þriðjudagur, apríl 24, 2007

vömbin kýld

Afmælisgjöfin okkar Bjarnheiðar í ár var út að borða með kærastanum. Bjarnheiður nýtti sýna gjöf úti í Prag um páskana á frönsku veitingahúsi við mikla lukku. Við Sigurður vorum hins vegar að koma frá því að nýta okkar hlut, sem var gert í Perlunni. Þetta var alveg frábært :) Ofboðslega góður matur og nóg af honum. Við fengum okkur fjögurra rétta tilboðið sem nú er í gangi: Humarsúpa með grilluðum kóngarækjum, pönnukaka með sveppafyllingu, steikt/grillað lambafillet og -lund og vanilluskyr með pistasíufrauði og melónusorbet í eftirmat. Úff, ég sprakk úr seddu undir lok aðalréttarins - en við einfaldlega skiptum á diskum *dúddúrú* ;) Svo er nú alltaf hægt að renna eftirréttinum niður :D Þjónustan var prýðileg, ekki uppáþrengjandi en alltaf til staðar. Það voru auðvitað fáir gestir á þriðjudagskvöldi í lok apríl, svo þetta var einstaklega notalegt. Eini mínusinn var spes tónlist, þ.e. bylgjandi tenór og svo skömmu síðar rífandi stuðlag, tenórinn á ný og seinna "hljómborðssönglag". Öööö... ;) Perlan fær 4½ stjörnu af 5, mikið hrós og kærar þakkir.

Ef þið eruð tilbúin til að greiða 5900,- kr fyrir velútilátna og gómsæta máltíð (bætið 750,- kr við til að fá rauðvínsglas með lambinu), þá eru 4 réttir í Perlunni málið!

föstudagur, apríl 20, 2007

klappað og klárt

Jæja, þá er ég búin að bóka flugið til og frá Potsdam. Allt orðið nokkuð öruggt þar.

Annars eru litlar féttir nema kveffréttir af mér að segja. Krækti mér á ný í sýkingu í hálsi í páskafríinu. Var samt hitalaus og þurfti ekki að lúra í bólinu daginn út og inn, en gat ekki spriklað meira en sem nam einum og einum göngutúr. Baah. Þegar sú kveisa var að réna eftir mikil hóstaköst, nú þá tók bara sú næsta við. Vaknaði sem sé með stokkbólginn hálskirtil í morgun. Já, ég er orðin huuuuuuuuundleið á þessu endalausa víruspartýi! Ekki það, það gætu náttúrlega einhverjar bakteríur hafa kíkt í heimsókn líka. Ég ætla að væla ofurlítið í heimilislækninum á þriðjudaginn. Sjá hvort hann komi auga á einhverjar bakteríur og setji mig á pensilín eða álíka. Minn aumi kroppur virðist í það minnsta ekki ráða einn við þessa gleðipinna....

Eftir þetta væl og volæði er víst best að koma með eina skondna sögu:
Þegar ég steig út úr strætó ská fyrir utan heimilið núna í dag sá ég þar gamlan snyrtilegan mann og annan ungan með ferðatösku, sem greinilega var útlendingur, bíðandi utan við dyrnar. Ég brunaði á staðinn tilbúin að vísa þeim á réttan veg, því svo sannarlega sem við bjuggumst ekki við neinum gestum! Ungi maðurinn var sem sé nýkominn frá farfuglaheimilinu og taldi sig eiga að gista eina nótt á númer 3 við Laugalæk. Ööööö, ne-ei, það getur ekki passað. Humhumhum. Ég opnaði útidyrnar í snatri, bauð þeim inn og hringdi í farfuglaheimilið. Komst að því að ungi maðurinn, Túnisbúi, Mahmoud að nafni, ætti þar bókað herbergi í nótt. Hann hélt á svona lykilkorti og bæklingi sem á var ritað "#03". Í bæklingnum var meðal annars kort af nánasta umhverfi með tölusettum deplum hingað og þangað. M.a. depli 3 við Laugalæk, sem stóð fyrir 10/11 verslunina hér ská á móti. Aha! Mahmoud hafði gist á farfuglaheimilinu eina nótt og hafði svo greinilega átt að skipta um herbergi, þ.e. fara í herbergi 3, en hann misskilið og talið sig eiga að fara þar sem depill 3 var og gamli maðurinn (sem hitti hann greinilega rammvilltan við Laugalæk) skilið hann svo þannig að hann væri að leita að Laugalæk 3! Skemmtilegasta hringavitleysa. Áður en þeir kvöddu, fundum við svo heimilisfang og símanúmer Alþjóðahússins fyrir Mahmoud, því hann var að leita sér að ódýru herbergi til að leigja í einn mánuð. Þar ætti hann örugglega að finna einhvern til að hjálpa sér, sér í lagi einhvern sem talar frönsku.

þriðjudagur, apríl 03, 2007

tími til að tengja

Nú er orðið hér um bil öruggt (þ.e. 90%) að ég fer aftur til Potsdam í sumar, eins og í fyrra. Verð þar líklega í 6 vikur, frá 28. maí til 10. júlí. Get leigt herbergi hjá Gudrun eins og í fyrra og notað sama hjólið því Gudrun keypti það af hinni indælu frú Fuhrmann í lok sumars, einmitt til að geta lánað leigjendum sínum. Það á eiginlega bara eftir að panta flugið. Sem sé, hvenær á ég að heimsækja þig eða þú að heimsækja mig, Bjarnheiður? :)

Síðasta prófið mitt er annars 14. maí, munnlegt próf í verklegri eðlisfræði. Skýrslunum í því fagi fækkaði um eina í gær (tvær eftir) þegar ég lauk einni sem er búin að taka "#$!#%!$% fimm vinnudaga. Út úr henni kemur svo mest megnis rugl. Allt eins og það á að vera... En jamm, ætli ég renni ekki vestur á Stað í sauðburðinn 15. maí og komi heim þann 22. Get þá mætt í vinnu mið., fim. og fös. áður en ég flýg á braut.

fimmtudagur, mars 22, 2007

jahá

Ég get svo svarið það! Á þetta að heita dómari? Ég væri reyndar til í að sjá rökin fyrir þessu, en fyrr má nú aldeilis vera...

Fór annars í ræktina áðan, í fyrsta skipti eftir árás hins fastsetna víruss. Ansi góð tilfinning :)

fimmtudagur, mars 15, 2007

gleymdist

Gleymdi að segja frá því að fyrir viku náði ég loksins í heimilislækninn minn til að heyra niðurstöðu blóðprufu no. 2 sem hann sendi mig í. Fyrri blóðprufan gaf sem sé einkyrningasótt til kynna. Eitthvað hafði blóðið skipt um skoðun í millitíðinni, því sama próf og annað að auki sögðu að ég væri í góðum málum og laus við einkyrningasótt. Hananú. Verst er að líkaminn og heilsufarið eru þessari seinni greiningu algerlega ósammála. Alla vega er ég enn með 10 tíma svefnþörf og hellur fyrir eyrum vegna slímfulls höfuðs, urrr... Slappleikinn náði nýrri lægð í gær þegar ég hélt varla haus í dæmatíma í algebru II (Jón kennari var meira að segja farinn að spyrja mig í gríni hvort dæmin væru svona leiðinleg, obbosí... ;) ). Ég sá rúmið svoleiðis í hillingum. Svo kom ég heim og var í ástandi sem hvorki leyfði lærdóm né að leggja sig almennilega. Hvað gerir Líney þá? Ég fór að ryksuga. Klikkaði nefnilega á því um helgina. Og svei mér þá ef ég hresstist ekki aðeins við það ef eitthvað er. Tók að vísu tvöfalt lengri tíma en venjulega, eeen... (Skyldi þetta vera "heilakvef" sem ég er með? Bannar allar almennilegar tilraunir til lærdóms en leyfir hálfhugsunarlaus störf eins og ryksugun :P ) Ég lagði mig svo ofurlítið eftir matinn, las yfir skýrslu fyrir Sigurð og gerði svo heiðarlega tilraun til að sofna snemma. Tókst reyndar ekki alveg, en ég er samt töluvert hressari í dag. Mig er a.m.k. farið að dauðlanga í sund. Ótvírætt batamerki ;)

laugardagur, mars 10, 2007

ojamm ojá

Þá er systurskvettan rokin burt á ný. Flaug eldsnemma í morgun til Køben til hennar Ölmu vinkvinnu sinnar, áður en hún heldur áfram yfir á þýðverska grundu. Bjarnheiður er söm við sig og finnur sér alltaf (meir en) nóg að gera. Þeyttist út um borg og bý í gær í heimsóknir og á bókamarkað milli þess sem hún skellti í þvottavél og svoleiðis. Skaust svo í bíó um sexleytið, gjuggaði á Eggertsgötuna til okkar Sigurðar um hálf átta þar sem við sátum og gófluðum í okkur fajitas og var þá þotin á árshátíð með sagnfræðinemum (plön um innflutningspartý eins sagnfræðinema höfðu breyst í árshátíð) að eta kræsingar og dansa dátt. Þegar við Sigurður komum heim á Laugalækinn um hálf eitt sat daman yfir tölvunni og íhugaði að rippa fjall af geisladiskum sem höfðu bæst í safnið daginn áður. Benti henni á hvað klukkan væri og að hún ætlaði að ná flugrútunni eftir rúmar 4 klst. Veit ekki hvenær/hvort hún fór að sofa eftir að ég skreið í ból um eittleytið. En alla vega komst hún heilu og höldnu til Ölmu - og fékk sé lúr áður en hún tilkynnti mér um að hún væri komin heil í höfn með sms-i ;)

Annars erum við Sigurður ein í búi: Pabbi og mamma flugu til Lundúna á fimmtudaginn, Hlynur, Kristín og Una brunuðu norður í gær og svo stakk Bjarnheiður af í morgun, sem fyrr sagði. Gefur svo sem gott næði til að læra, en hefur ýmsa galla. Til dæmis slæmt að missa pabba, því þá þarf maður að elda sjálfur og gera vikuinnkaupin. Líka mömmu, því þvottavélin setur sig ekki sjálf í gang og blómin þurfa vatn. Svo þarf ég þar fyrir utan að sinna mínum parti heimilisstarfanna (ryksuga og vaska upp/þurrka). Þetta verður soldið mikið. Ergo, ég er svolítið of góðu vön :P 0:)

þriðjudagur, mars 06, 2007

rúsína

Í augnablikinu skríkir, daddar og baba-ar ung stúlka á ferð sinni um miðhæð hússins og einstaka sinnum upp og niður stigana. Kallar "mama?" til pabba síns (ekki alveg komin með þetta á hreint ennþá) og heldur áfram að leika sér með glerkúlur, bíla og babúsku þegar nærverutryggjandi "Una" hefur heyrst frá pabbanum. Alveg einstaklega skemmtilegt lítið stýri.

Hlynur, Kristín og Una Móeiður eru sem sé í heimsókn í höfuðstaðnum. Krístín er nefnilega í garðyrkjunámi í fjarnámi en þurfti að koma suður í tvo daga. Í dag er ferðast milli fyrirtækja og á morgun verður eitthvað brallað í Hveragerði. Skemmtilegar svona heimsóknir :)

laugardagur, febrúar 24, 2007

systir kær

Bjarnheiður systir er mætt á klakann í tveggja vikna heimsókn :) Með henni komu m.a. tvær könnur til að skilja fitu úr steikarsoði (sem fer í sósuna, soðið sko), stafræn myndavél fyrir afa og ömmu í Sigtúni, hellingur af alls konar nostalgíulegu súkkulaði frá A-Þýskalandi (í upprunalegu umbúðunum frá 7. áratugnum o.s.frv.), 2GB minnislykill fyrir mig ásamt kremkrúsum og sápu og 7 pökkum af Fisherman's Friend :D Svo er von á Baldri bróður & fjölskyldu og afa & ömmu í Sigtúni í mat í kvöld. Held það verði heilmikið gaman að kenna afa og ömmu á nýju myndavélina þeirra :) Þau hafa nefnilega einungis átt filmumyndavél til þessa, en svo eftir að þau hafa fengið geisladiska með myndum á til að skoða í sjónvarpinu (fengu DVD spilara með slíkum diski í jólagjöf frá Baldri bróður fyrir nokkrum árum) og afi hefur skoðað útprentaðar stafrænar myndir hjá félaga sínum í tréskurðinum sem eru síst verri en filmumyndirnar, þá ákvað afi að það væri kominn tími til að kynna sér þessa tækni. Afi er 85 ára. Hörkukarl :) Næsta skref er svo að redda almennilegum litaprentara sem við getum átt í félagi við þau, þ.a. báðar fjölskyldur geti prentað út þær myndir sem vill. Hinar myndirnar brennum við á geisla- eða mynddiska fyrir þau.

fimmtudagur, febrúar 22, 2007

hressleikinn allsráðandi

Fyrir rúmri viku tóku nokkrir eitlar aftan á hálsi og við nára upp á því að bólgna ofurlítið upp og verða leiðinlega aumir. Síðustu daga hefur svo gífurleg þörf fyrir að leggja mig sí og æ og sofa álíka mikið og ungabarn hreiðrað um sig í mínum kroppi. Ég hringdi í Guðmund lækni á mánudag og var send í blóðprufu. Hitti hann svo í gær og kom þá í ljós að ég er líkast til með einkirningasótt, sem er veirusýking og þar með ekkert hægt að gera við henni. Hálsbólgan mín fyrir tæpum mánuði var sem sé upphaf blómaskeiðs þessarar veiru í líkamanum. Þar mun hún væntanlega halda partý í svo sem tvær vikur enn, en þá eitthvað fara að róast. Partýljónið mun hins vegar ekki bugast fyrr en að 3-6 mánuðum liðnum. Ég verð sem sé að hegða mér eins og hálfgerður eymingi þann tíma, þ.e. sofa nóg (m.ö.o. of mikið), ekki blotna, ekki verða of kalt o.s.frv. Sem sé hressleikinn allsráðandi.

laugardagur, febrúar 10, 2007

hingað og þangað

Bendi ykkur á tvo sjóðheita pósta og einn m.a. með mynd af Leibniz kexi. Annars vegar gagnrýni á íslenska fréttamennsku og hins vegar um fólk sem upphaflega gróf höfuðið í sandinn en gjuggaði a.m.k. ofurlítið upp úr sandinum skömmu síðar.