrinn...

sunnudagur, desember 24, 2006

kertasníkir


Þrettándi var Kertasníkir,
-þá var tíðin köld,
ef ekki kom hann síðastur
á aðfangadagskvöld.

Hann elti litlu börnin,
sem brostu glöð og fín,
og trítluðu um bæinn
með tólgarkertin sín.





-- Gleðileg jól! --

laugardagur, desember 23, 2006

ketkrókur


Ketkrókur, sá tólfti,
kunni á ýmsu lag. -
Hann þrammaði í sveitina
á Þorláksmessudag.

Hann krækti sér í tutlu,
þegar kostur var á.
En stundum reyndist stuttur
stauturinn hans þá.




Ég var svo þreytt eftir annarlok, jólpróf og jólagjafastúss gærdagsins að mér tókst svei mér þá að sofna eftir venjubundið "klukkan-7-rumsk". Steinsvaf þá með einu hléi til korter yfir ellefu en vaknaði þá bara af því að Sigurður fékk sms um breytta flugáætlun FÍ (flaug norður í dag með einungis klukkutíma seinkun). Annars hefði ég steinsofið fram á síðustu stundu, rétt fyrir 12, því ég trúi ekki að foreldrar mínir hefðu leyft mér að sofa af mér hina árlegu skötuveislu afa og ömmu í Sigtúni! Ofurlítið uppgefin manneskja á ferð ;P

En nú er það jólaskreyting og jólakortaföndur - jóla jóla jóla :D

föstudagur, desember 22, 2006

gáttaþefur



Ellefti var Gáttaþefur,
- aldrei fékk sá kvef,
og hafði þó svo hlálegt
og heljarstórt nef.

Hann ilm af laufabrauði
upp á heiðar fann,
og léttur, eins og reykur,
á lyktina rann.



Prófin búin - tralliralliraoghoppoghíogfallila!
Við tekur: Jólin jólin alls staðar með jólastúss og gjafirnar ;)

fimmtudagur, desember 21, 2006

gluggagægir



Tíundi var Gluggagægir,
grályndur mann,
sem laumaðist á skjáinn
og leit inn um hann.

Ef eitthvað var þar inni
álitlegt að sjá,
hann oftast nær seinna
í það reyndi að ná.



Eftir tæpa 8 klukkutíma mun ég segja: "Aaahhh...!"

miðvikudagur, desember 20, 2006

bjúgnakrækir


Níundi var Bjúgnakrækir,
brögðóttur og snar.
Hann hentist upp í rjáfrin
og hnuplaði þar.

Á eldhúsbita sat hann
í sóti og reyk
og át þar hangið bjúga,
sem engan sveik.



Eins gott að hleypa Bjúgnakræki að áður en útlandasambandið rofnar... ;) Þessi líka spenna komin í netrápið - skyldi sambandið haldast??? Annars leiðinlegt með jólaveðrið, það virðist algerlega ætla að bregðast; rigning og rok og hátt í 10°C hiti. Þetta var svo jólalegt um síðustu helgi. En þá er bara að vona að veðrið verði skaplegra á gamlárskvöld með hæfilegu frosti og andvara til að dreifa púðurreyknum. Sjáum til.

þriðjudagur, desember 19, 2006

skyrjarmur



Skyrjarmur, sá áttundi,
var skelfilegt naut.
Hann hlemminn o´n af sánum
með hnefanum braut.

Svo hámaði hann í sig
og yfir matnum gein,
unz stóð hann á blístri
og stundi og hrein.




Ojammojá, ekkert netsamband milli 10 og 14 í dag. Laglegt ástand. Annars er það í líneyskum fréttum helst að hnátan er orðin hundleið á próflestri. Skal það engan undra.