föstudagur, júní 17, 2005

lauflétt skipulag

- dagbókarlegur pistill -

Mán. 6. júní: Ég mætti með dót í þriggja daga vinnuferð. Fannst þetta samt svolítið skrýtið því Tobba, sem átti að fara með í ferðina, kæmi í vinnuna þennan dag eftir 2 vikna "frí" (mælingaferð+skýrslugerð í samb. við HÍ). Tobba ekki mætt kl 10. Spurði Knút (verkefnisstjórann) um Tobbu og hvenær yrði farið. Hann vissi ekkert um Tobbu en "þið farið ekkert fyrr en á mið. eða fim., þurfið að læra á nýja segulmælingatækið og svona". Ágætt. Tobba enn ekki mætt á hádegi. Hm, var stúlkan veik? Hringdi í gemsann. Hún svaraði úti í Austurríki - var að keppa í skylmingum! Úbbsasí. Ég fiktaði bara í tækinu og skannaði inn gömul mæligögn.
Þri. 7. júní: Skannaði. Tobba mætti kl 10. Töluðum við Ingvar sem færi með okkur í ferðina. Sagði að við færum ekki fyrr en eftir helgi. Fórum niður á tún í Laugardalnum og prófuðum græjuna. Virkaði vel en smá vesen með GPS staðsetningu.
Mið. 8. júní: Ákváðum að fara í ferðina á mán. 13. júní. Ingvari leist svo vel á nýju græjuna að hann taldi að við yrðum bara einn dag og þyrftum því ekkert að gista. Ferðinni heitið á Snæfellsnes. Lásum leiðbeiningabækling tækisins betur. Fórum aftur niður á tún og nú með GPS tæki með okkur. Meira labb og prófanir. Gaman gaman.
Fim. 9. júní: Bæklingurinn lesinn enn betur (í tætlur). Fórum í þriðja sinn niður á tún og lærðum á horngler (t.d. notað til að pota niður 3 stikum þ.a. þær myndi rétt horn (90°)) og reyndum að láta tækið beina okkur rétt á milli stika. Tókst vægast sagt illa því ónákvæmnin í GPS staðsetningum þess var um 8 metrar - í báðar áttir! Ákváðum að stika mælisvæðið og leyfa leiðsögninni í tækinu að eiga sig.
Fös. 10. júní: Túnið enn mjög vinsælt. Fórum þangað núna til að setja límbandsmerki á 25 m fresti á tvær tæplega 500 m langar appelsínugular snúrur. Ákaflega gaman í góða veðrinu.

Mán. 13. júní; 14½ klst vinnudagur. Ókum vestur. Stunduðum hnélyftur dauðans í mosa-sinu-risa-þýfi & mýrlendi. Brennslan gríðarleg og matarlystin eftir því, en vinnan gekk auðvitað fyrir maganum. Við kláruðum ekki nærri því mælinguna. Náðum að stika þetta 400x600 m mælisvæði og mæla 3/8 þess. Þá var rafhlaðan í tækinu á einhvern óskiljanalegan hátt barasta búin. Við heim.
Þri. 14. júní; 16 klst vinnudagur. Ég og Tobba vorum sendar á Snæfellsnesið á ný og kláruðum þar mælingarnar í dúndurgóðu veðri. Brennslan hélt áfram og jókst enn þegar rafhlaðan gafst upp á nýjan leik og við bættum á okkur 2-3 kg ytri rafhlöðu til að klára fjandans mælingarnar. Vorum rosa ánægðar í lok dagsin, brunuðum í bæinn og nutum dýrðlegs sólarlags á leiðinni. Var þreytt næstu daga en allt gekk vel.

Í dag spilaði ég svo í útskrift "Global eManagement" Háskólans í Reykjavík. Nei, ekki á trompet! Ég barði litla handtrommu við leik blokkflautukvartettsins sem Bjarnheiður systir spilar í. Við lékum þegar fólkið kom til athafnarinnar, þau fjögur léku smá verk í athöfninni og svo lékum við aftur þegar fólkið kom inn í salinn þar sem það borðaði saman kvöldmat. Það var ákaflega gaman að spila fyrir þau, heilmikið stuð í þessum endurreisnardönsum, og allt mjög vel skipulagt og fínt (t.d. átti kvartettinn að leika í athöfninni kl 18:23 í 9 mínútur...). Skemmtilegt að gera svona :)

fimmtudagur, júní 02, 2005

í vinnunni

Jú, þetta var eitthvað gagnlegt sem ég var að gera. Kláraði verkefnið loksins í gær. Var að forrita í gnuplot (teiknar upp töluleg gögn og föll) og C. Ég þekkti gnuplot eitthvað en kunni ekkert í C, nema hvað það er frekar líkt og Java sem ég hef einhvern grunn í. Þetta var pínu skrautlegt. En mjög gaman. Hélt fjórum sinnum að ég væri búin að klára, en fann þá stóra galla. Allamalla. Nú er þetta þó búið. Það sem ég var annars að gera var að breyta þessu í þetta .
Myndirnar líta miklu betur út á skjánum (þurfti að afrita þær, líma inn í Paint og vista sem jpg...), en þetta gefur smá hugmynd.

Síðan hef ég verið að lesa um segulmælingatæki því ég fer væntanlega í þriggja daga mælingaferð á mánudaginn. Vííí :)

En núna er ég verkefnalaus og finn ekki verkefnisstjórann minn. Hmmm...

sunnudagur, maí 29, 2005

skemmtilegt

Gleymdi að segja ykkur frá því hvað margt skemmtilegt kemur til af því að við Íslendingar erum svo lítil þjóð. Fyrir 2-3 árum komst ég að því að þáverandi kærasti Hörpu (yngri dóttirin á Stað, '82 módel) væri eldri sonur umsjónarkennarans míns í 5.-7. bekk, Þóru Melsted. Yngri sonur Þóru, Bjarki, var svo kúarektor á Stað í a.m.k. tvö sumur, enda held ég að það séu fáir sem heillast ekki af því að vera á Stað. (Ég var kúarektor á Stað sumurin '97-99'). Ég hafði ekki hitt Þóru síðan ég lauk 7. bekk, jafnvel þótt hún kenndi enn við Laugarnesskóla og ég hjólaði reglulega þar framhjá næstu 7 árin. En þegar ég var núna fyrir vestan, skutluðust Þóra og pabbi hennar með Bjarka að Stað (Bjarki í æfingaakstri). Svo var ég svo heppin að fá far með Bjarka og foreldrum hans til Reykjavíkur þegar þau komu að ná í hann.
Merkilegt hversu langt maður þarf að ferðast til að hitta fólk sem þó er svo nálægt...

Annars er það að frétta af mér að ég er farin að gera eitthvað gagnlegt í vinnunni (vona ég a.m.k. ... ;) ) og klossfestist í Harry Potter í vikunni. Las fjórðu og fimmtu bókina (á ensku). Á síðustu blaðsíðunum í bók fimm, í dag kl 14.15, hringdi góð vinkona pabba. Jamm, sonur hennar, prófessor Finnur, hafði gleymt að hringja í m.a. okkur og bjóða okkur í útskriftarveisluna sína kl 15.00 í dag (ákaflega líkt Finni, hehe). Pabbi og mamma eru núna um það bil að lenda (voru í Svíþjóð og Danmörku) en Bjarnheiður var að vinna á Árbæjarsafni í dag. Svo ég gleypti í mig það sem eftir var af Harry Potter, blaðaði í ljóðabókum Sigfúsar Daðasonar (pabba finnst hann góður, ég treysti smekk hans) og fann prýðilegt ljóð fyrir nýstúdent. Sem betur fer áttum við gjafakort sem hentaði því ég hafði engan tíma til að hrista eitt slíkt fram úr erminni, litum og pappír. Ég skrifaði upp ljóðið, nagaði pennan *smjatt*, skrifaði (vonandi) eitthvað viturlegt í kortið og setti í umslagið *sleik*. Skipti um föt í snatri o.s.frv., hækkaði hnakkinn á hjólinu (Bjarnheiður á bílnum) og hentist af stað á Skeiðarvog með aðra hönd á stýri en hina á mjöðminni svo faldurinn á sumarkjólnum fyki örugglega ekki upp... Mætti í veisluna rúmlega fjögur. Og var ekki svikin. Finnur og fjölskylda eru yndisleg. Og vinir og ættingjar þeirra afar skemmtilegt og indælt fólk. Jafnvel þótt ég sjái þau varla nema þriðja hvert ár eða svo (vinina og ættingjana sko), þannig að þau muna tæpast eftir mér, þá er alltaf gaman að spjalla við þau og hlusta á þau. Svo var líka svo gott veður og við sátum úti og sleiktum sólskinið. Bjarnheiður kom að verða kl sex, dauðþreytt úr vinnunni með vinnukonufléttur út í loftið en var fljótt lífguð við með veitingum og spjalli. Hjólinu potuðum við í skottið á bílnum...

mánudagur, maí 23, 2005

komin heim

Ég er komin heim með lambalykt á höndunum, óhrein vinnuföt í fulla þvottavél, strigaskó sem lykta eins og heilt fjárhús og roða í kinnum. Dásamlegt. Hef reyndar ekki sofið neitt ákaflega mikið síðustu vikuna (fór alltaf á fætur kl 7 til að taka við af næturvaktarfólkinu í fjárhúsunum og yfirleitt ekki að sofa fyrr en um eða yfir miðnætti vegna skemmtilegra bóka) og var því heldur sybbin svona fyrsta vinnudaginn í dag :-S En það var svosem allt í fína. Mér líst ágætlega á þetta á ÍSOR, en það er nú voða lítið hægt að dæma um það eftir einn dag. Get fyrst farið að gera mér hugmynd um hvernig sumarið verður eftir svona viku eða tvær...

fimmtudagur, maí 12, 2005

eftir-próf plan

Það er alltaf svo skemmtilegt með prófin hvað maður man eftir mörgu skemmtilegu sem hægt er að gera. Bækur (allar aðrar en námsbækur) og bíómyndir verða alveg einstaklega áhugaverðar ásamt gönguferðum, spjalli og vefrápi. Sem betur fer á ég engan tölvuleik sem ég hef sérstakan áhuga á...

Og auðvitað er ég komin með skemmtilega "eftir-próf" dagskrá:
fös. 13.5.
- kl 16.30 klára síðasta prófið (hæ hó og jibbíjei og jibííjei!)
- kl 17.00 síðasti trompettími vetrarins, og sá síðasti í TSDK (í bili a.m.k.)
- [kvöldmatur]
- kl 19.00 hlusta á tvo fiðlunemendur í hálfgerðu vorprófi
- sundsprettur
- afmæli hjá Hófí (stærðfræðidömu)
lau. 14.5.
- pakka í snarhasti og bruna vestur í sveitasæluna fyrir hádegi
15.5. - 22.5. hlaða batteríin og gleyma flestu öðru en sauðburði, mjöltum og öðrum sveitastörfum
mán. 23.5. fyrsti vinnudagurinn á ÍSOR

Ég hlakka til!!!

sunnudagur, maí 08, 2005

Llamist af hlátri

Góða skemmtun:

The Llama Song

mánudagur, apríl 25, 2005

rúgbrauð með rjóma á

fyrsta vers:

LINEYHALLA
L is for Lovable
I is for Industrious
N is for Nutty
E is for Extraordinary
Y is for Yummy
H is for Happy
A is for Adaptable
L is for Legendary
L is for Loving
A is for Articulate

annað vers:

LINEYHALLA
L is for Logical
I is for Industrious
N is for Nice
E is for Entertaining
Y is for Young
H is for Hyper
A is for Altruistic
L is for Lucky
L is for Lovesick
A is for Arty

þriðja vers:

LINEYHALLA
L is for Likeable
I is for Influential
N is for Nutty
E is for Easy
Y is for Young
H is for Heavenly
A is for Adaptable
L is for Lively
L is for Lovesick
A is for Adventurous

... þau eru ekki eins.

Hvaða vers veljið þið?

eftirá

Skemmtilegt hvað kemur út úr svona nafnamaskínum. Minnir svolítið á stjörnuspána í Mogganum ;)

Ég steingleymdi að blogga frama minn síðustu vikur:
1) Ég fékk sumarvinnu á ÍSOR (Íslenskum orkurannsóknum) við að forrita í Linux-skeljum og fara í vinnuferðir út á land.
2) Ég var kosin skorarfulltrúi 1. árs eðlisfræðinema.

Vinnuna á ÍSOR fékk ég, skilst mér, vegna þess að sá sem sá aðallega um ráðningarnar þekkir pabba og veit að hann er klár í Linux (= dóttirin er það líklega líka) en svo vona ég að það sé líka vegna þess að áhugi minn á forritun kom fram í starfsumsókninni. Svo þið getið ímyndað ykkur um hvað umræðurnar við matarborðið munu snúast hjá okkur pabba í sumar ;) En ég hlakka gríðarlega til :D Þekki líka a.m.k. helming hinna sumarkrakkanna héðan úr HÍ, sem eru allir sérlega skemmtilegt fólk.
Skorarfulltrúi þýðir svo að ég mæti á skorarfundi í eðlisfræðiskor þegar þarf að halda þá. Hef þar atkvæðarétt, tek þátt í umræðum um það sem er að gerast í skorinni og gæti hagsmuna okkar nemendanna, ásamt Ómari sem er fulltrúi 2. árs nema. Ég er búin að mæta á einn fund og líst ágætlega á þetta. Kynnist líka nýrri hlið á prófessorunum og hækka kynjahlutfallið á fundunum úr 0% í ca. 9% ;)

Annars er ég að reyna að byrja í próflestri en gengur hálfbrösulega. Ég er alltof róleg eitthvað enda sýnist mér ég hafa 6 daga til að lesa fyrir erfiðasta prófið, 5 fyrir það næsterfiðasta og 3 fyrir sitthvort meðalþunga prófið, ef ég gef skít í það léttasta og rifja upp í ½-1 dag fyrir það (held ég þurfi svei mér þá ekkert að lesa fyrir prófið...).

Loks mæli ég með útiveru þessa dagana, t.d. trjásetu eins og Ásta vinkona stundaði um daginn. Um að gera að sækja sér krafta í vorið eftir veturinn :)

þriðjudagur, apríl 19, 2005

hitt og þetta

Er veðrið ekki yndislegt í dag? Vindurinn er hlýr! Ég fer bara að halda að það sé komið almennilegt vor og [krossa puta] bráðum sumar! Svei mér, ef ég tími nokkuð að vera hjátrúarfull og óska þess að það komi næturfrost aðfaranótt fimmtudagsins (sumardagurinn fyrsti...) ;)

Á sunnudegi fyrir rúmum tveim vikum fluttu pabbi og mamma næstum allt úr þvottahúsinu. Á mánudagsmorgni fyrir viku huldi Bjarnheiður stigapallinn við forstofuna, stigann niður í kjallara og gólfið í kjallaraholinu með byggingaplasti og límdi sem vitlaus væri með málaralímbandi upp á vegg. Þetta var allt gert vegna „yfirvofandi“ skólplagnaframkvæmda í raðhúsalengjunni okkar. Borunin hófst svo í okkar húsi ekki fyrr en núna í gærmorgun. [Við erum rosalega fegin að vera úti á enda og vera þar með síðust í röðinni, því þvottahúsgólfið er búið að vera opið í að verða tvær vikur hjá þeim fyrstu í röðinni núna (t.d. ekki hægt að þvo þvott o.fl.).] Við Bjarnheiður klæðum okkur því í útiskó til að komast í herbergin okkar til að sofa. Nokkuð sérstakt. En mamma er arfapirruð og undin eins og gaddavír yfir framkvæmdunum, borhávaðanum og öllu rykinu og veseninu. Hvernig væri hún ef við hefðum verið fyrst í borunarröðinni?
Ég flúði hins vegar til ömmu og afa í Sigtúni í gær eftir skóla og steinsofnaði á sófanum hjá þeim, við tifið í klukkunni í stofunni; tikk takk tikk takk. Enn soldið slöpp eftir að smá kvefpest um helgina.

Hugi frændi fermdist borgaralega á sunnudaginn. Bjarnheiður var fulltrúi okkar fjölskyldu við athöfnina og skemmti sér konunglega. Tvær bráðefnilegar rokksveitir úr röðum fermingarbarna, Felix Bergsson, Halldóra Geirharðsdóttir / Barbara trúður, Sigrún Valgarðsdóttir o.fl. Það óð svoleiðis á henni þegar hún var að lýsa öllu fyrir okkur :D Við gáfum Huga 50+10 lítra bakpoka og buff fyrir hárlubban í fermingargjöf. Við Bjarnheiður pökkuðum þessu inn eins og skútu (Hugi er siglingakappi) með buffið sem [landa]kort. Skútan hét náttúrlega Gjöf EA ;) Hugi var reglulega ánægður með Gjöfina og við þá auðvitað líka :) Svo var líka ákaflega skemmtilegt að amma kom með Huga og fjsk. frá Akureyri og hún gisti hjá okkur þessa daga, mið.-sun. (Hlynur, Kristín, Hugi og Lóa gistu hjá Gunna og Huldu).

sunnudagur, mars 20, 2005

páskafrí

Ég held að það hlaupi allsvakalegt páskafrí í mig á þriðjudaginn svo ég geri ekkert af viti, nema jú mæta á k-tu afleiðuna (þó einhverjir telji vafasamt hversu vitlegt það er...) En ég ætla þá að njóta þess í botn :) Má reyndar vera að ég muni liggja sveitt yfir #%"$&#% verkbók fram eftir þriðjudeginum, en krossum putta :P

Svo liggur ljóst fyrir að miðvikudagurinn fer í þreytu og "vaáááá-engin-skil-á-morgun"-spennufall. Svo sé ég fram á að ég raði mínum 5 námskeiðum niður á jafnmarga frídaga til að ná því upp sem einfaldlega komst ekki fyrir í námsbylnum sem geisað hefur frá áramótum (hve mörg ykkar hugsuðu eða reyndu að rifja upp málsgreinina: "Stríð geisaði og hermennirnir geystust fram á vígvöllinn"??? Sé glottið á Arngrími [íslenskukennara] fyrir mér ;D ) en gleymi því svo að skóli sé yfirleitt til á páskadag. Líkurnar á að planið haldist eru ~0,1.

Hm, þetta er nú frekar klikkuð tilvera. Ég er a.m.k. fegin að hafa hent mér út í aupair-störf (í Þýskalandi, jan-júl 2005) því annars myndi ég efast um að ég hefði gott af þessu. En þar sem ég veit að ég GET plumað mig í einhverju allt öðru en skóla þá róast ég eitthvað. Furðulegt ekki satt?