sunnudagur, júní 11, 2006

komin til Potsdam

Ferðasaga í símskeytastíl...
Vakna kl 4 (úff), sturta, borða, BSÍ, kveðja Sigga (gaaa...), flugrúta, Guggý (skólafélagi nær allan grunnskólann, bekkjarfélagi í 10. bekk, tónskólafélagi, hin indælasta fiðlustelpa) á leið í inntökupróf í Berlín, Hannover og Amsterdam og svo í Orkester Norden. Löng biðröð í innritun: skólalúðrasveit Vesturbæjar á ferðinni og almennt margir farþegar og fá afgreiðsluborð. Flugtak 7.00, kúrilúr, lending 12.20. Kvaddi Guggý. Bilað hjól á ferðatösku á miðri 12 mín göngu á lestarstöðina, barningur með 30 kg farangur í 22°C hita. Rétt náði lest til Potsdam 13.09. Klukkutíma ferð. David Bruhn í Potsdam 14.15. Ganga í 15 mín uppímót í rannsóknarstöðina GFZ í sól og hita.

... og svo oggulítið meiri málalengingar fyrir framhaldið
David Bruhn er fínasti náungi. Jarðfræðingur. Hann hefur vesenast heilmikið fyrir mig, t.d. fundið þetta líka fína herbergi fyrir mig rétt hjá aðallestarstöð Potsdam og GFZ og fundið handa mér hjól að láni. Síðan ég kom hefur hann svo kynnt mig fyrir heilum haug af fólki (nöfnin, úffpúffpúff... ;) ), sýnt mér skrifstofuna mína, aðalbyggingu GFZ, rannsóknarstofuna og tækin sem ég mun vinna með, mötuneytið o.fl. og gefið mér ýmis góð ráð í sambandi við daglegt líf (verslanir, áhugaverðir staðir, sundlaug, ...).

Konan sem ég leigi herbergi hjá heitir Gudrun Ritter. Hún er indælismanneskja, landfræðingur (man ekki alveg við hvað hún vinnur, ef ég skildi það alveg :P ), sportleg og hress. Kann að slappa af. Herbergið mitt er vel stórt og notalegt. Stórar dyr og stór gluggi, sem til allrar hamingju vísar mót norðri því annars myndi ég bráðna þar inni (það er spáð 27-30°C hita og steikjandi sól fram á miðvikudag, hjálp!). Afslappað heimilishald. Ég sakna eiginlega bara borðtusku í eldhúsinu ;)

Í gær náði ég í reiðhjól sem einhver kona hér í GFZ var svo indæl að lána mér. Það er að vísu ekki fjallahjól og gírarnir eiginlega bara 3 þótt þeir eigi að vera 5..... en ég er þó töluvert frjálsari og sneggri á því heldur en á tveim jafnfljótum og ríkari en með strætó&sporvagni ;) Hins vegar mun ég væntanlega ekki fara í neina lengri hjóltúra á þessum annars ágæta farkosti.

Ótrúlegt en satt, þá er sundlaug rétt hjá Aðalbrautarstöðinni hér. Kostir: 50m laug, afsláttur fyrir námsmenn. Ókostir: vatn 27°C, ekki öldubrjótslínur sem skilja milli brauta (súp). Búningsklefinn er óskiptur milli kynja, en sturtuklefinn er skiptur. Fólk er svei mér þá frjálslegra hér en á Íslandi, því í búningsklefanum í gær stóðu kviknakinn karlmaður og sömuleiðis allsnakin kvenmaður og sneru bökum saman, baukandi í fataskápunum sínum. Skemmtilegt að hér sé enginn pempíuskapur eins og á bresku skólastúlkunum sem heimsækja laugarnar heima ;)

Hér er GÍFURLEG HM-stemmning og þjóðfélagið náttúrlega alveg hreint á hvolfi. Sem dæmi getur þú keypt bolla, allan fatnað, hanakamb, fána, teygjur, gúmmíarmbönd, flugnaspaða, reiðhjólahjólbarða, ... allt í þýsku fánalitunum. Svo ekur fólk um með fána síns lands út um gluggann og þeytir bílflautuna fyrir og eftir leiki og þegar það langar til. Alveg hreint dásamlegt ;) Sjónvörpin eru dregin út í garð og kynt undir grillinu í góða veðrinu. Næstum allir veitingastaðir og knæpur hafa stillt upp sjónvarpi svo einhver fáist til að borða hjá þeim...

Fólkið sem vinnur í minni byggingu (A6) og deild heldur hópinn mjög vel saman og leggur t.d. áherslu á að drekka kaffi saman. Því var auðvitað hist hjá einni konunni (Ingu sem ég deili skrifstofu með) til að grilla og horfa á opnunarleikinn núna á föstudaginn. Þau höfðu stillt upp tjaldi og reddað skjávarpa og alles. Úr varð þetta líka fína kvöld og alveg eins og pantað fyrir mig til að kynnast fólkinu, þ.e. þeim gátu komist í gleðina :)

Myndir koma síðar....

Engin ummæli: