mánudagur, október 13, 2008

me-e-e

Nei, nei, þetta blogg er ekki dautt og ekki komið í dvala... hélt ég alla vega. Satt best að segja þá fannst mér ég hafa sett bloggið á "sjálfvirk skrif" en það hefur greinilega misheppnast eitthvað. Það er satt best að segja alltof alltof mikið að gera í náminu núna þessa dagana og verður þannig væntanlega a.m.k. næstu 3 vikurnar. Auðvitað gæti ég skrifað um 4-6 pistla, bjarnheiðska að lengd, um atburðina, lífið og tilveruna síðustu vikur, en það er ekki smuga að koma því að á dagskránni - ég er of upptekin við að fylgjast með M5. Ég leyfi ykkur þess í stað að njóta þessarar elsku hérna:


Eins og svo oft áður þá horfir hún til mín af tölvuskjánum. Ef ykkur langar til að hún líti líka til ykkar af ykkar eigin tölvuskjá, þá er ráðið að líta á þessa vefsíðu og nota leitarorðið "curiosity" (leitarreitur efst í vinstra horni). Þá ætti hún að vera mjög viljug að koma til ykkar, ólíkt flestum öðrum kindum...

Engin ummæli: