miðvikudagur, desember 14, 2005

stúfur



Stúfur hét sá þriðji
stubburinn sá.
Hann krækti sér í pönnu,
þegar kostur var á.

Hann hljóp með hana í burtu
og hirti agnirnar,
sem brunnu stundum fastar
við barminn hér og þar.



Helmingur prófanna er búinn. Aflfræðin var niðurdrepandi; ég er ósátt við sjálfa mig og ósátt við prófið. Ég las ekki rétt undir það og/eða var mjög óheppin með prófspurningar. Eftir er próf í afar fræðilegri stærðfræði sem ég hef lítið getað sinnt í vetur og kjarneðlisfræði-/ljósfræðipróf þar sem við höfum einungis óljósar hugmyndir um í hverju muni verða prófað. Bjart framundan? Ég held ekki...
Er farin í sund að synda pirringinn og leiðann úr mér - og finna kannski Pollýönnu aftur.

þriðjudagur, desember 13, 2005

giljagaur




Giljagaur var annar,
með gráa hausinn sinn.
- Hann skreið ofan úr gili
og skauzt í fjósið inn.

Hann faldi sig í básunum
og froðunni stal,
meðan fjósakonan átti
við fjósamanninn tal.


Fyrsta prófið er búið. Það var heldur betur klikk. Heilinn er á bráðamóttökunni. Þetta verður vonandi skalað upp því annars er von á stórum fallhóp m.v. "úff!", "hjálp!", "hvað var þetta?", "uh, hvar er ég?" o.s.frv. eftir prófið. Hins vegar gerði ég bara mitt besta að ég held(?) svo ég get hugsað "fjandans dæmi!" samviskubitslaust ;)
Aflfræði, here I come!

mánudagur, desember 12, 2005

stekkjastaur



Stekkjastaur kom fyrstur,
stinnur eins og tré.
Hann laumaðist í fjárhúsin
og lék á bóndans fé.

Hann vildi sjúga ærnar,
- þá var þeim ekki um sel,
því greyið hafði staurfætur,
- það gekk nú ekki vel.



Eftir nær stanslausan skammtafræðilestur í um 5 klst voru málstöðvarnar orðnar svo haltar að ég þurfti um mínútu til að hita þær upp þegar ég talaði í símann. Aumingja konan í bankanum... ;)

laugardagur, desember 10, 2005

hvatning

Bjarnheiði langar svo ógurlega mikið til að tjá sig á skvettuskoppinu sínu en finnst að ég eigi að segja fyrst frá. Ég er jú svo þæg og góð lítil systir, finnst nú samt hálfasnalegt að pikka þetta inn :S En jæja:
Ég brosti allan hringinn síðasta miðvikudagskvöld (:-) Þá var ég nýbúin að lesa tölvupóst frá Erni Helgasyni um að ég hefði fengið hvatningarverðlaun Eðlisfræðifélags Íslands fyrir góðan árangur í námskeiðunum Eðlisfræði 1 og 2. Verðlaunin fékk ég svo afhent í gær á aðalfundi félagsins. Ég hafði annars ekki minnstu hugmynd um þessi hvatningarverðlaun, þ.e. ég var búin að steingleyma að þau væru til því okkur var víst sagt frá þessu í námskeiðinu Eðlisfræði 1. Munduð þið af eðlukyni eftir þessu???

föstudagur, desember 09, 2005

búhú

Haldið þið ekki að ég hafi verið orðin veik á sunnudagskvöldið! Ooooohhhh... Ég var búin að hlakka ógurlega til að spila á þessum tónleikum :( Fór kvöldið áður að spila (fyrir Svaninn) þegar kveikt var á jólatrénu á Álftanesi, sem ég kenni að mestu um ásamt heldur betur neikvæðu svefnbókhaldi. Reynið að spila á íííískalt blásturshljóðfæri í hitastigi við frostmark (Kristjana, þú þekkir þetta; Ásta kannski líka?). En fyrst við vorum að spila þarna þá var líka svolítið svekkjandi að út af einhverju hljóðnemaveseni (hvað annað) þá gátum við bara spilað þrjú lög, þá þurfti að kýla dagsskrána áfram - akkúrat þegar hljóðfærin voru orðin sæmilega heit og velhljómandi og við komin í stuð!
En skítt með það; ég er orðin hress á ný (þ.e. ég kemst í sund í dag ;) ) og Bjarnheiður var svo væn að taka Svanstónleikana upp á "smádisk" (mini disc) fyrir mig þ.a. ég gat skemmt mér í rífandi sveiflu við að klára nokkur verkefni í vikunni :)
Eitthvað sem ég þarf að gera milli jóla og nýárs er að þvo trompetinn minn. Mér líst ágætlega á þessa hugmynd hjá Viggó, þótt ég sé ekki alveg viss um hversu árangursrík hún sé... ;D



laugardagur, desember 03, 2005

tónleikar

Þeir sem hafa tíma, eru með tímabundið ógeð á lærdómi, hafa gaman af blús/svíng/melódískri tónlist o.s.frv. eru hjartanlega velkomnir á tónleika lúðrasveitarinnar Svansins í salnum Ými við Bústaðaveg, sunnudaginn 4. desember kl 20.00.
Já, ég veit, ég er alveg ógurlega ótímanleg með þessa tilkynningu, en betra er seint en aldrei :) Líka eins gott að tilkynna þetta sem víðast því tímasetningin var röng í Fréttablaðinu í gær (sagt að tónleikarnir væru í dag, laugardag).
Ég get lofað skemmtilegum tónleikum, því ég er búin að æfa þetta síðan í september og aldrei fundist lögin jafn skemmtileg og falleg og nú (og nei, það er ekki bara vegna þess að þau voru óæfð þá!). Tónleikarnir verða heldur ekki hriiiikalega langir; 4 lög fyrir hnébeygjur og 5 lög eftir spjall.
Mæli með tónleikunum sem smá pásu fyrir lokasprett sunnudagslestursins á VR-II ;)

fimmtudagur, desember 01, 2005

tvíkynja

Ýmislegt styður það að ég sé strákastelpa. Þetta "átreiðanlega" netpróf hefur bæst í hópinn:

Your Brain is 53.33% Female, 46.67% Male

Your brain is a healthy mix of male and female
You are both sensitive and savvy
Rational and reasonable, you tend to keep level headed
But you also tend to wear your heart on your sleeve



Heilinn í mér ku sem sé vera tvíkynja. Magnað.

miðvikudagur, nóvember 30, 2005

saga heimsins

Hvort saga heimsins er löng eða stutt virðist ákaflega afstætt. Hérna er stysta útgáfa sem ég hef séð:

Quantum fluctuation. Inflation. Expansion. Strong nuclear interaction. Particle-antiparticle annihilation. Deuterium and helium production. Density perturbations. Recombination. Blackbody radiation. Local contraction. Cluster formation. Reionization? Violent relaxation. Virialization. Biased galaxy formation? Turbulent fragmentation. Contraction. Ionization. Compression. Opaque hydrogen. Massive star formation. Deuterium ignition. Hydrogen fusion. Hydrogen depletion. Core contraction. Envelope expansion. Helium fusion. Carbon, oxygen, and silicon fusion. Iron production. Implosion. Supernova explosion. Metals injection. Star formation. Supernova explosions. Star formation. Condensation. Planetesimal accretion. Planetary differentiation. Crust solidification. Volatile gas expulsion. Water condensation. Water dissociation. Ozone production. Ultraviolet absorption. Photosynthetic unicellular organisms. Oxidation. Mutation. Natural selection and evolution. Respiration. Cell differentiation. Sexual reproduction. Fossilization. Land exploration. Dinosaur extinction. Mammal expansion. Glaciation. Homo sapiens manifestation. Animal domestication. Food surplus production. Civilization! Innovation. Exploration. Religion. Warring nations. Empire creation and destruction. Exploration. Colonization. Taxation without representation. Revolution. Constitution. Election. Expansion. Industrialization. Rebellion. Emancipation Proclamation. Invention. Mass production. Urbanization. Immigration. World conflagration. League of Nations. Suffrage extension. Depression. World conflagration. Fission explosions. United Nations. Space exploration. Assassinations. Lunar excursions. Resignation. Computerization. World Trade Organization. Terrorism. Internet expansion. Reunification. Dissolution. World-Wide Web creation. Composition. Extrapolation?
Ég held ég leggi ekki í íslenskun alveg í bráð, en þið sem skiljið írsku getið kíkt hingað...

ví!

Ég er búin að fara yfir síðasta skiladæmaskammtinn í línulegri algebru. *Mikil gleði* :)

Fann líka núna áðan oggulítið fleiri upplýsingar um námskeiðin í tækniháskólanum í München (TUM, sem mig langar til að læra við sem Erasmus stúdent á næsta skólaári) svo ég veit betur hve erfitt púsluspil ég hef fyrir framan mig þar. Næsta skref er að senda tölvupóst út og biðja um nánari upplýsingar um þau námskeið sem vantaði lýsingu á og fara svo og tala við nokkra kennara við HÍ um hvað er sambærilegt við hvað. Held samt að ég einbeiti mér að því að klára 2 verkbækur, einn fyrirlestur og sæmilega stórt verkefni og huga svo að prófunum svona í bili...
Bjarnheiður sótti annars líka um við TUM (í stærðfræði náttúrlega) svo ef við komumst þar báðar að væri það auðvitað "tær snilld". Gætum þá mallað ofan í hvor aðra, rifist/rökrætt og talað íslensku við einhvern í beinni :) Krossa putta!

e.s. Ykkur sem gæti hafa dottið "Oktoberfest"+"frí gisting" í hug verð ég því miður að hryggja; það er mjög ólíklegt að ef ég fer út, þá verði ég komin með húsnæði fyrr en um miðjan október, þ.e. eftir Oktoberfest...

mánudagur, nóvember 14, 2005

geisp

Sæl verið þið.
Það er heldur langt síðan ég babblaði eitthvað síðast. Um síðustu helgi ætlaði ég að rabba um skemmtilega ,,tilraun" sem ég, Hulda Soffía og Hanna gerðum í aflfræði, en steingleymdi því svo barasta. En ég bæti þá úr því núna:

Við brunuðum sem sé upp í Heiðmörk í leit að þvottabretti á malarvegunum þar. Vorum svo heppnar að finna eitt slíkt í fyrstu beygju á veginum. En hvað vorum við að leita að þvottabretti? Jú, við ákváðum að flippa svolítið og gera verkefni um þvottabretti á malarvegum í aflfræðinámskeiði sem við erum í. Er hægt að finna einhvern fullkominn hraða fyrir hvert þvottabretti fyrir sig, svo hristingurinn og hossingurinn verði sem minnstur? Við ókum þarna fram og til baka á 20, 30, 40, ... km/klst ferð og reyndum að meta hvort við hossuðumst meira eða minna í hvert skipti. Mjöööög gaman ;) Svo vorum við svo hraustar að standa úti í slyddurigningu og kulda og mæla fjarlægð milli öldutoppa, hæð þeirra, malarsamsetningu (datt meira að segja í hug að fá að stelast í þurrkofninn og sigtastaflann á Vatnamælingum Orkustofnunar til að kanna kornastærðina til hlítar, drepfyndin tilhugsun hvernig kennurunum hefði litist á það, hehe - við Hanna höfum sko sambönd ;) ). En svo rúlluðum við í bæinn, heim til mín í hádegismat og eftir smá þvottabrettarabb héldum við vestur í háskóla að hlýða á Lárus Thorlacius flytja fyrirlestur um uppruna alheimsins. Afar skemmtilegur fyrirlestur um áhugaverðar (fríkaðar) pælingar um fyrstu sekúndubrotabrotin í lífi alheimsins eftir stóra hvellinn. Hápunkturinn var samt í fyrirspurnartímanum þegar alveg mögnuð Anna Einarsdóttir þuldi upp það helsta af lífshlaupi sínu og gortaði pínu af syninum og ætlaði alveg að fara yfir um, því henni datt allt í einu í hug að vetnisvæðingin myndi raska jafnvægi vetnis, helíums og liþíums í alheiminum (sem Lárus minntist á) svo við gætum hreinlega ekki andað mikið lengur (þurfum vetni til þess - hún vinnur á öndunarfæradeild) ef sú mikla áætlun yrði gerð að veruleika! Hvernig henni tókst það, var spurning sem birtist í hverju einasta auga í salnum - nema hennar... og reyndar Lárusar líka, því hann var alveg pollrólegur þegar hann benti henni ákveðinn á að hlutföllin sem hann talaði um ættu við ALheiminn, ekki þetta pínupínupínupínupínuagnaragnarsmá snefilefni sem jörðin væri á þeim skala. En hvernig Lárusi tókst að halda andlitinu þarna uppi á sviði er alveg ótrúlegt, því við hin engdumst um og táruðumst af (þöglum) hlátri. Við héldum svo hlátrinum áfram yfir þvottabrettaverkefninu, ég var farin að halda að Hulda og Hanna hefðu gefið mér hláturgas...

En þessi laugardagur var einn af fáum ljósum dögum. Ég fór að sofa klukkan hálf fjögur aðfaranótt föstudagsins síðasta vegna þrefaldra dæmaskila. Og í kvöld (eh, nótt...) er það klukkan hálf þrjú út af óþolandi eðlisfræðiskýrslu og þvottabrettisverkefninu, sem því miður er ekki eins drepfyndið lengur ;P Ef þið viljið finna mig í jólafríinu, leitið að mér í rúminu...

Góða nótt.