laugardagur, desember 17, 2005

askasleikir



Sá sjötti, Askasleikir,
var alveg dæmalaus. -
Hann fram undan rúmunum
rak sinn ljóta haus.

Þegar fólkið setti askana
fyrir kött og hund,
hann slunginn var að ná þeim
og sleikja á ýmsa lund.




Mikið var gaman að sjá snjóinn í morgun. Ég dauðvorkenni krökkunum hérna fyrir sunnan; það er varla nokkurn tíma almennilegur snjór hérna lengur. Í minningunni eru margir gleðidagar við snjóhúsa-, snjókarla- og snjókerlingabyggingar, snjókast og skíða- og sleðaferðir í Dalbrautar- og Ártúnsbrekkurnar. Ég held það hljóti að hafa verið meiri snjór þá, enda hefur loftslag hlýnað, eða sitja bara snjódagarnir eftir í kollinum? Man reyndar eftir einu ári þegar ég var orðin mjög óþolinmóð að fá almennilegan snjó í október og mamma þurfti þó nokkra ákveðni til að sannfæra mig um að ég gæti fyrst farið að búast við almennilegum snjó í nóvember. Nú geta krakkarnir ekki búist við honum fyrr en í janúar eða febrúar!
Hérna er ég 6 ára í garðinum hjá afa og ömmu í Ásabyggð (nú býr Hlynur og fjsk þar); voða stolt við litla snjókarlinn minn - mamma var ekki alveg viss, en ég sýndi henni að það var sko víst nógur snjór til að gera snjókarl! Nóg af þrjósku í litlum kroppi ;)


föstudagur, desember 16, 2005

pottaskefill



Sá fimmti, Pottaskefill,
var skrítið kuldastrá.
- Þegar börnin fengu skófir
hann barði dyrnar á.

Þau ruku upp, til að gá að
hvort gestur væri á ferð.
Þá flýtti' ann sér að pottinum
og fékk sér góðan verð.




Í dag hefði Szymon Kuran, fiðluleikari, tónskáld, málari, þúsundþjalasmiður, nostrari og snillingur almennt, orðið fimmtugur. Blessuð sé minning hans.

fimmtudagur, desember 15, 2005

þvörusleikir



Sá fjórði, Þvörusleikir,
var fjarskalega mjór.
Og ósköp varð hann glaður,
þegar eldabuskan fór.

Þá þaut hann eins og elding
og þvöruna greip,
og hélt með báðum höndum,
því hún var stundum sleip.



Ég ætla norður til afa og ömmu á Akureyri eftir áramótin. Fer væntanlega 3. janúar. Get þá líka heimsótt Hlyn frænda og fjölskyldu í Ásabyggð og séð nýju frænkuna, hana Unu Móeiði (fæddist 11. nóvember) og kannski litið við á Ásveginum til Halls frænda og fjölskyldu. Svo er nefnilega skíðaferð Stiguls á Akureyri helgina 6.-8. janúar, svo þetta smellpassar :) Og nú vantar mig bara far norður ;)

----------- 14:37:00 -------------
Bjarnheiður hefur staðið í konfektgerð í gær og í dag. Ég gerðist sjálfskipaður smakkari ;) Slúrrrp! suðusúkkulaði, 70% súkkulaði, rjómasúkkulaði, súkkulaðifylling, pistasíumarsipan, koníakmarsipan, núggat/appelsínufylltar döðlur og von er á marsipanfylltum döðlum, kannski mozartkúlum, [einhverju sem ég gleymi] og því besta af öllu - kókoslengjum; *doijngs-doijngs* ég hlakka til!

miðvikudagur, desember 14, 2005

stúfur



Stúfur hét sá þriðji
stubburinn sá.
Hann krækti sér í pönnu,
þegar kostur var á.

Hann hljóp með hana í burtu
og hirti agnirnar,
sem brunnu stundum fastar
við barminn hér og þar.



Helmingur prófanna er búinn. Aflfræðin var niðurdrepandi; ég er ósátt við sjálfa mig og ósátt við prófið. Ég las ekki rétt undir það og/eða var mjög óheppin með prófspurningar. Eftir er próf í afar fræðilegri stærðfræði sem ég hef lítið getað sinnt í vetur og kjarneðlisfræði-/ljósfræðipróf þar sem við höfum einungis óljósar hugmyndir um í hverju muni verða prófað. Bjart framundan? Ég held ekki...
Er farin í sund að synda pirringinn og leiðann úr mér - og finna kannski Pollýönnu aftur.

þriðjudagur, desember 13, 2005

giljagaur




Giljagaur var annar,
með gráa hausinn sinn.
- Hann skreið ofan úr gili
og skauzt í fjósið inn.

Hann faldi sig í básunum
og froðunni stal,
meðan fjósakonan átti
við fjósamanninn tal.


Fyrsta prófið er búið. Það var heldur betur klikk. Heilinn er á bráðamóttökunni. Þetta verður vonandi skalað upp því annars er von á stórum fallhóp m.v. "úff!", "hjálp!", "hvað var þetta?", "uh, hvar er ég?" o.s.frv. eftir prófið. Hins vegar gerði ég bara mitt besta að ég held(?) svo ég get hugsað "fjandans dæmi!" samviskubitslaust ;)
Aflfræði, here I come!

mánudagur, desember 12, 2005

stekkjastaur



Stekkjastaur kom fyrstur,
stinnur eins og tré.
Hann laumaðist í fjárhúsin
og lék á bóndans fé.

Hann vildi sjúga ærnar,
- þá var þeim ekki um sel,
því greyið hafði staurfætur,
- það gekk nú ekki vel.



Eftir nær stanslausan skammtafræðilestur í um 5 klst voru málstöðvarnar orðnar svo haltar að ég þurfti um mínútu til að hita þær upp þegar ég talaði í símann. Aumingja konan í bankanum... ;)

laugardagur, desember 10, 2005

hvatning

Bjarnheiði langar svo ógurlega mikið til að tjá sig á skvettuskoppinu sínu en finnst að ég eigi að segja fyrst frá. Ég er jú svo þæg og góð lítil systir, finnst nú samt hálfasnalegt að pikka þetta inn :S En jæja:
Ég brosti allan hringinn síðasta miðvikudagskvöld (:-) Þá var ég nýbúin að lesa tölvupóst frá Erni Helgasyni um að ég hefði fengið hvatningarverðlaun Eðlisfræðifélags Íslands fyrir góðan árangur í námskeiðunum Eðlisfræði 1 og 2. Verðlaunin fékk ég svo afhent í gær á aðalfundi félagsins. Ég hafði annars ekki minnstu hugmynd um þessi hvatningarverðlaun, þ.e. ég var búin að steingleyma að þau væru til því okkur var víst sagt frá þessu í námskeiðinu Eðlisfræði 1. Munduð þið af eðlukyni eftir þessu???

föstudagur, desember 09, 2005

búhú

Haldið þið ekki að ég hafi verið orðin veik á sunnudagskvöldið! Ooooohhhh... Ég var búin að hlakka ógurlega til að spila á þessum tónleikum :( Fór kvöldið áður að spila (fyrir Svaninn) þegar kveikt var á jólatrénu á Álftanesi, sem ég kenni að mestu um ásamt heldur betur neikvæðu svefnbókhaldi. Reynið að spila á íííískalt blásturshljóðfæri í hitastigi við frostmark (Kristjana, þú þekkir þetta; Ásta kannski líka?). En fyrst við vorum að spila þarna þá var líka svolítið svekkjandi að út af einhverju hljóðnemaveseni (hvað annað) þá gátum við bara spilað þrjú lög, þá þurfti að kýla dagsskrána áfram - akkúrat þegar hljóðfærin voru orðin sæmilega heit og velhljómandi og við komin í stuð!
En skítt með það; ég er orðin hress á ný (þ.e. ég kemst í sund í dag ;) ) og Bjarnheiður var svo væn að taka Svanstónleikana upp á "smádisk" (mini disc) fyrir mig þ.a. ég gat skemmt mér í rífandi sveiflu við að klára nokkur verkefni í vikunni :)
Eitthvað sem ég þarf að gera milli jóla og nýárs er að þvo trompetinn minn. Mér líst ágætlega á þessa hugmynd hjá Viggó, þótt ég sé ekki alveg viss um hversu árangursrík hún sé... ;D



laugardagur, desember 03, 2005

tónleikar

Þeir sem hafa tíma, eru með tímabundið ógeð á lærdómi, hafa gaman af blús/svíng/melódískri tónlist o.s.frv. eru hjartanlega velkomnir á tónleika lúðrasveitarinnar Svansins í salnum Ými við Bústaðaveg, sunnudaginn 4. desember kl 20.00.
Já, ég veit, ég er alveg ógurlega ótímanleg með þessa tilkynningu, en betra er seint en aldrei :) Líka eins gott að tilkynna þetta sem víðast því tímasetningin var röng í Fréttablaðinu í gær (sagt að tónleikarnir væru í dag, laugardag).
Ég get lofað skemmtilegum tónleikum, því ég er búin að æfa þetta síðan í september og aldrei fundist lögin jafn skemmtileg og falleg og nú (og nei, það er ekki bara vegna þess að þau voru óæfð þá!). Tónleikarnir verða heldur ekki hriiiikalega langir; 4 lög fyrir hnébeygjur og 5 lög eftir spjall.
Mæli með tónleikunum sem smá pásu fyrir lokasprett sunnudagslestursins á VR-II ;)

fimmtudagur, desember 01, 2005

tvíkynja

Ýmislegt styður það að ég sé strákastelpa. Þetta "átreiðanlega" netpróf hefur bæst í hópinn:

Your Brain is 53.33% Female, 46.67% Male

Your brain is a healthy mix of male and female
You are both sensitive and savvy
Rational and reasonable, you tend to keep level headed
But you also tend to wear your heart on your sleeve



Heilinn í mér ku sem sé vera tvíkynja. Magnað.