sunnudagur, desember 24, 2006

kertasníkir


Þrettándi var Kertasníkir,
-þá var tíðin köld,
ef ekki kom hann síðastur
á aðfangadagskvöld.

Hann elti litlu börnin,
sem brostu glöð og fín,
og trítluðu um bæinn
með tólgarkertin sín.





-- Gleðileg jól! --

laugardagur, desember 23, 2006

ketkrókur


Ketkrókur, sá tólfti,
kunni á ýmsu lag. -
Hann þrammaði í sveitina
á Þorláksmessudag.

Hann krækti sér í tutlu,
þegar kostur var á.
En stundum reyndist stuttur
stauturinn hans þá.




Ég var svo þreytt eftir annarlok, jólpróf og jólagjafastúss gærdagsins að mér tókst svei mér þá að sofna eftir venjubundið "klukkan-7-rumsk". Steinsvaf þá með einu hléi til korter yfir ellefu en vaknaði þá bara af því að Sigurður fékk sms um breytta flugáætlun FÍ (flaug norður í dag með einungis klukkutíma seinkun). Annars hefði ég steinsofið fram á síðustu stundu, rétt fyrir 12, því ég trúi ekki að foreldrar mínir hefðu leyft mér að sofa af mér hina árlegu skötuveislu afa og ömmu í Sigtúni! Ofurlítið uppgefin manneskja á ferð ;P

En nú er það jólaskreyting og jólakortaföndur - jóla jóla jóla :D

föstudagur, desember 22, 2006

gáttaþefur



Ellefti var Gáttaþefur,
- aldrei fékk sá kvef,
og hafði þó svo hlálegt
og heljarstórt nef.

Hann ilm af laufabrauði
upp á heiðar fann,
og léttur, eins og reykur,
á lyktina rann.



Prófin búin - tralliralliraoghoppoghíogfallila!
Við tekur: Jólin jólin alls staðar með jólastúss og gjafirnar ;)

fimmtudagur, desember 21, 2006

gluggagægir



Tíundi var Gluggagægir,
grályndur mann,
sem laumaðist á skjáinn
og leit inn um hann.

Ef eitthvað var þar inni
álitlegt að sjá,
hann oftast nær seinna
í það reyndi að ná.



Eftir tæpa 8 klukkutíma mun ég segja: "Aaahhh...!"

miðvikudagur, desember 20, 2006

bjúgnakrækir


Níundi var Bjúgnakrækir,
brögðóttur og snar.
Hann hentist upp í rjáfrin
og hnuplaði þar.

Á eldhúsbita sat hann
í sóti og reyk
og át þar hangið bjúga,
sem engan sveik.



Eins gott að hleypa Bjúgnakræki að áður en útlandasambandið rofnar... ;) Þessi líka spenna komin í netrápið - skyldi sambandið haldast??? Annars leiðinlegt með jólaveðrið, það virðist algerlega ætla að bregðast; rigning og rok og hátt í 10°C hiti. Þetta var svo jólalegt um síðustu helgi. En þá er bara að vona að veðrið verði skaplegra á gamlárskvöld með hæfilegu frosti og andvara til að dreifa púðurreyknum. Sjáum til.

þriðjudagur, desember 19, 2006

skyrjarmur



Skyrjarmur, sá áttundi,
var skelfilegt naut.
Hann hlemminn o´n af sánum
með hnefanum braut.

Svo hámaði hann í sig
og yfir matnum gein,
unz stóð hann á blístri
og stundi og hrein.




Ojammojá, ekkert netsamband milli 10 og 14 í dag. Laglegt ástand. Annars er það í líneyskum fréttum helst að hnátan er orðin hundleið á próflestri. Skal það engan undra.

mánudagur, desember 18, 2006

hurðaskellir



Sjöundi var Hurðaskellir,
- sá var nokkuð klúr,
ef fólkið vildi í rökkrinu
fá sér vænan dúr.

Hann var ekki sérlega
hnugginn yfir því,
þó harkalega marraði
hjörunum í.




Uhuhu, ég þarf að fara að læra á ný :( Neeei, ég er nú ekki svona mikill vælukjói, en hefði jú auðvitað alveg verið til í að vera búin í þessum prófum... ;)

Minnst á Hurðaskelli: Bjarnheiður, manstu eftir jólaballinu á Orkustofnun þegar Árni Hjartar lék Hurðaskelli og kom með eitt stykki beyglaða bílhurð upp á salinn? (Hann sagði sko að hann hefði komið með leigubíl og máski skellt hurðinni heldur harkalega aftur, alla vega varð hún eftir hjá honum þegar leigubíllinn ók á braut...) Skemmtilegasta jólaball sem ég hef farið á, slær meira að segja út hina stórskemmtilegu felu-/eltingaleiki á RALA-jólaböllunum með Dafnýju og Helga Tómasi :D

sunnudagur, desember 17, 2006

askasleikir



Sá sjötti, Askasleikir,
var alveg dæmalaus. -
Hann fram undan rúmunum
rak sinn ljóta haus.

Þegar fólkið setti askana
fyrir kött og hund,
hann slunginn var að ná þeim
og sleikja á ýmsa lund.




Jæja, loksins búið að redda netsambandi út í lönd. Ég var haldin þeirri ranghugmynd að það væri liðin tíð að netsamband við umheiminn lægi niðri klukkutímum saman... En onei-onei.

En hvað um það, Askasleikir komst til Epla&skyr-byggða í tæka tíð, svo þá er kannski hægt að fyrirgefa þetta sambandsleysi ;)

Gyðingakökur bökuðust gullinbrúnar, fagrar og gómsætar í gær og ég fór á jólasöngva Langholtskirkjukórs. Hef ekki gert það í a.m.k. tvö ár vegna jólaprófa og var þess vegna alveg í skýjunum yfir að komast núna í ár. Og ekki brugðust söngvarnir. Alltaf jafn gaman. Bragi Bergþórsson söng mjög vel, Ólöf Kolbrún er komin yfir tímabil of mikils víbrató og ekkert annað en fögur rödd og glæsileiki, Eivör söng með sínu nefi sem fyrr og Langholtskirkjukór og Gradualekór voru náttúrlega glimrandi. Annars heilmikil törn hjá grallarakórnum þarna í gær því þau sungu á fernum tónleikum: fyrst klukkan 14 og 17 á jólatónleikum Sinfó, og svo klukkan 20 og 23 á jólasöngvunum. Dugnaður.

Skora á ykkur að fara á a.m.k. eina jólatónleika núna í desember. Af nógu er jú að taka!

laugardagur, desember 16, 2006

pottaskefill



Sá fimmti, Pottaskefill,
var skrítið kuldastrá.
- Þegar börnin fengu skófir
hann barði dyrnar á.

Þau ruku upp, til að gá að
hvort gestur væri á ferð.
Þá flýtti' ann sér að pottinum
og fékk sér góðan verð.




Algebran gekk ágætlega í gær. Lengri próftími kom sér vel (fékk lengri tíma út af "ofnæmisköstum" sem heilinn í mér á það til að fá af stærðfræðilegri rökhugsun undir of mikilli tímapressu). Eða ég held það alla vega. Virkar samt ofurlítið beggja blands, því hvar ætli öllum ofurprófstressuðum sé holað niður? Jú, í Lögbergi. Og þar, beint fyrir utan gluggann, er hópur kátra verkamanna að bora, fræsa, saga, öskra, æpa o.s.frv. í vinnu sinni við hið mikla háskólatorg. Þegar um ein og hálf klukkustund var liðin af próftíma kom alger hápunktur í djöfulganginn þarna úti og þá gekk frökenin sem sat yfir okkur á milli borðanna með plastvasa fullan af eyrnatöppum. Vesgú. Verst að eyrnatappar verka eins á eyru og heila í mér. Þ.e. stífla. Einhverra hluta vegna minnkar heilastarfsemin hjá mér svo mjög við að troða þessum þarfaþingum í eyrun að ég tek greinilega eftir því. Svo þegar tæpur klukkutími var eftir af prófinu hætti ég á að draga tappana úr mínum stirða kolli og viti menn, heilinn hrökk í gang um korteri síðar og leysti dæmi - en ég var búin að sitja í a.m.k. hálftíma með lausnina beint fyrir framan nefið á mér ritaða með eigin hendi án þess að fatta það, klórandi mér í kollinum. Þessi heili... En já, þetta gerðist þegar komið var 15 mínútur fram yfir venjulegan próftíma, svo nú má deila um hvort lengri próftími hafi hjálpað til við að vega upp á móti þessum tímapressuheilastirðleika eða hávaði&eyrnatappar komið í staðinn ;)

En hvað um það. Eftir að hafa etið síðbúinn hádegisverð skundaði ég í Smáralindina með mömmu. Þetta er í annað sinn sem hún móðir mín kemur inn í það hús, en held ég um 3-4 vikur síðan hún kom þangað í fyrsta sinn (og rak þá nefið bara rétt aðeins inn í Debenhams með mömmu sinni og systur hennar). Þar tókst að finna jólagjöfina mína: jóla-/árshátíðarkjól. Magnað. Það er nefnilega yfirleitt heljarinnar vesen að finna á mig kjól, en núna tók það innan við klukkustund. Eftir ofurlítið slór heimavið hélt ég svo í jólaboð Orkugarðs (þar sem ég hef unnið síðustu tvö sumur). Ákaflega gaman að hitta allt fólkið á ný og einnig ýmsa sem ég hef ekki spjallað við ansi lengi, því ég var náttúrlega hálft sumarið í "útlegð" í Potsdam núna í ár. Eftir kjaftaganginn og pinnasnarlið tók við kvöldsnarl heima, deiggerð (ætla að baka gyðingakökur í dag) og loks James Bond í bíó. Þetta er ansi hreint góð mynd. Meira ofbeldi en í fyrri myndum, en mun trúverðugri saga og skemmtilegri persónur. Heldur ekki þannig að annaðhvort er fólk vont eða gott. Sumir eru hvort tveggja og engu að treysta. Mun skemmtilegra þannig, ekki sami ævintýrabragur á þessu. Verst að myndin var ekki sýnd fyrr en níu í Regnboganum og var þá ekki búin fyrr en rétt fyrir miðnætti. Varla á það bætandi eftir heldur rýran svefn í þessari þriggja prófa törn undanfarið :P En hva, bara sofið, lúrt og kúrt þeim mun lengur frameftir ;)

----- 14:15:00 -----
Ahhh..., allt lita-, krækju-, breiddar-, leturgerðar-lagfæringarvesen búið :) Síðan er komin í sinn gamla búning!

föstudagur, desember 15, 2006

þvörusleikir



Sá fjórði, Þvörusleikir,
var fjarskalega mjór.
Og ósköp varð hann glaður,
þegar eldabuskan fór.

Þá þaut hann eins og elding
og þvöruna greip,
og hélt með báðum höndum,
því hún var stundum sleip.


Obbosí, þvörusleikir gleymdist í mínu þétta skipulagi eftir algebruprófið :P En betra seint en aldrei...