fimmtudagur, október 26, 2006

húbbla

Kominn tími til að sýna smá lífsmark. Það er bara eitthvað svo lítið að frétta :S En kannski hægt að tína eitthvað til...

Fór á hádegistónleika í Norrænahúsinu í gær. Hljómsveit Hafdísar Bjarnadóttur lék þar 6 lög eftir Hafdísi (þar af eitt aukalag því þótt klukkan væri orðin eitt, þá bara urðum við að fá að heyra meira ;) ). Leitt hversu dræm mæting var. En lögin hennar Hafdísar eru brill. Ótrúlega fjölbreytt. Alls kyns stefnur og stílar :)

Að öðru leyti er ég á kafi í hinum breiða og stóra og (núorðið) venjulega námssúpupotti. Sit yfir tugblaðsíðna-löngum skammtafræðidæmum með harðsperrur á við hraustlega Vadim-"dry land"-æfingu (síðan í sundinu) eftir að hafa tekið vel á axla-, brjóst- og bakvöðvum, þríhöfða og tvíhöfða í fyrradag. Þarf nauðsynlega að komast í sund í dag til að liðka aumingjans vöðvafrumurnar mínar og tilheyrandi sinar.

Mamma verður með frænkukvöld annað kvöld og keppist við að baka kökur og smyrja brauðrúllutertur. Maginn í mér hoppar af kæti við tilhugsunina um alla afgangana ;)

En annars ef ég týni blogginu á ný innan um skammtakerfi, grúpur, bauga og afleiðujöfnur, þá má alltaf leita þangað sem margt er að frétta: draga andann djúúúúpt og skella sér í eina maraþonfærslu hjá Bjarnheiði systur ;D

mánudagur, október 09, 2006

sko

Ég hef yfirgefið Símann og flutt mig yfir til SKO. Ef þið reynduð að hringja eða senda sms í dag frá 12-20, þá var það árangurslaust því sauðurinn Líney skildi nýja sim-kortið eftir heima hjá sér. Sé svo til hvernig SKO stendur sig eftir áramót, hvort ég flytji mig aftur yfir til Símans.
Bara láta ykkur vita af flutningunum...

sunnudagur, október 01, 2006

margt og mikið

Um það leyti sem ég skrifaði síðustu færslu var fyrsta skammtafræðiógeðsskammti annarinnar nýlokið. Síðan þá hefur annar skammtur runnið í gegn, töluvert þægilegri en sá fyrsti, ásamt ógrynni annarra verkefna. Ég hef líka steikt afmælispönnsur (með misgötóttum árangri), stýft taglið af við teygjuna, keypt mér fartölvu (sem ég sit við núna), kynnt undur eðlisfræðinnar fyrir gestum Vísindavöku, legið ofurlítið í leti, vafstrast í uppsetningu fartölvunnar (sem annars var í höndum Sigurðar nokkurs), spilað fótbolta og vakið við það hálsbólgu úr tveggja vikna dvala (arg!), hjálpað oggopínkuponsulítið við undirbúning kveðjuteitis Bjarnheiðar systur, setið í því um klukkutíma áður en ég stakk af á góðan en heldur langan Raunveru-fund (hagmunafélag nemenda í raunvísindadeild), kvatt Bjarnheiði systur og knúsað (farin til náms í stærðfræði við þýðverskan háskóla í Freiberg) og rænt rúminu hennar, passað húsið í fjarveru foreldranna (í Búlgaríu, endalaust flandur á fólkinu...), farið í abbskaplega notalegt afmæli til Ástu og soðið árlega tómatsósu úr 5,3 kg af tómötum (með þrem tilraunum til að sneiða af mér jafnmarga fingur og heilmiklum laukgráti).
Ojá, það er alltaf meir en nóg að gera ;)

þriðjudagur, september 12, 2006

sami titill og síðast...

Ojamm-ojá. Sumarprófið sem ég minntist á síðast er svo löööööngu búið að ég er meira að segja lööööngu búin að fá einkunnina í hús! (En kennarar eru jú yfirleitt ekkert að flýta sér þegar kemur að því að fara yfir sumarpróf...) Skýrslan sem ég vann að á ÍSOR síðan ég kom heim eftir Potsdam dvölina kláraði sig því miður ekki sjálf áður en sumartíma mínum þar lauk. Abbsasí. Svo ég verð bara að klára þetta sérverkefni mitt í hjáverkum nú í haust/vetur eða í jólafríinu (það síðasttalda yfirgnæfandi líklegast).

En ég hætti sem sé að vinna 24. ágúst. Brunaði þá um kvöldið ásamt Sigurði á hvítum (bif)reiðskjóta norður í land eða nánar til tekið á Ærlæk, rétt hjá Ásbyrgi og Kópaskeri, til að tölta upp og niður misstórar „þúfur“, veiða og liggja almennt með tærnar upp í loft í tæpa fjóra daga. Svo skemmtilega vill til að einhvern tíma þegar ég var pínu pons þá lét ég báta (tréfjalir með nagla og snærisspotta) fljóta á lítilli lækjarsprænu sem rennur við hlið skattstofubústaðarins svokallaða, í landi Ærlækjar. Afi og amma á Akureyri tóku þátt í að byggja hann, svo afi og amma og foreldrar hans Sigga þekkja þau ágætlega. Magnað.

En það var jú ýmislegt brallað, t.d. litið á Dettifoss

og sjálfsmyndataka stunduð

hoppað í berjamó

litið á eitt Grettisbæli í Forvöðum

og dáðst að Forvöðunum

gjugg!

rennt fyrir silung

róið út á vatn...

...til að leggja net

Sylvía yngri systir Sigurðar og aflakló

Botnstjörn í Ásbyrgi

og skeifan út

nammi namm!

afar og ömmur

Jón Dór pabbi

Guðný mamma

og Harpa eldri (samt yngri) systir (búin að útrýma krullunum um stund)

laugardagur, ágúst 12, 2006

úbbs, hvert flaug tíminn?

Jæja jæja, heldur langt liðið frá síðasta pikki. Ekki að það hafi verið eitthvað tíðindalítið, ég er einfaldlega að rembast við að lesa fyrir sumarpróf eftir vinnu og um helgar, sem gengur að vísu eitthvað brösulega. En þá er blogg sem sé ekki efst á dagskrá...

Fyrir rúmri viku, þ.e. á fim. og fös., tölti ég ásamt Sæma (sumarmanni á ÍSOR) á eftir Rússanum Nikolai um fríðar grundir Hengilssvæðisins og klöngraðist yfir heldur óblíð hraun í Þrengslunum. Með misþungan bakpoka á bakinu og í misgóðu veðri (mest megnis rigningarsuddi og vindur/rok), eins og gengur. Tók mig einungis 5 kílómetra labb í gönguskóm að næla mér í þessi líka myndarlegu hælsæri. Skipti yfir í öllu mýkri stígvél og svo fór það bara eftir duttlungum líkamans hvort hann kvartaði yfir hælsærum, eymslum í vinstra hné, kulda eða hita :P Gekk m.a. tvisvar upp snarbratta hlíð Lambafells til að koma fyrir/ná í mælistöð. Sem betur fer blés vindurinn kröftuglega upp fjallshlíðina, ekki niður... En hvað sem öllu volki og aumingjaskap líður, þá var alveg óskaplega hressandi að komast í svolitla útivinnu :)

Sit annars allan heila vinnudaginn við tölvuna og reyni að skrifa skýrslu um mælingarnar úti í Potsdam. Það gengur mjöööööög hægt. Og þar að auki verð ég að skrifa skýrsluna í Word, út af linux-fötlun samstarfsmannanna úti í Potsdam. Arg.

En í dag eiga bæði mamma og Matthías hálfbróðursonur minn afmæli. Matthías meira að segja sitt fyrsta merkisafmæli - hann er 10 ára :) Til hamingju, mamma og Matthías! Slíkum tímamótum fylgja auðvitað miklar veitingar með tilheyrarndi ofáti. Sérstaklega þar sem afmælisbörnin eru tvö. En ég hef svo sem aldrei átt í vandræðum með að kýla vömbina... ;) Smjatt!

þriðjudagur, ágúst 01, 2006

fjölgun

Á skrifstofunni við hliðina sitja tveir skemmtilegir náungar. Nú í vetur hafa þeir sett upp vel stórt fiskabúr og hafa þar 20-30 gullfiska af ýmsum stærðum og gerðum ásamt sniglum. Vitanlega er þess gætt að vatnadýrin hafi almennilegt landslag - stóra mynd af Reykjaneshryggnum :) Núna rétt áðan heyrðust mikil gleðióp frá þeim félögum. Fjórum litlum gullfiskaafkvæmum (af um 30) hafði tekist að komast af, þ.e. sleppa frá því að vera étnir af stóru fiskunum. Trikkið að vera með grófa möl í botninum þar sem smábörnin geta falið sig fyrst um sinn. Svo nú sitja þarna kampakátir nýbakaðir "feður". Alltaf gaman í vinnunni... ;)

miðvikudagur, júlí 26, 2006

forstýra?

Við heimkomu var mér vegna plássleysis plantað inn á skrifstofu aðstoðardeildarstjóra eðlisfræðideildar ÍSOR meðan hann rambaði um á tveim jafnfljótum um ægifagurt hálendi Íslands. Nú er hann væntanlegur til vinnu á morgun. Forstjóri ÍSOR er í frí til 21. ágúst (ég hætti að vinna 24. ágúst) en hann leit við til að spjalla um Potsdam-mælingarnar núna áðan. Hann sagði mér endilega að nota sína skrifstofu fyrst hann væri í fríi. Uuuu... hmm... tjah... kærar þakkir! En nei, ég held ég verði frekar á hálfgerðum vergangi en sitja á sjálfri forstjóraskrifstofunni, sama hversu tóm og ónotuð hún er ;D

mánudagur, júlí 24, 2006

frónbúinn

Jahá, næstum ein vika liðin síðan ég kom heim! Eina afsökun mín (sem er mjög góð afsökun) fyrir bloggleysi er sú að það er svo dásamlegt að koma heim í íslenskt veður, ferskt loft, göngtúra, sund, skokk (án þess að leka öll á gangstéttina), Sigurðarfaðm, pabba&mömmu-mat, sumarbústað, ... að alnetið gleymist svo til alveg. Ég mætti líka strax til vinnu eftir heimkomu (þ.e. á miðvikudaginn) og notaði allan fimmtudaginn í dagsferð og matarboð með þýskri kunningjakonu. Helgin leið hratt í leti, sundi, eldamennsku og hinu ljúfa lífi sumarbústaðarins: göngutúrum, ofáti, pottbleyti, sólböðum og spilamennsku. Annars held ég svei mér þá að ég hafi ekki legið almennilega í leti síðan um síðustu jól! Alla vega man ég ekki eftir slíkum degi síðan þá :P
En já, heima er bezt! ;)

sunnudagur, júlí 16, 2006

líður að heimför

Jú jú, það eru einungis tveir dagar í að ég kem heim. Ætti að vera á leiðinni til Schönefeld-flugvallar með lestinni um þetta leyti eftir tvo sólarhringa. Sjáum til hvort mér takist að pakka einhverri sól, sumri og aukagráðum með í ferðatöskuna - hefur heyrst að það vanti eitthvað þess konar í höfuðborginni a.m.k.

En dagarnir líða því hjá mér núna helst við að kveðja fólk, þakka fyrir mig og saxa á "það sem þarf að gera fyrir brottför"-listann minn. Er reyndar flest allt komið nema ganga frá ýmsum gögnum í vinnunni, skila lyklum, þrífa herbergið mitt og pakka. Mikil gleði :)

Sjáumst!

laugardagur, júlí 08, 2006

toppgoði - toppsund

Á fimmtudaginn var tróð ég marvaðann í um 2 metra fjarlægð frá fugli er nefnist toppgoði
í u.þ.b. hálfa mínútu áður en hann stakk sér á kaf í grænleitt og lítt tært Heilagavatn (Heiliger See). Fyrir utan að öll heila sundferðin var frábær þá var þetta eitt af betri augnablikum dagsins. Ég mæli annars með þessari fuglamyndasíðu; reglulega fallegar myndir þarna.