miðvikudagur, júlí 26, 2006

forstýra?

Við heimkomu var mér vegna plássleysis plantað inn á skrifstofu aðstoðardeildarstjóra eðlisfræðideildar ÍSOR meðan hann rambaði um á tveim jafnfljótum um ægifagurt hálendi Íslands. Nú er hann væntanlegur til vinnu á morgun. Forstjóri ÍSOR er í frí til 21. ágúst (ég hætti að vinna 24. ágúst) en hann leit við til að spjalla um Potsdam-mælingarnar núna áðan. Hann sagði mér endilega að nota sína skrifstofu fyrst hann væri í fríi. Uuuu... hmm... tjah... kærar þakkir! En nei, ég held ég verði frekar á hálfgerðum vergangi en sitja á sjálfri forstjóraskrifstofunni, sama hversu tóm og ónotuð hún er ;D

mánudagur, júlí 24, 2006

frónbúinn

Jahá, næstum ein vika liðin síðan ég kom heim! Eina afsökun mín (sem er mjög góð afsökun) fyrir bloggleysi er sú að það er svo dásamlegt að koma heim í íslenskt veður, ferskt loft, göngtúra, sund, skokk (án þess að leka öll á gangstéttina), Sigurðarfaðm, pabba&mömmu-mat, sumarbústað, ... að alnetið gleymist svo til alveg. Ég mætti líka strax til vinnu eftir heimkomu (þ.e. á miðvikudaginn) og notaði allan fimmtudaginn í dagsferð og matarboð með þýskri kunningjakonu. Helgin leið hratt í leti, sundi, eldamennsku og hinu ljúfa lífi sumarbústaðarins: göngutúrum, ofáti, pottbleyti, sólböðum og spilamennsku. Annars held ég svei mér þá að ég hafi ekki legið almennilega í leti síðan um síðustu jól! Alla vega man ég ekki eftir slíkum degi síðan þá :P
En já, heima er bezt! ;)

sunnudagur, júlí 16, 2006

líður að heimför

Jú jú, það eru einungis tveir dagar í að ég kem heim. Ætti að vera á leiðinni til Schönefeld-flugvallar með lestinni um þetta leyti eftir tvo sólarhringa. Sjáum til hvort mér takist að pakka einhverri sól, sumri og aukagráðum með í ferðatöskuna - hefur heyrst að það vanti eitthvað þess konar í höfuðborginni a.m.k.

En dagarnir líða því hjá mér núna helst við að kveðja fólk, þakka fyrir mig og saxa á "það sem þarf að gera fyrir brottför"-listann minn. Er reyndar flest allt komið nema ganga frá ýmsum gögnum í vinnunni, skila lyklum, þrífa herbergið mitt og pakka. Mikil gleði :)

Sjáumst!

laugardagur, júlí 08, 2006

toppgoði - toppsund

Á fimmtudaginn var tróð ég marvaðann í um 2 metra fjarlægð frá fugli er nefnist toppgoði
í u.þ.b. hálfa mínútu áður en hann stakk sér á kaf í grænleitt og lítt tært Heilagavatn (Heiliger See). Fyrir utan að öll heila sundferðin var frábær þá var þetta eitt af betri augnablikum dagsins. Ég mæli annars með þessari fuglamyndasíðu; reglulega fallegar myndir þarna.

fimmtudagur, júlí 06, 2006

glóandiheitar kveðjur

Það er 29°C hiti á skrifstofunni minni. Valið stóð milli 26°C og súrefnissnauðs lofts eða 29°C og súrefnisríkara lofts. Svo býður móðir náttúra upp á glampandi sól og 32°C. Nýju steikjandi hitahágildi er náð og ég ætla bara að vona að það sé víðfeðmt... ;)

miðvikudagur, júlí 05, 2006

loftmyndir

Ykkur til ánægju og upplýsingar eru hér nokkrar loftmyndir frá Potsdam. Og þeim sem halda að ég hafi þurft að fara í yfirlitflug yfir Potsdam til að redda þessum myndum fyrir ykkur, er bent á hið bráðsniðuga kortagoogle ;)
Hér á myndinni er stærri rauði hringurinn um húsið þar sem skrifstofan mín er, sá smærri er um "saununa" (skáli þar sem er eins og í saunu þessa dagana) þar sem tækin og tólin eru. Rauða línan er leiðin um steinlagðan akveg til að komast í mötuneytið (græni hringurinn), aðalbygginguna (norðan mötuneytis) eða áfram í mælingaskálann. Græna línan sýnir aðra leið um skuggsælan skógarstíg, ahh... ;)
Nyrsti rauði depillinn er þar sem ég bý, rauða línan sýnir leiðina í vinnuna og hinir deplarnir sýna annars vegar skrifstofuna og hins vegar saununa.
Hér sést hvar ég bý (rautt), hvar er mjög gott að henda sér út í vatnið Heiliger See (gult) og svamla um í sólinni meðal kviknakins fólks (kommúnísk gildi þar enn í hávegum höfð og þá heitir það jú bara félagi Jón og félagi Gunna), Schloss Cecilienhof (blátt) þar sem m.a. skipting Þýskalands eftir seinna stríð var ákveðin og rétt aðeins út af kortinu (bleikt) er Glienicker-brú þar sem Sovétmenn og Bandaríkjamenn skiptust á njósnurum á dögum kalda stríðsins. Þarna á myndinni sést líka aðalbrautarstöðin, Pfingstberg, Russische Kolonie, Neuer Garten, Nuthe Park, Park Babelsberg, miðbærinn, Tiefer See og Jungfernsee og ... en ég ákvað að láta þetta fernt bara nægja...

Annars gengur vinnan hér hægt en fer í rétta átt, sem fyrr. Samt getur verið talsvert erfitt að gera eitthvað af viti í yfir 30°C ... En þá er jú eitt ráð að skella sér til sunds í Heiliger See og vel þess virði að grillast á leiðinni þangað á hjólinu. Stefni á slíka sundferð á morgun :)

þriðjudagur, júní 27, 2006

sólskinsdagar

Ég geng um í stuttbuxum og hlýrabol dag hvern, eins léttklædd og siðsamlega er mögulegt. Hjóla í vinnuna og svitna. Geng niður í matsal og svitna. Tek eitt skref og ... nei, kannski ekki svo slæmt ;) En ég væri meir en til í að skipta við ykkur frónlendinga. Ekki það, ég nýt sólarinnar í botn þegar ég rölti um svæðið hérna - svona þegar ég geng leiðir sem eru skuggsælar á köflum ;) Og það er ósköp notlegt að vinna á þessum stað. Hef fuglasöng sem tónlist, mýs skjótast einstaka sinnum yfir gangstígana, spörfuglar og svartþrestir vappa um allt, kanínur skoppa um grasflatirnar...

... og á sunnudagskvöldið sá ég meira að segja broddgölt þjóta eins hratt og hann gat inn í trjágróðurinn. Ósköp gaman :) Væri náttúrlega alveg til í að losna við mýflugurnar úr lífríkinu, en ætli þær verði ekki að fá að vera með...

Núna, að frádregnum 4 klst eru 3 vikur þangað til ég lendi á Íslandi á ný. Skemmtilegt :)

föstudagur, júní 23, 2006

pikk frá Potsdam

Svo merkilega vill til að ég er algerlega hugmyndasnauð þegar ég ætla að skella inn færslu, en þegar ég er í vinnunni er heilinn afar blogg-frjór ;) Nú gríp ég tækifærið á mörkunum; er eiginlega hætt að vinna í dag en á bara eftir að senda einn tölvupóst.

Það lítur út fyrir að mér hafi eitthvað gengið að senda 5°C yfir hafið til Íslands, ég er alla vega hætt að kafna úr hita við það eitt að taka nokkur skref... ;) Núna er ég bara dauðþreytt. Hér mætir fólk nefnilega ekki í vinnuna fyrr en í fyrsta lagi hálf 9, sumir ekki fyrr en 10, hálf 11. Sem þýðir að þau hætta líka ekki að vinna fyrr en um 17 eða 18. Þá er ég of svöng og yfirleitt alltof heitt úti til að t.d. skokka. Ég vakna þess vegna yfirleitt kl hálf 7 til að fara í sund eða tölta einhvern hring hér í grenndinni. Hins vegar gleymist alveg að stytta sólarhringinn í hinn endann á móti... ;P

Á morgun mætir fólkið á ný til Ingu til að horfa saman á Þýskaland-Svíþjóð og grilla. Í þetta sinn verður leiknum þó varpað á vegg innandyra, enn of bjart úti kl 17... Ég er svo heppin að geta glaðst hvernig sem leikurinn fer - ég held nefnilega með báðum liðum ;) Gaman gaman.

Á miðvikudagskvöldið hittumst við annars nokkur heima hjá Silke...

...en hún átti afmæli, varð 37 ára :) Þar var náttúrlega grillað og spjallað og spilað (fótbolti og "boule") og almennt haft gaman. Nema kannski þegar mýflugurnar herjuðu á okkur skömmu eftir sólsetur... ;) 9 bit voru uppskeran mín, dúkkuðu upp hvert á fætur öðru í gær - baah :P En hvað gerir maður ekki fyrir góðan mat og góðan félagsskap, grín og gaman, ferskt loft og fallegan garð, notalega stund?

Og nei, ég ætla ekki að reyna að útskýra hver er hvað og hvernig allir eru tengdir þarna á myndinni ;) Nöfnin sjáið þið í heiti myndarinnar, lesið frá vinstri til hægri (NN stendur fyrir noname, þ.e. að ég greip ekki nafnið...).

E.S. Ég byrjaði á færslunni kl 17, þess vegna í/ekki í vinnunni... ;)

mánudagur, júní 19, 2006

nokkrar fleiri myndir...

Veðrið er núna orðið þolanlegt. Var það alla vega um helgina :) Skilst að vísu að dagurinn í dag eigi að vera vel sveittur (30°C) en svo verða dagarnir góðir og vænir (20-25°C). Rölti m.a. um göngugötu Potsdam á laugardaginn og nartaði í jarðarber af markaðnum. Ég elska svona jarðarberjatíma, slúrp! :P Lá svo í sólinni á Freundschaftsinsel (Vináttuey) í gær; í stuttbuxum og bikinitopp frá hádegi til að verða fimm, pikkaði dagbók inn í tölvuna, hlustaði á velvalin Metallica- og Radiohead-lög (aaaafar lágt stillt, fyrir aðra gesti! ;) ) og naslaði jarðhnetur, ahhh...

Jarðarber í forrétt, jarðarber í eftirrétt, jarðarber í morgunmat, jarðarber í morgunnasl - er hægt að fá leið á ferskum jarðarberjum?

Þessar myndir gleymdust í gærkvöldi:

Stígurinn sem ég hjóla í vinnuna (sæmilega upp í móti - morgunleikfimi!)

Hliðið að svæðinu þar sem m.a. GFZ-rannsóknastofnunin er.

Skrifstofan sem ég sit í er handan hægrigluggans á framhlið hússins, 1. hæð.

Yfirleitt eru komnir "venjulegir" gönguljósakallar hér í Potsdam, en þarna stendur enn einn austur-þýskur Ampelmännchen :)

Þá tvær herbergismyndir, hér sú fyrri...

... og svo sú seinni.

Bakgarðurinn, séður út um gluggann minn. Bláa laugin er notuð bæði til að kæla börn og bjór ;)

sunnudagur, júní 18, 2006

myndir

Byrjum á vinnunni ;)

Sýni tilbúið til að stinga sér á haus í...

... olíu.

Harald við sýnið áður en það fór á haus.

Hér komið á kaf í olíu, allt tengt fínt og fallegt.

Tækin sem sýna P-bylgjuhraða og viðnám sem fall af tíðni.

Erik (hönnuður tækisins) að flippa smá og David (tengiliðurinn minn).

Skrifstofan sem ég deili með Ingu (jarðeðlisfræðingur)...

... en það var einmitt hún sem hélt grillpartýið þegar opnunarleikurinn á HM var. Hún stendur hér ásamt Ali við grillið.