laugardagur, desember 16, 2006

pottaskefill



Sá fimmti, Pottaskefill,
var skrítið kuldastrá.
- Þegar börnin fengu skófir
hann barði dyrnar á.

Þau ruku upp, til að gá að
hvort gestur væri á ferð.
Þá flýtti' ann sér að pottinum
og fékk sér góðan verð.




Algebran gekk ágætlega í gær. Lengri próftími kom sér vel (fékk lengri tíma út af "ofnæmisköstum" sem heilinn í mér á það til að fá af stærðfræðilegri rökhugsun undir of mikilli tímapressu). Eða ég held það alla vega. Virkar samt ofurlítið beggja blands, því hvar ætli öllum ofurprófstressuðum sé holað niður? Jú, í Lögbergi. Og þar, beint fyrir utan gluggann, er hópur kátra verkamanna að bora, fræsa, saga, öskra, æpa o.s.frv. í vinnu sinni við hið mikla háskólatorg. Þegar um ein og hálf klukkustund var liðin af próftíma kom alger hápunktur í djöfulganginn þarna úti og þá gekk frökenin sem sat yfir okkur á milli borðanna með plastvasa fullan af eyrnatöppum. Vesgú. Verst að eyrnatappar verka eins á eyru og heila í mér. Þ.e. stífla. Einhverra hluta vegna minnkar heilastarfsemin hjá mér svo mjög við að troða þessum þarfaþingum í eyrun að ég tek greinilega eftir því. Svo þegar tæpur klukkutími var eftir af prófinu hætti ég á að draga tappana úr mínum stirða kolli og viti menn, heilinn hrökk í gang um korteri síðar og leysti dæmi - en ég var búin að sitja í a.m.k. hálftíma með lausnina beint fyrir framan nefið á mér ritaða með eigin hendi án þess að fatta það, klórandi mér í kollinum. Þessi heili... En já, þetta gerðist þegar komið var 15 mínútur fram yfir venjulegan próftíma, svo nú má deila um hvort lengri próftími hafi hjálpað til við að vega upp á móti þessum tímapressuheilastirðleika eða hávaði&eyrnatappar komið í staðinn ;)

En hvað um það. Eftir að hafa etið síðbúinn hádegisverð skundaði ég í Smáralindina með mömmu. Þetta er í annað sinn sem hún móðir mín kemur inn í það hús, en held ég um 3-4 vikur síðan hún kom þangað í fyrsta sinn (og rak þá nefið bara rétt aðeins inn í Debenhams með mömmu sinni og systur hennar). Þar tókst að finna jólagjöfina mína: jóla-/árshátíðarkjól. Magnað. Það er nefnilega yfirleitt heljarinnar vesen að finna á mig kjól, en núna tók það innan við klukkustund. Eftir ofurlítið slór heimavið hélt ég svo í jólaboð Orkugarðs (þar sem ég hef unnið síðustu tvö sumur). Ákaflega gaman að hitta allt fólkið á ný og einnig ýmsa sem ég hef ekki spjallað við ansi lengi, því ég var náttúrlega hálft sumarið í "útlegð" í Potsdam núna í ár. Eftir kjaftaganginn og pinnasnarlið tók við kvöldsnarl heima, deiggerð (ætla að baka gyðingakökur í dag) og loks James Bond í bíó. Þetta er ansi hreint góð mynd. Meira ofbeldi en í fyrri myndum, en mun trúverðugri saga og skemmtilegri persónur. Heldur ekki þannig að annaðhvort er fólk vont eða gott. Sumir eru hvort tveggja og engu að treysta. Mun skemmtilegra þannig, ekki sami ævintýrabragur á þessu. Verst að myndin var ekki sýnd fyrr en níu í Regnboganum og var þá ekki búin fyrr en rétt fyrir miðnætti. Varla á það bætandi eftir heldur rýran svefn í þessari þriggja prófa törn undanfarið :P En hva, bara sofið, lúrt og kúrt þeim mun lengur frameftir ;)

----- 14:15:00 -----
Ahhh..., allt lita-, krækju-, breiddar-, leturgerðar-lagfæringarvesen búið :) Síðan er komin í sinn gamla búning!

föstudagur, desember 15, 2006

þvörusleikir



Sá fjórði, Þvörusleikir,
var fjarskalega mjór.
Og ósköp varð hann glaður,
þegar eldabuskan fór.

Þá þaut hann eins og elding
og þvöruna greip,
og hélt með báðum höndum,
því hún var stundum sleip.


Obbosí, þvörusleikir gleymdist í mínu þétta skipulagi eftir algebruprófið :P En betra seint en aldrei...

fimmtudagur, desember 14, 2006

stúfur



Stúfur hét sá þriðji
stubburinn sá.
Hann krækti sér í pönnu,
þegar kostur var á.

Hann hljóp með hana í burtu
og hirti agnirnar,
sem brunnu stundum fastar
við barminn hér og þar.


Minn uppáhaldsjólasveinn ;)

miðvikudagur, desember 13, 2006

giljagaur




Giljagaur var annar,
með gráa hausinn sinn.
- Hann skreið ofan úr gili
og skauzt í fjósið inn.

Hann faldi sig í básunum
og froðunni stal,
meðan fjósakonan átti
við fjósamanninn tal.


Ragnar karlinn semur greinilega jafn ofvirk ef ekki ofvirkari próf en hann er sjálfur. Stærðfræðigreiningarprófin hafa verið sanngjörn og nokkuð stöðluð síðustu ár, en það er eitthvað sem segir mér að þetta próf verði skalað upp. Hann blés lengd dæma talsvert upp og jók þyngdina að auki. Allamalla. En þá er bara algebran á föstudaginn og svo er ég komin í mitt hálfgerða jólafrí. Ég tek því nefnilega nokkuð létt fyrir síðasta prófið, þetta var svoddan tætingsáfangi, og svo verður tímanum milli jóla og nýárs jú eytt í að ljúka *bííííp* sérverkefninu mínu frá í sumar. Er held ég barasta á því að ég skili því hvort sem það er fullklárað í mínum huga eður ei um áramót. Þetta verður komið gott og mig skiptir litlu eða engu hvort ég fæ þessar 5 einingar eða ekki. Mig langar jú til að fá smá frí. Ætla að fara norður yfir heiðar að heilsa upp á afa og ömmu á Akureyri, Hlyn og fjölskyldu og Hall og fjölskyldu, og enda svo á því að bruna á Ærlæk til Sigurðar.

þriðjudagur, desember 12, 2006

stekkjastaur



Stekkjastaur kom fyrstur,
stinnur eins og tré.
Hann laumaðist í fjárhúsin
og lék á bóndans fé.

Hann vildi sjúga ærnar,
- þá var þeim ekki um sel,
því greyið hafði staurfætur,
- það gekk nú ekki vel.



Ég er að uppfæra síðuna. Réttir litir, krækjur og svoleiðis koma væntanlega einhvern tíma milli 15. og 21. desember þegar mér leiðist próflesturinn ógurlega... ;)

mánudagur, desember 11, 2006

hæ hó og jibbíjei og jibbí íjei!

Ég er búin með skammtafræði 1. Fyrir þau ykkar sem ekki vita, þá er það sá áfangi í eðlisfræðináminu sem er alræmdur fyrir massíft vinnuálag, óskiljanleg dæmi og svínslegt próf. Dæmi: Þrælklár nemandi gat reiknað eitt og hálft dæmi af fjórum (einkunn gefin fyrir þrjú bestu) á prófinu þegar hann tók þennan áfanga. Kennarinn er frægur fyrir að hækka ekki upp á prófi, en neyddist til þess í þetta skipti. Hæsta einkunn var 8. (Já, þrælklári nemandinn fékk 8.) Og nú veit ég ekki alveg hvað ég á að halda, því prófið sem við fengum var, tjah, svei mér þá ef það var ekki mögulega hugsanlega sanngjarnt! Eitthvað sem ég hefði aldrei búist við. Og eftir að hafa skoðað prófið frá því í fyrra (ópent orðað: það var alger drulla), þá get ég með góðri samvisku sagt að mér hafi gengið vel á prófinu núna í morgun. Ha??? ganga vel í skammtafræði 1?!? Aldrei hefði ég trúað því að það væri hægt...
Þessu var svo fagnað með góðum hádegismat, glápi út í loftið, blaðalestri, sundferð, lúr, jólasmákökum og púsluspili. Það var ekki fyrr en eftir kvöldmat sem ég byrjaði að ganga frá skammtafræðidótinu og draga fram næsta fag, stærðfræðigreiningu. Það próf er núna á miðvikudagsmorgun. Ekki mikill tími fyrir það, en ég er alveg einstaklega kærulaus núna eftir að skammtafræðin er yfirstaðin. Næst er svo algebra I á föstudagsmorgni. Eins gott að kæruleysið verði runnið af mér fyrir það próf... Svo er ég í síðasta prófi á síðasta prófdegi, 21. des kl 13.30. Ég er þegar búin að leggja drög að kæruleysi fyrir það próf: Leit að jólakjól eftir góðan hádegismat að algebru lokinni 15. des., jólarabb og -smjatt Orkugarðs um hálf sex og James Bond í bíó að kvöldi. Smákökubakstur og jólasöngvar Langholtskirkjukóranna á laugardegi, og máski eins og ein heimsókn. Próflestur eftir það, væntanlega með einum og jafnvel tveim frídögum inn á milli.
Já, það er sko allt hægt þegar skammtafræðinni er lokið ;)

laugardagur, nóvember 25, 2006

föstudagsfjör

Ég horfði fram á þennan feita og pattaralega dag á fimmtudagskvöldi og hugsaði innst inn: "úff..." Kæruleysi á föstudagskvöldi og ljúfur svefn á laugardagsmorgni ekki í boði þessa helgina. Svo var þetta nú ekki svo slæmt:

Mætt vestur í háskóla um hálf níu og farið beint upp á bókasafn að leysa skiladæmi í algebru I. Tími í algebru I milli 10 og hálf tólf, þá hádegishlé og svo rúmlega fjórfaldur skammtafræðidæmatími milli 13.20 og klukkan að verða fimm - með einu 20 mín hléi. Mikil þörf á næringu eftir það; fór út í féló og át appelsínu. Sat þar og sötraði næstum einn lítra af hvítölinu hans Sigurðar (sem honum fannst ekki gott) meðan ég hlustaði á einstaklega skemmtilegar bollaleggingar Ásu, Atla og fleiri Stigla um hvað væri hægt að gera milljón sinnum (eitthvað sem ekki hver sem er myndi gera milljón sinnum) og krafsaði meira í algebruna mína. Eftir að niðurstaða var fengin um
- að engum myndi endast aldur til að drekka milljón kaffibolla (jafnvel þótt þeir væru á stærð við expresso-bolla),
- hversu mörg baðkör af kaffi Atli væri búinn að drekka um ævina,
- að þar sem það munaði hlutfallslega svo litlu í kostnaði á því að keyra milljón kílómetra á Toyota Aygo eða eyðslumeiri og þægilegri bíl, þá myndi maður nú frekar velja þægindin...
...og algebrudæmin mín voru samasem leyst, skottaðist ég aftur upp á safn til að kíkja á tölvupóst og tex-a algebrudæmin (pikka á tölvu). Skammtafræðin sat greinilega enn eitthvað í mér, því ég skrifaði tvisvar sinnum Heisenberg í stað Eisenstein. Haldið heim á leið. Kvöldmatarafgangar runnu ljúflega niður og svo var pikkinu haldið áfram um hálf níu. Viljinn til þess þó greinilega eitthvað farinn að dala, því smáhlé til ýmissra annarra smáverka, dunds og slæpings urðu ansi mörg... Var þó lokið klukkan tíu. Þá tók við tilraun til að rúlla upp gömlu prófi í stærðfræðigreiningu: aukatími til að reikna gegnum tvö gömul próf framundan klukkan 9-12 að morgni laugardags. Þeirri vitleysu hætt á miðnætti og farið að sofa. Og svei mér þá ekki neitt gífurlega erfitt að vakna að morgni. Enda ekki verra að vakna við íslensk sönglög í flutningi Kristins Sigmundssonar og Jónasar Ingimundarsonar á gömlu góðu Gufunni... ;)

laugardagur, nóvember 04, 2006

öhömm

Segir það mér eitthvað að á "Ferska" listanum hérna við hliðina á er enn þá titill bloggfærslu sem skrifuð var úti í Potsdam? Dúddúrú...

Ég verð annars að gefa ykkur krækju í þessa mynd sem ég er með sem skjáborðsmynd í tölvunni minni (ef þið viljið sjá aðra upplausn en 1024x768 þá getið þið valið hana á þessari síðu). Það er alveg dásamlegt að sjá þessa elsku þegar ég ræsi tölvuna ;)

fimmtudagur, október 26, 2006

húbbla

Kominn tími til að sýna smá lífsmark. Það er bara eitthvað svo lítið að frétta :S En kannski hægt að tína eitthvað til...

Fór á hádegistónleika í Norrænahúsinu í gær. Hljómsveit Hafdísar Bjarnadóttur lék þar 6 lög eftir Hafdísi (þar af eitt aukalag því þótt klukkan væri orðin eitt, þá bara urðum við að fá að heyra meira ;) ). Leitt hversu dræm mæting var. En lögin hennar Hafdísar eru brill. Ótrúlega fjölbreytt. Alls kyns stefnur og stílar :)

Að öðru leyti er ég á kafi í hinum breiða og stóra og (núorðið) venjulega námssúpupotti. Sit yfir tugblaðsíðna-löngum skammtafræðidæmum með harðsperrur á við hraustlega Vadim-"dry land"-æfingu (síðan í sundinu) eftir að hafa tekið vel á axla-, brjóst- og bakvöðvum, þríhöfða og tvíhöfða í fyrradag. Þarf nauðsynlega að komast í sund í dag til að liðka aumingjans vöðvafrumurnar mínar og tilheyrandi sinar.

Mamma verður með frænkukvöld annað kvöld og keppist við að baka kökur og smyrja brauðrúllutertur. Maginn í mér hoppar af kæti við tilhugsunina um alla afgangana ;)

En annars ef ég týni blogginu á ný innan um skammtakerfi, grúpur, bauga og afleiðujöfnur, þá má alltaf leita þangað sem margt er að frétta: draga andann djúúúúpt og skella sér í eina maraþonfærslu hjá Bjarnheiði systur ;D

mánudagur, október 09, 2006

sko

Ég hef yfirgefið Símann og flutt mig yfir til SKO. Ef þið reynduð að hringja eða senda sms í dag frá 12-20, þá var það árangurslaust því sauðurinn Líney skildi nýja sim-kortið eftir heima hjá sér. Sé svo til hvernig SKO stendur sig eftir áramót, hvort ég flytji mig aftur yfir til Símans.
Bara láta ykkur vita af flutningunum...