sunnudagur, febrúar 26, 2006

rugl

Það er ekki ólíklegt að ég bloggi lítið á næstunni. Það er bókstaflega allt klikk í skólanum. Er meira að segja að hugsa um að beila á lúðrasveitinni. Ég varð næstum lasin núna á fimmtudaginn (er raddlaus sem stendur) sem þýddi 10-12 tíma svefnþörf í a.m.k. þrjár nætur og það ásamt morðskiladæmum, stórum heima-/þemaverkefnum, námskynningu um helgina o.fl. o.fl. hefur sett allt á haus. Við erum öllsömul eftirá í öllu og það er sama hvað við reynum, bunkinn bara stækkar. Ég er ekki einungis dauðþreytt á þessu, heldur líka bálreið. Fyrsta árið var slæmt, en þetta er ekki bara geggjun heldur algerlega út í hróa hött, út af kortinu og gersamlega óþolandi. Langt yfir strikið. Og þetta var aðeins brotabrotabrot af stórri reiðigusu....

Þangað til næst; bið að heilsa.

þriðjudagur, febrúar 21, 2006

myndirnar

Búin að laga upplausnina á myndunum; eða a.m.k. að reyna það því enn eru nokkrar að stríða mér og þykjast vera sykurmolar...

laugardagur, febrúar 18, 2006

brandari

Hafið þið heyrt/séð þennan? :D

föstudagur, febrúar 17, 2006

ahh...

Hvað sundið var yndislegt! :)

hmmm

Það er svona eitthvað sem segir mér að þrír póstar í röð um tónleika séu a.m.k. ekki vænlegir til umræðna innan um epli og skyr ;)

En annars er lítið að frétta, þannig lagað. Það er allt komið á fullt í náminu og hrúgan orðin svo há að ég er farin að horfa frekar rólega á hana, svei mér þá. Orðin ónæm fyrir bákninu. Það er farið að gerast a.m.k. einu sinni í viku að ég fari aftur vestur í HÍ eftir kvöldmat og sé þar fram undir miðnætti, þ.e. þar til öllum er hent út af bókasafninu í VR-II. Lærdómur frá átta, hálf níu á morgnana til miðnættis/eitt með hádegishléi, appelsínuhléi, kvöldmatarhléi, svona 3-4 kjafta- og tölvupóstshléum og 1 klst í sprikl, er daglegt brauð mán-fös og næstum lau og sun líka.

Baldur besti bróðir er búinn að setja upp Linux kerfi á USB-harðan disk fyrir fartölvuna fyrir mig svo nú munu þó nokkrar klst fara í leit, lestur, hlátur og hárreytingar út af frekari uppsetningu þess. Ég telst hér með hálf-nörd (þarf að setja upp Linux frá grunni til að teljast fullgild) og er hæst ánægð :) Hlakka mikið til að berjast við Linux-ið.

En nú er ég þotin í sund. Bið að heilsa.

sunnudagur, febrúar 12, 2006

fjögur frækin

Svo ég haldi ykkur nú áfram velupplýstum um hvað Sinfó er að bralla... Ég fór á tónleika Sinfó með ungum einleikurum í gær, þ.e. með ungum tónlistarnemum sem valdir eru úr stórum hópi og fá það frábæra tækifæri að leika með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Ekkert minna. Í ár hrepptu Júlía Mogensen (selló, 1985), Gunnhildur Daðadóttir (fiðla, 1983), Jóhann Nardeau (trompet, 1987) og Gyðný Jónasdóttir (selló, 1986) hnossið. Dömurnar eru í Listaháskóla Íslands en Jói er í Tónlistarskóla Reykjavíkur (lýkur einleikaraprófi í vor). Þau léku öll stórkostlega. Lýsingin er: VÁ!!! Júlía rólyndisleg að vanda, Gunnhildur örugg, Jói glæsilegur og Guðný átti sviðið. Úffpúffpúff, ég dáist að þeim öllum.

föstudagur, febrúar 10, 2006

myrk Sinfó

Tónleikar á Myrkum músíkdögum
í Háskólabíói, fimmtudaginn 9. febrúar kl. 19.30

Hljómsveitarstjóri: Rumon Gamba
Einleikari: Auður Hafsteinsdóttir, Bryndís Halla Gylfadóttir og Örn Magnússon

Haraldur Vignir Sveinbjörnsson: Sjö byltur svefnleysingjans (2003)
1. Tögl og haldir
2. Svefnrofar
3. Örvæntingardans
4. Vögguvísa
5. Byltur
6. Eftirleikur
7. Órökréttlæti

Þorkell Sigurbjörnsson: Þrenjar (1984)

Hlé

Eiríkur Árni Sigtryggsson: Sjöstirni (2002)
-frumflutningur

Þorsteinn Hauksson: Sinfónía eitt (2002/2005)
-frumflutningur-
I
II
III


Þetta voru bráðskemmtilegir tónleikar! Og alveg hreint grátlegt hversu fáir tónleikagestirnir voru :( Sinfó tekst að fylla eða næstum fylla stóra salinn þegar hún leikur verk eftir einhverja útlendinga, en þegar eingöngu íslensk verk eru á efnisskránni þá er eins og fólk haldi að það muni barasta deyja úr leiðindum! En mér líkaði svo vel við verkin að ég get varla gert upp á milli þeirra. Held samt að fyrsta og síðasta verkið skríði fram úr hinum. Þá var alveg hreint frábært að áður en hvert verk (nema Þrenjar) var leikið þá sagði Rumon Gamba, aðalhljómsveitarstjóri Sinfó, frá ýmsu í sambandi við verkið, spilaði bút og bút úr því hér og hvar til útskýringa og var almennt einstaklega skemmtilegur áður en hann svo stjórnaði verkinu öllu. Þrenjar er með þrem einleikurum og þá var Rumon of kurteis til að draga athygli að sér með því að segja frá verkinu; oh, ég hefði svo sannarlega viljað heyra um það líka ;)
Öll efnisskráin er hér og þið getið hlustað á tónleikana hérna (svona meðan þið skrifið ritgerðina eða tölvupóstinn eða ráfið um á síðum vefdagbóka...).

fimmtudagur, febrúar 09, 2006

tónleikar

Hmm, ég þyrfti eiginlega að finna einhverja gaura eða grýlur eða atburði eða ... til að tilkynna um á u.þ.b. hverjum degi, svona eins og jólasveinana, til að ég pikki a.m.k. oggolítið oftar.

Ég fór annars á Myrkra-músíkdaga-tónleika í Langholtskirkju í gær (hafði náttúrlega ekkert efni á því tímalega séð...) og er á leiðinni á aðra myrka með Sinfó á morgun (þrátt fyrir heldur betur djúpan verkefnaskít - ekki byrjuð á þrem skilaverkefnum sem eiga að skilast á föstudaginn) og svo á unga einleikara með Sinfó á laugardaginn. Skyndilegt tónleikaáhlaup. Veit ekkert hvaðan þetta kom...

Brjálæðið í námi annarinnar er formlega hafið - nú er fyrsta fulla skilavikan (skil í öllum áföngum) og tilkynnt var í dag að verklegar æfingar hefjist í næstu viku. Gúlp.

föstudagur, febrúar 03, 2006

sumarmyndir

Ég var algerlega andlaus um hvað ég gæti pikkað hérna svo ég setti upp síðu með myndum frá í sumar. Það tók að vísu heldur langan tíma að gera þetta alveg sjálf, en var líka þeim mun skemmtilegra... ;) Upplausn margra myndanna er of gróf, svo nú megið þið segja mér hvort ég eigi að skala frummyndirnar aftur og þá með meiri upplausn eða hvort ég eigi einfaldlega að hafa myndirnar í svolítið smærri ramma. Myndasíðan er hér!

E.s. Þið megið líka segja mér hvers vegna krækjuramminn utan um litlu myndirnar er bara blár í InternetExplorer en verður eins og ég "forritaði" (svartur/gulur) þegar síðan er skoðuð í MozillaFirefox (sem er besti vafrinn, ef þið vissuð það ekki... ;) ).

sunnudagur, janúar 29, 2006

þróun

1. skólavika: Bíðum nú við, hvernig var þetta...? Ah! svona: tilraunir til skipulags, lítill svefn, strætó, ... Gott að vera komin aftur.
2. skólavika: Hjálp!!! Varla ein vika liðin og komin eftir á í öllum fögum; *skelfing*
3. skólavika: Æææji, skítt með það.....

Ætli þetta þróist svo ekki smátt og smátt í átt til brjálæðis, eins og venjulega ;P