dæmigerð staða fyrir jól
Fyrsta verk mitt eftir að prófunum lauk var að taka til í herberginu mínu - ég held það verði líka mitt síðasta verk áður en skólinn byrjar á ný. Og í rauninni get ég ekki kallað það fyrsta og síðasta verk því það er "samfellt verk með köflum" ...
Annars er ég í góðu stuði í augnablikinu, nýbúin að baka 5 plötur af gyðingakökum :) Í gær klukkan hálf fjögur var ég eitthvað pirruð yfir lélegum afköstum þann daginn (sem í rauninni var tómt rugl og vitleysa) en bara það að búa til deigið í þessar gyðingakökur sletti sólskinsbrosi framan í mig. Þið getið því ímyndað ykkur ánægju mína núna.
Annars er ég dauðþreytt eftir indælis Stigulsdjamm (jólaglögg) í gærkvöldi og fram á nótt. Held ég sé því farin að lúlla til að vera klár í slaginn að berja niður allar tilraunir til stresskasta og tjakkskaps hjá öðrum fjölskyldumeðlimum á morgun (og síðasta setning var eðaltjakkskapur í boði Líneyjar). Svo er jú líka hið ómissandi Þorláksmessu-miðbæjarrölt annað kvöld :)