72 ferningar - ah búh!
Það er að segja, ah-búh í ferningaheklinu sjálfu. Nú er "bara" eftir að hekla þá alla saman... ;)
Annars hef ég verið með ýmislegt annað á prjónunum síðustu vikurnar og mánuðina. Tók mig til og skolaði úr afrakstrinum í gær.
Í alvöru, verður það mikið krúttlegra en þetta? Á reyndar eftir að sauma í miðjuna á peysunni, klippa (*andköf!*) og hekla lista með grænum blómatölum á. Hækka krúttstuðulinn þá enn meira. Núna eru pínkuponsu sokkar á prjónunum og lopapeysa á Láru frænku fer mjög fljótlega í vinnslu. Verður voða gott að hafa eitt verkefni á almennilegri prjónastærð svona með, ekki bara prjóna á tannstöngla endalaust ;)
Og í lokin, bumbumynd frá í gær (já, ég veit, grey naflinn!)
Fyrir áhugasama, þá vegur þessi kúla um 7 kíló, samkvæmt nýjustu ónákvæmu mælingum.
3 ummæli:
Þetta teppi er glæsilegt hjá þér! Já og kúlan þín er líka glæsileg ;)
Vá! Hún stkkar og stækkar! Alltaf verð ég jafn hissa á því hvað húðin hefur mikinn teygjanleika ;)
Teppið verður æðislegt, og litla peysan er ekki síðri :)
sammála síðasta ræðumanni ;) vona að þið hafið það sem allra best. kram. Unnur
Skrifa ummæli